Komnir á stað aftur.

Já við fengum að leggja í gær ein trossa á bát minni bátar með hámark 35 net í trossu og stærri bátar 50 net  í trossu. Við lögðum eina trossu og eru í henni 22 net. En þess má geta að eitt norskt net er helmingi styttra en íslenskt hvernig sem stendur á því.

Svona er þetta bara þegar mikill fiskur berst að landi. Bátarnir voru frekar fljótir í dag t.d vorum við búnir að öllu rétt fyrir eitt flestir voru á því róli. Aflinn í dag í trossuna var 2,2 tonn af slægðum og hausuðum þorski.

Þetta ástand verður sennilega fram yfir páska.

röst5 017

 

Síðasta löndun fyrir stopp. á Sunnudaginn verða þrjár vikur liðnar síðan við byrjuðum þetta úthald. Og aflinn farinn að nálgast 50 tonn af slægðum og hausuðum þorski. Þetta bann sem kom í byrjun vikunnar setti dálítið strik í reikinginn en svona er þetta bara bráðum förum við að hætta telja upp kvótann og byrjum að telja niður og einhvernveginn er það miklu skemmtilegrar.

 

 

 

 

 

röst5 005

 

Sólsetur í Röst nánar tiltekið tekið frá eyjunni Glea. 


Legið í höfn.

Nú liggjum við við bryggju og höfum við legið við bryggju síðan á sunnudag. Á Laugardaginn var okkur tjáð að sunnudagurinn væri síðasti dagurinn sem Jangaard þar sem við löndun tæki við fiski allavega fram á  þriðjudag síðan var talað um miðvikudag og held ég að það standist að við getum farið á morgun miðvikudag og lagt en það er þó með skilyrðum miðað við eina trossu á bát kannski stóru bátarnir meigi leggja meira en allavega við þessir minni ein trossa og ef við brjótum það verðum við settir í skammarkrókinn. 

Verkunin hefur bara verið kjaftfull og voru síðustu bátarnir að landa í dag sem sagt verið með aflann í sér síðan á sunnudag. Við t.d komum að bryggju rétt fyrir hálf tvö á Sunnudag og fengum ekki löndun fyrr en kl 10 á mánudagsmorgunin.

röst5 008

 

Ein trossa ætti sennilega alveg að vera nóg í þetta lóð. En svona búið að lóða á þroskinum síðustu daga. mætti halda þetta væri síld eða loðna en þetta er bara skrei þorskur. Og í þetta lóð hafa menn bara hreinlega ekki þorað að leggja í farið bara svona í jaðarinn á því og fengið alveg nóg.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Jæja

Jæja já nú er skreien (þorskurinn) búin að þétta sig alverulega hérna við eyjuna kominn heilt upp í kantinn, þar var svona 20 fm breytt lóð við botninn í morgun frá 55 fm niður á 70 fm þá fór það að minnka. Keyrðum við sennilega í ca 15 til 20 mín í svona lóði. Bátarnir hreinlega þora ekki að láta vaða inn í hauginn. Fengum fréttir áðan að einhver hefði fengið yfir 10 tonn í eina trossu þarna. Við færðum trossur þarna í jaðarinn í dag en annars áttum við okkar tvær trossur dýpra og var sú sem stóð fyrir neðan 80 fm bara hálf tóm hinn sem var grynnra gaf ágæt. Og eins og ég sagði áðan eru bátarnir bara svona rétt að gæla við hauginn leggja svona þegar lóðið fer að minnka. 

 Gott veður var í dag og er góð veðurspá flest allar verkanir eru búnar að loka fram yfir páska þannig að meira pláss verður til að koma netunum niður, fyrir svona íslenskann græninga.

 

röst4 004

 

Svona var veður snemma í morgun á útleiðinni. Varla hægt að hugsa sér það betra.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

röst4 005

 

Haugei á leiðinni út í morgun búinn að setja upp messann, þetta er bátur frá sama stað og okkar bátur kemur frá.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

röst4 010

 

Storegg í dag en þetta er gamli Brattskjer kanski ekki svo gamall flottur bátur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

röst4 011

 

Og svona ein mynd fyrir strandveiðimennina heima skakbátur (juksasjark). Svona gera þeir þetta hérna langar stangir út beggja megin og svo dóla þeir upp í eru flest allir með skiptiskrúfu og svo ef það er kaldi er bara dólað upp í vindinn ekki svo vitlausir nojarinn.

 

 

 

 

 

 

 

röst4 025

 

Beðið eftir löndun hjá Jangaard. En þar er nú unnið 7. daga vikunnar frá 0700 til ca 0200 á nóttunni. Og reikna þeir með að svona verði þetta langt fram yfir páska. Allt í saltfisk. En eins og ég sagði fyrr er aðrar verkanir hérna búnar að loka eða við það að loka fram yfir páska.

 

 

 

 

 

 

 

röst4 006

 

Hapvag að leggja í dag. 


Þetta mjakast.

Samt held ég að ég verði ekki aflakóngurinn hérna í Röst. Við náum bara ekkert að draga t.d í gær drógum við eina trossu með 18 netum og fengum í hana um 4 tonn og það var bara nóg fyrir okkur við erum bara ekki nógu vel mannaðir ég segi að um borð er bara mannskapur upp á 2,5 stk en ætti ef allt væri eðlilegt að vera 4 stk. Held við séum búnir að fiska um 20 tonn af slægðum og hausuðum fiski og hefur snittverð verið um 11. krónur norskar fyrir kg. Á morgun erum við með eina 15. neta trossu í sjó og vonandi fáum við nóg í hana svona kallinn þurfi ekki að ganga um með hauspoka eina og í síðustu viku.

 

röst3 003

 

Nóg að gera.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Eyjan Röst er alveg stórmerkilegur staður að heimsækja hér snýst allt um fisk og þá sérstaklega um törrfisk (skreið) og svona hefur það verið síðan 1432 að Ítalir komu hérna og strönduðu á þessu skeri. Hér er mjög hentugt að verka skreið og þessi verkun á fiski hefur haldist nánast óbreytt síðan eða frá 1432. Þær fiskverkanir sem eru hér eru allar gamlar þ.e.a.s búnar að vera starfandi í áratugi og jafnvel yfir 100 ár og sumar þeirra eru en að skipta við sömu ítölsku fyrirtækin í áratugi t.d í Greger er fjórða kynslóðin að reka verkunina og þeir eru að selja sömu aðilunum eins og afi gerði eins og langafi gerði og langalangaafi gerði.

röst3 011

 

 

 Allstaðar er skreið allir hjallar að verða fullir. Já eins og ég sagði er mjög hentugt að verka skreið hérna t.d er meðalhiti í janúar +3*C. og mikill blástur getur verið hérna svo kjöraðstæður til að verka skreið. 

Hér búa 600 manns allt árið og eru maðaltekjur á hvern íbúa um 380 þúsund norskar krónur á ári ( um 8 miljónir íslenskar miðað við gengið í dag).

Og hér er stöðugt atvinnulíf og enginn fólksflótti. t.d er bæði skóli og leikskóli fullsettnir og Röst það sveitafélag í Nordland fylki sem er með hæðstu Prósentu af ungu fólki og lægstu prósentu af fólki gömlu fólki yfir 80 .

 

röst3 018

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

röst3 008

 

Að allt öðru eða þó hérna er það til siðs að flagga norska fánanum þegar kvótinn er búinn og hér sjáum við Vigdisi með flaggið upp Vigdis kláraði kvótann í gær voru kallarnir fyrstir til að klára hjá Jangaard verkunin. Ætli við flöggum bara ekki íslenska fánum ef við náum að klára.

 

 

 

 

 

 

 

 

Og svo í lokin tvær myndir önnur af bát sem heitir Haapvaag og svo flottasti norski netabáturinn Nesjenta.

röst3 001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

röst3 004

 


Eftir góða byrjun kom bara búmm og búmm

Já eftir góða byrjun kom bara reiðuleysi fengum ekki upp á hund trossunar voru bara tómar. Var undirritaður farinn að stór efast um sjálfan sig hvað hann væri nú að þvælast þetta og láta hlægja af sér í einu mesta fiskiplássi í Noregi Röst. Líka sagði ég við fiskkaupandann ef þetta færi ekki að lagast myndi ég fara ganga með hauspoka. Já þó það sé metkvóti verður þú sennilega að leggja þar sem fiskurinn er. 

Það er nú samt bjartara yfir þessu núna síðustu tveir dagar hafa verið betri og allir tala um að það sé  " massa fisk" suður af Skomvær sem er vestasta eyjan hérna við Röst og hann eigi allur eftir að síga inn á móti. Fiskkaupandinn segir reyndar að vertíð sé ekki hafin  af því ennþá er ufsi í aflanum þegar þorskurinn kemur á fullum krafti hverfur allur ufsi af svæðinu.

Við erum að draga 50 neta á dag núna ( 30 íslensk net). Og var t.d rétt tæp 3 tonn í dag af slægðum og hausuðum þorski.

röst2 027

 

Nokkrar skrei að koma í dag í rjómablíðu

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

röst2 032

 

Slæging í dag.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

röst2 023

 

Sést kanski ekki of vel á þessari mynd en hún er tekin kl 0500 í morgun þegar trafíkin byrjar þegar sigla út frá þessari eyju ca 200 bátar. Þá er bara koma sér í röðina og halda sinn stefnu bátur á stjór bátur bak fyrir framan og fyrir aftan þig. Fyrir nokkrum árum gerðu út 600 bátar hérna á vertíðinni en nú eru þeir bara 200 mér finnst það alveg nóg mikið.

 

 

 

 

 

röst2 037

 

Þessi er ekki stór eða þó. 14,88 metra langur rúmlega 5 metra langur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

röst2 019

 

Þessi er ekki ýkjastór nema hann er yfir 6.metra breiður net öðru megin og autoline í bakborða. held 14 metra langur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Læt þetta nægja í bili. 


Vertíðin hafin

Já við sigldum til Röst snemma á laugardagsmorgun og lögðum tvær trossur samtals 30 net ( um 17 íslensk því eitt norskt er styttar en íslenskt). Svo var farið í land og þá fengum við þær fréttir að verkunin sem eigum að landa hjá er bara full af fiski svo við urðum að landa slægðum fiski ( slægður fiskur í Noregi er án haus og þannig aðeins meiri vinna en á Íslandinu).

Því var fyrsti dagurinn í lengra lagi vorum ekki búnir að draga fyrr en kl ellefu um í gærkveldi mjög gott var í fyrri trossuna en aðeins minna í þá síðari.

Fyrsta frá Röst 025

 

Fyrstu trossunni lokið á vertíðinni. Við erum þrír í áhöfn ég Björn Björnsson og svo litái sem hefur aldrei farið á fiskibát svo þetta var dálítið erfitt.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrsta frá Röst 026

 

 Björn byrjaður að slægja allt fullt en í þessa trossu var ca 4 tonn miðað við fisk upp úr sjó.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Svo nóg virðist af fiskinum og margir bátar hérna.

Fyrsta frá Röst 018

 

Havstjerna ( ex Eyvindur)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrsta frá Röst 023

 

Bolga að bíða eftir löndun íslensk smíði og íslensk gæði.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrsta frá Röst 024

 

Löndun hjá Greger á Laugardaginn alveg nóg að gera og þar var slæging langt fram á sunnudagsnótt.

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrsta frá Röst 028

 

Löndun í gær hjá Jangaard  


Allt að verða klárt.

Allt að verða klárt netin komin um borð. Og eftir morgundaginn verður allt klárt til að sigla til Röst og taka þátt í Lofoten vertíðinni 2013. 

Norgur mars1 011

 

netin gerð klár.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Norgur mars1 013

 

Búið að steina niður 50 net.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo er bara vona að við fáum godt forhold og mikinn fisk.

Norgur mars1 002

 

Polarfangst að koma í gærmorgun eftir langa siglingu úr Norðursjónum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Norgur mars1 005

 


Þá er það orðið nokkuð ljóst.

Já af því að við fáum ekki afgreidda rekkrullen (netarúlluna) frá Rapp-Hydema fyrr en 22 mars, og því verða ekki verða dregin net á Öyfisk fyrr en í fyrsta lagi fyrr en eftir páska. Svo við förum yfir á Holmvaag

Norge 2013feb2 024

 

Kvótinn á honum er 145 tonn af óslægðum þorski og förum við Röst og löndum hjá John Greger sem er verkun sm var stofnuð 1920 og er nú rekin af þriðja kynslóð afkomanda. Þeir verka aðallega í skreið en eru svo með samning við saltfiskvinnslu sem tekur umframfisk .

Svona útidúr hvað ætli séu margar fiskverkanir á Íslandi sem hafa verið starfandi yfir 90 ár.

 

 

 

 

Í dag vorum við að standsetja Holmvaag starta um vél kveikja á kabyssunni og svona reyna gera þetta vistlegt fyrir næstu þrjár vikur í Röst. Svo á morgun byrjum við að steina niður netin og á mánudag eða þriðjudag gætum við farið á stað, ef ég væri orðinn 100% norðmaður myndi ég skrifa færum á stað í næstu viku.

Norge feb2013 004

 

Hér er mynd af Holmvag sem er tekin fyrir tveimur vikum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrripartinn í dag var snjókoma en þegar líða tók á daginn létti til og gerði fínt veður. Seinni partinn tók ég þessar myndir.

P3020027

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

P3020030

 

 

 

 

 

  


Um bloggið

Jón Páll Jakobsson

Höfundur

Jón Páll Jakobsson
Jón Páll Jakobsson

Er fæddur í Reykjavík rétt fyrir gos en uppalinn á Bíldudal, Útskrifaður frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1993 og hef starfað við það síðan, er giftur og á 4 börn. Er forfallinn Aston Villa stuðningsmaður.

Mars 2013
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 1000013050
  • 1000013064
  • 1000013067
  • 1000013060
  • 1000013017

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband