17.2.2013 | 18:31
Lítið um að vera
Já rólegt í Norge nógur tími til blogga. Öyfisk er orðinn klár fyrir næsta verkefni en það er að taka um borð netaspilið og koma því á réttann stað. Vonandi verður hægt að byrja á morgun en þá fjölgar líka í áhöfninni svo þetta er allt að koma.
Eftir vinnu var tekinn smá bryggjurúntur en mjög gott veður var í dag.

Höfnin í Reipa í dag.
Þessi er greinilega búinn að læra eitthvað að íslendingum karavæddur.

Hefði nú kannski átt að kaupa minna kar heldur en 660 ltr kemst ekki niður lest nema stækka bátinn.
En hvaðan skildi nú karið koma frá.?

Jú frá Ísafirði merkt því mikla aflaskipi Guðbjörgu ÍS 46. Þannig má segja að karið muni sinn fífill fegri en svo má segja að eins manns dauði er annars manns brauð.
Um bloggið
Jón Páll Jakobsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það verður gaman að fylgjast með í vor, hvernig gamli Útlaginn reynist, verður þú með Íslendinga með þér á þessari vertíð?
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 17.2.2013 kl. 18:54
Við verðum allavega tveir íslendingar í áhöfninni kannski fleiri.Ætlum að vera fimm í áhöfn.
Jón Páll Jakobsson, 19.2.2013 kl. 20:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.