Rúm þrjú tonn eftir.

Já rúm þrjú tonn eftir af kvóta Andra BA-101 í Arnarfjarðarrækju þetta fiskveiðiárið búið er að fara í 7 alvöru róðra og svo var farið í einn tilraunaróður í gær, þannig það stefnir allt í það að Andri verði gerður út í 9 daga á þessu fiskiveiðiári. Sem er alveg ótrúlegt.

 

Þessi tilraunaróður sem við fórum í var að leita af rækju inn á Suðurfjörðum Arnarfjarðar þar fannst nánast enginn rækja í rannsókn Hafró í haust rétt um 11 kg, aflinn var samt ekkert sérstakur á mælikvarða þessara vertíðar en við fengum 2,8 tonn í fimm hölum tekin í Geirþjófsfirði og mynni hans. Sem sagt aðeins meira heldur en hafró fékk í rannsókninni. Það þarf svo sem ekki að fara mjög langt aftur í tíma til að 2,8 tonn af rækju eftir einn dag í Arnarfirði þótti bara mjög gott.

 

PB020054

 

Flott rækja veidd örgrunnt framundan Gljúfrá

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

PB030065

 

 

Egill ÍS að taka trollið á Sunnudaginn það er greinilega nóg að fugli í Arnarfirði.

 

 

 

 

 

 

 

 

PB030063

 

 

Egill ÍS.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

PB020058

 

 

Gljúfrá.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Ætti góð veiði ekki benda til þess að meiri massi sé í firðinum en hafró reiknaði út.  Verður þá lagst í víking í norðurveg fyrir jól?

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 5.11.2013 kl. 22:55

2 Smámynd: Jón Páll Jakobsson

Jú Hallgrímur það er það sem viljum meina að það sé meiri massi og meira af rækju heldur en hafró reiknaði út. Ætli ég fari nokkuð fyrr en á nýju ári.

Jón Páll Jakobsson, 12.11.2013 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Páll Jakobsson

Höfundur

Jón Páll Jakobsson
Jón Páll Jakobsson

Er fæddur í Reykjavík rétt fyrir gos en uppalinn á Bíldudal, Útskrifaður frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1993 og hef starfað við það síðan, er giftur og á 4 börn. Er forfallinn Aston Villa stuðningsmaður.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 1000013050
  • 1000013064
  • 1000013067
  • 1000013060
  • 1000013017

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband