Rækjuveiðum lokið.

Já rækjuveiðum á Andra BA-101 er lokið þetta fiskveiðiárið var farið í síðasta róður í gær sunnudag. Heildarafli þessa vertíð var 62,8 tonn ekki er aflaverðmæti alveg á hreinu en rækjan smækkaði þegar á vertíð leið og þar að leiðandi lækkaði verðið. Þ.e.a.s svo kallað kríl ( veit ekki hver fann upp þetta orð) það er rækja sem er undir 1,7 gr og fyrir þannig rækju fáum við ekkert borgað en hún fer kvóta svo það er algjört möst (svo maður sletti smá) að reyna halda kríl sem lægstu. Talning á rækjunni getur verið fínt og verð gott en svo kemur kríl sem er verðlaust en fer í dýrmætan kvótann.

PA300097

 

 

 

 

 

 

 

Veiðar þessa vertíð gengu þokkalega ( aldrei er maður ánægður) fórum við í 19 róðra þessa vertíð hófum veiðar 15. okt og lukum í gær 16. nóv. Meðalróðurinn var 3,3 tonn. Stærsti róðurinn þessa vertíð var 6.038 kg ( 6,0 tonn ef við námundum) minnsti róðurinn var 767 kg ( og ef við námundum hann væri það 1,0 tonn ) Svo sveiflurnar í veiði voru dálitlar. 

Nú Verður fengið langtíma bryggjupláss Höfnum Vesturbyggðar fyrir skipið því að öllum líkindum verður Andri BA-101 ekki hreyfður meira þetta fiskveiðiárið nema rækjukvóti yrði aukinn en ég held það sé fjarstæður draumur sem ekkert taki að hugsa um.

PA290088

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo nú er ekkert hjá undirrituðum að koma sér til Norge og byrja að huga að Jakob N-32-ME sem hefur legið í ró í smábátahöfninni í Reipå í tvo mánuði. Kannski verður gott að komast í burtu til afhlaða sig smá og hlaða svo rafhlöðunar með Noregi.

10389485_727773683971688_2491598706761538164_n

 


Fjórða vikan búin

Og fimmta byrjuð og kvótinn búinn eða svo til alveg. Í síðustu viku rérum við þrjá daga svo kom bræla svo við ákváðum að róa á síðustu helgi og svo vorum við á sjó í gær og aftur í dag og kláruðum við úthlutað kvóta í dag svo við getum verið róleg varðandi þá bræluspá sem framundan er. Dagurinn í gær var nú sérlega leiðinlegur hlerarnir hættu að virka annar hlerinn fór alltaf á bakið reyndist mjög erfitt að fá þá til fungera mér var farið að gruna þetta og í gær fengum við algjörlega staðfestingu á þessu, fengum við svo lánaða hlera í dag til klára kvótann og gekk það bara mjög vel.

Á sunnudaginn fengum við einnig aðeins smá sjmörþef af brasi en þá gerði bara bræludrulla eftir að búið var að láta trollið fara um morguninn á fyrsta hali slitnaði pokasterturinn og var heilmikið bras að eiga við það í A- rokinu.

PB110121

 

Það var sko langt frá því að vera svona veður á sunnudaginn en svona var veðrið í morgun blankandi logn og Arnarfjörðurinn spegilsléttur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já það var renniblíða í dag. Hér sjáum við Egill Ís en hann er kominn í fjörðinn á rækjuna hann hefur þó verið í firðinum í allt haust á snurvoð

PB110128

PB110127


Þriðja vikan

Já nú er föstudagur enn og aftur og þriðju vikunni að ljúka og líkur henni með landlegu nefnilega norð austan stormi og landlegu. Það er búið að vera frekar rólegt í þessari viku fiskerí minnkað og afli farinn að verða eigum við að segja eðlilegur þetta 300 til 400 kg á togtímann.

PA300097

 

Í gær fimmtudag var þó góður dagur en þá fengum við ágætann afla fram af Gíslaskeri ( kannski er kallinn kominn í gang eða þetta hafi bara verið einstök heppni)

Var ágæt veiði þarna og fín rækja. Eru bara nokkur ár síðan rækjan hefur staðið svona utarlega á þessum  árstíma yfirleitt höfum við verið að veiða rækjuna mikið innar allt inn á Dynjandisvog.

 

 

 

 

Erum við búin að fiska rétt rúm 36 tonn á þessari vertíð og eigum eftir 22 tonn ( + uppbætur). Það sem hefur bjargað þessari vertíð að verðið hefur verið mjög gott sem er að sjálfsögðu jákvætt fyrir fólk sem vinnur eftir hlutaskiptakerfinu. T.d hugsa ég að hásetahluturinn í gær hafi verið um 350 þúsund.

PA270063

 

Hér sjáum við Jón Hákon ( ex Höfrungur) á toginu.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

PA290080

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hafa þrír bátar stundað veiðarnar þessa vertíð Andri BA-101, Jón Hákon BA og Ýmir BA-32, Egill ÍS-77 hefur ekki hafið veiðar.

PA290078

 

 Ýmir á toginu voru þeir bræður fyrstir til að klára sinn kvóta þessa vertíð og er Ýmir kominn í langlegudeildina á Bíldudalshöfn sennilega fram á næstu rækjuvertíð eða fram í okt 2015.

 

 

 

 

 

 

 

PA290085

 

Verðum við ekki að láta sjást í Andrann í þessu blogi þó ekki nema hluta úr stýrishúsinu.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

PA300101

 

 

 

 

Það er samkeppni um rækjuna frá fleirum en okkur sjómönnunum. 


Önnur vika búin


Já önnur vikan er búin á innfjarðarrækjunni. Líðandi vika fór ágætlega af stað en svo kom alveg reiðuleysisdagur á miðvikudaginn þegar kallinn ákvað að rækjan væri inn á Geirþjófsfirði en þar var hún alls ekki svo sá dagur fór fyrir lítið. Ekki nóg með það heldur fór stýrisdælan einnig í þessum reiðileysistúr. Ekki tók betra við á fimmtudaginn í fyrsta halinu þann daginn fengum við upp aðskotahlut á hleranum og í framhaldinu í skrúfuna svo sá dagur fór fyrir lítið svo í gær var bara rólegt fiskerí svo það eru rétt komin 22 tonn á þessum tveimur veiðivikum hefði mátt vera meira. Þar sem engin er stýrisdælan þá hefur handstýrið verið notað undanfarna daga. Í dag laugardag er landlega og þá ætlaði undirritaður að nota tækifærið og skipta um dæluna en ný dæla er komin í hús þá kom í ljós að stútarnir af gömlu dælunni pössuðu ekki svo það lítur út fyrir að við verðum sjálfstýringarlaus allavega einn dag enn.
 
PA230027
 
 
Ýmismenn að sigla framhjá á fimmtudaginn. En gengið hefur mjög vel hjá þeim þessa vertíð og eru þeir langt komnir með sínar aflaheimildir þetta árið.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
En það var bras á fleirum heldur en á Andranum.
PA250036
 
 
Jón Hákon var í brasi í gær og hér er veiðafærið í yfirhalningu hjá útgerðarstjóranum Jóni Sigurðsyni
En þeir rifu illa.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Rækjan hafin


Innfjarðarrækjuveiðar í Arnarfirði eru hafnar þessa vertíðina, áhöfnin á Andra BA-101 er búin að fara þrjá róðra á þessari vertíð með misjöfnum árangri, komin er einhver tæp tíu tonn á á land þessa vertíðina. Þrír bátar eru byrjaðir og hefur veiði almennt verið góð.
 
Eigum við ekki bara að segja að kallinn ( skipper á Andra) sé bara ekki kominn í gang. Og hann finni pödduna í næstu viku.
WP_20141017_001
 
 Hérna sjáum við mynd tekna í gær. En hjá okkur á Andra var sá dagur bara brasl og engin rækja tvö höl alveg tóm og svo önnur tvö léleg. Síðan bilaði stýrið og tók það sinn toll eftir það bilaði hægri höndin á kallinum hætti að hlýða, þá fór undirritaður í stóra fýlu tók veiðafærið inn og hélt heim á leið. Tekið skal fram að hann vara bara í fýlu við sjálfann sig. 
 
 
 
 
 
Verð á innfjarðarrækju er gott um þessar mundir hefur ekki verið svona hátt í langann tíma, innfjarðarrækjan er loksins búin að jafna þorskverð þ.e.a.s á fiskmörkuðum en ef við tökum verðlagsstofuverð á þorski þá er innfjarðarrækja orðin miklu dýrari. Myndi ég setja stórann broskall ef við mætum veiða eitthvað. En fiskifræðingarnir telja stofninn í hættu svo þeir vilja ekki leyfa okkur að veiða nema 250 tonn kemur í okkar hlut á Andra rétt rúm 58 tonn Undecided Svo svona broskall á því vel við.
 

Rækja.

Nú er það loksins orðið ljóst það má veiða Arnarfjarðarræku þetta haustið. Rannsóknarleiðangri Drafnar RE lauk um síðustu helgi. Heildarkvóti í Arnarfirði þessa vertíð er 250 tonn sem er auðvita mikil vonbrigði en sú verðhækkun sem hefur orðið á rækju að undanförnu minnkar skellinn. En þessi bið og þetta endalausa leynimakk hvort við fáum að veiða eða ekki er auðvita komið út fyrir allt. Eins og góð vinur sagði mér þetta er orðið leynilegra en sjálft páfakjörið við fáum ekkert að vita fyrr en reykurinn kemur upp. Já mér finnst þetta orðið fullmikið að því góða.

DSCN3913

 

Svo nú er Andri BA- 101 orðinn klár til veiða það eru komnir níu mánuðir síðan hélt úr Bíldudalshöfn síðast til fiskveiða. Leyfið er auðvita ekki orðið klárt þó græna ljósið sé komið frá Hafró þaðan fer það upp í gamla sjávarútvegsráðnuneytið og þeir verða gefa út reglugerðina svo þegar þeir eru búnir að því þá senda þeir það áfram til Fiskistofu og fiskistofa gefur út sjálft veiðileyfið og aflakvótann. Þetta ferli tekur að lágmarki tvo daga því auðvita verða þessar stofnanir að sína vald sitt og aðeins fara yfir málið og láta okkur hringja til að tilkynna okkur að þetta sé í vinnslu og svo framvegis.

 

 

DSCN3912

 

 

Trollið komið á sinn stað.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Ritstífla í bloggarnum


Já það er mjög langt síðan hefur verið bloggað. En ferðalagi Jakobs er löngu lokið og báturinn kominn í heimahöfn í Reipå í Meloy. Ferðalagið gekk vel eftir að við yfirgáfum Hammerfest mánudaginn 15 sept í skítabrælu, en fórum við innrileiðina og þegar við komum í Loppahavet var bara komið blíða. Tókum við legginn frá Hammerfest til Bodö í einni lotu með þremur stuttum eldsneytisstoppum í Skeröy, Tromsö ( þar var líka hafrið í H/M ) og Lödingen. Í Bodö stoppuðum við yfir blánóttina og héldum svo áleiðis til Reipå komum reyndar við á Sör Arnoy og skoðum nýja fiskverkun. Svo á fimmtudagsmorguninn 18 sept var ferðalaginu lokið og svo flugum við heim frá Bodö á föstudaginn 19 sept með viðkomu í höfuðborginni Osló.
WP_20140916_007
 
 
Hér erum við í blíðskaparveðri í olíustoppi í Tromsö.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Eftir leiðinlega byrjun á ferðalaginu lék veður við okkur seinnihlutann.
WP_20140916_011
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
WP_20140916_009
 
 
Við svona aðstæður gleymir maður öllum brælunum þó svona dagar séu yfirleitt í miklum minnihluta
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Svo nú er Jakob kominn í heimahöfn og skipperinn á Íslandi bara í reiðuleysi.
10438267_699021126846944_575691903007074101_n
 
 
Hér sjáum við Ais staðsetingu Jakobs úr siglingatölvu Bulk Viking . Og þarna liggur hann. 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Reiðuleyið eru nú það að undirritaður er að bíða eftir því hvort hann fái að veiða Arnarfjarðarrækju þetta fiskveiðiárið að sjálfsögðu er það ekki orðið ljóst þó rannsókn sé lokið því Hafró verður að fá sinn tíma til að yfirfara gögn og reikna út hvort það sé óhætt að leyfa okkur að fara að veiða.
Svo það er ekki komið að hreint hvort Andri BA-101 verði ræstur þetta fiskveiðiárið. 
 
IMG_6322
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
PB020052
 
 
Og kannski verður svona rækjuhreinsun ekkert í bráð.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Jakob N-32-ME er þó allavega standby og tilbúinn í slaginn.
WP_20140725_002
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Margir hafa verið að spyrja mig hvað ég hafi þurft að borga fyrir veiðileyfi og kvótann í Noregi. Við félagarnir Jakob og ég erum í svokallaðri gr.2 (grúbbu 2) í Noregi svona svipað og íslenska strandveiðikerfið en með þó miklu rýmra. Þetta er ekki seljanlegur kvóti og ekki get ég leigt hann. Ég fæ þennan kvóta af því ég er skráður fiskimaður í Noregi og í framhaldinu fékk ég atvinnuleyfi frá Norskum stjórnvöldum til að gera út fiskibát. Það er nefnilega þannig í Noregi að enginn getur gert út fiskibát nema vera skráður fiskimaður. Vera á svokölluðu blaði B.
WP_20140819_002
 
 Svona tilkynning kom í blöðunum þegar báturinn var skráður hjá Fiskeridirektoratet ( Norsku fiskistofu) 
 
 
 
 
 
 
 

Ferðalagið hafið.


Já síðasta föstudag kl 0900 lögðum við á stað frá Batfjord áleiðis til Meloy. Var WNW kaldi þegar lagt var á stað og hélst þetta veður nánast allaleið til Honningsvaag svo það voru frekar þreyttir ferðalangar sem lögðu sig í 4 tíma í Honningsvag rétt um kl 0100. Allaleiðina vorum við að segja nú er hann lægja en aldrei lægði hann almennilega fyrr en við vorum komin nánast í höfn í Honningsvag en það var ákveðinn léttir að vera kominn til Honningsvag því þá var Austhavet að baki sem getur verið einn erfiðasti parturinn á leiðinni alveg fyrir opnu Barentshafinu. 
Kl 0500 á Laugardagsmorgun voru landfestar leystir og haldið áfram og nú lék veður við okkur bara sléttur sjór og sólskin var komið til Havoysund kl 0900 þar var tekin olía og svo haldið áfram var meiningin að reyna ná Skjervær áður en hann vindaði en spáin var ljót. Eftir miklar veðurpælingar og veðurkort skoðuð fram og til baka tók Skipper ákvörðun að leita vars í Hammerfest þrátt fyrir blíðuna. Það var greinilega hárrétt ákvörðun því fljótlega eftir að var búið að binda fór hann að vinda og seinnipartinn var bara komið hávaðarok með tilheyrandi hreyfingu hér í höfninni og bara stormur.  Og veðurspá er ekkert góð fyrir daginn í dag ( sunnudag) eða mánudag svo við erum bara veðurföst hérna. Því veðrinu getum við ekki stjórnað sjálf sem betur fer kannski væri bara hryllingur ef veðurfar gengi kaupum sölum eins og t.d kvótinn þá væri nú ekki gott að búa á litlum stöðum eins og Bíldudal.
Ferðalag heimleið 012
 
 
Svo nú liggjum við hérna og bíðum eftir betra veðri.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ferðalag heimleið 011
 
 
SW kaldi kemur hérna inn höfnina með sem gefur leiðinda hreyfingu hérna við smábátabryggjuna.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Þó Jakob sé gangstrókur áttum við ekki roð í þennan í gær flaug fram úr okkur.
Ferðalag heimleið 002
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ferðalag heimleið 003
 
 
en ferðamennirnir veifðu okkur þegar hann flaug framhjá.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
  
 
 
 
 
 
 Framtíðarspáin er góð fyrir þriðjudag og miðvikudag svo ef allt gengur eftir planinu gætum við lagt af stað eftir hádegi á mánudag þá gætum við verið komin fram á fimmtudag en að sjálfsögðu veit maður aldrei margt getur breyst.
 

Nú er það " heimferð "


Já nú er búið að hlaða Jakob og við erum klár til að sigla. Var síðasta sjóferð á mánudaginn svo voru þrjár sjóferðir í síðustu viku, alla helgina var svo verið að klava ( stokka upp línuna) og þrífa hana. Fékk ég góða hjálp því frú Sólrún kom út að hjálpa mér og ætlar að sigla með mér suður eftir.Hafa þetta verið langir dagar og má segja að þegar þú ert á línu ertu aldrei verkefnalaus eða eins nojarinn segir " man er aldri arbeidslös naar man jobber med line " 
Heimferð Jakob 001
 
 
Búið að hlaða Jakob með öllu dótinu línan kominn í lestina og fleira og fleira. Það eina sem er í veginum að sigla er veðrið en það spáir illa og ekki hagstæð vindátt vestanátt svo það er ekki hagstætt fyrir okkur að koma okkur fyrir Slettnes sem er aðal farartálminn hérna í Austur finnmark. En eftir að við erum komin til Honningsvaag er það næstum innan skerja það sem eftir er alla leið til Örnes. Eins og ég sagði er veðurspáin slæm sérstaklega fyrir Vestur Finnmark svæðið og eins og þetta lítur út verður ekki brottför fyrr en á föstudaginn. Svo við verðum að bara taka þessu rólega og anda með nefinu.
 
 
Þessi sumarvertíð hefur verið eins og nojarinn segir brukbart eða eins og við myndum segja slapp fyrir horn ekki varð maður nú ríkur á þessu en öll  ánægjan vegur peningabaslið upp og nánast í fyrsta sinn á mínum sjómannsferli að þurfa ekkert að spá í kvóta eða kvótaleigu heldur meiga bara fiska hvort það sé ýsa, ufsi, karfi eða þorskur. Svo núna er það bara kaupa vikinglotto og vona að efnahagurinn vænkist.
 
Heimferð Jakob 002
 
 
Svo nú er það bara heimamið og landa á Sör Arnoy en þar verð ég að uppfylla ákveðnar skildur þar sem það sveitafélag var svo elskulegt að hjálpa mér peningalega þ.e.a.s fæ frá þeim tilskudd ( styrk og víkjandi lán ) vegna kaupanna á bátnum.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Helgarfrí ekki pantað.


en línan liggur í sjónum og er vonandi að fiska, er á stefnuskrá að fara út á morgun sunnudag og draga. Eftir veðurspánni verður það ekki fyrr en seinnipartinn eða annað kvöld en við sjáum til í fyrramálið. Það er nú farið að styttast í þessari sumarvertíð hérna á Jakob og erum við farnir að huga að heimferð ég hugsa það séu ekki nema 4 sjóferðir eftir 3. með polarlinu og svo ein ferð með botnlínu svo er meiningin að reyna fiska ufsa og ýsu heima þ.e.a.s í Meloy. Reyna það í einn og hálfann mánuð en svo verður vonandi búið að leyfa rækjuveiðar í Arnarfirði og þá tekur maður frí og fer til Íslands í Arnarfjörðinn að veiða rækjur. ef allt fer eftir planinu ættum við að vera komnir niðureftir um miðjan sept. 
Batfjordbruket góðum haustdegi 001
 
 
Löndun á föstudaginn en þá var lélegt hjá okkur félögum rétt tæpt tonn á 8 bala. Svo vikan var nú ekkert sérstök rétt rúm þrjú tonn í þremur ferðum. Á myndinni er Solöy að landa var hann með 1200 kg á tuttugu bala af flotlínu.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Batfjordbruket góðum haustdegi 006
 
 
Eins og ég hef sagt fyrr hefur veður leikið við okkur en samt farið að kólna og maður skynjar að haustið er ekki langt undan.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Við erum ekki margir íslendingarnir hérna en núna erum við að ég held sex hérna í Batsfirði en svo eru nokkrir bátar hérna sem eru smíðaðir heima en þeir eru allavega fimm hérna núna.
Batfjordbruket góðum haustdegi 003
 
 
 
 
Hér sjáum við einn Ingvaldson smíðaur hjá seiglu á Akureyri.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Já það er orðið rólegt hérna og núna er bara beðið eftir næstu vertíð haustvertíð norður á bankana hérna fyrir norðan okkur en hann Jakob er of lítill til að taka þátt í því. Það eru langir róðar kannski sólarhringur í stím eða lengur í róðri og yfirleitt fara bátarnir með 60 til 70 bala með sér en fiskerí hefur verið mjög gott síðustu misseri  hafa bátarnir komist upp í 20 tonn á 60 balana. Þá mætta lofotenbátarnir aftur hingað uppeftir og eru hér til jóla þá er farið heim og á nýju ári tekið á móti fiskinum þegar hann kemur í Lofoten og þá ætlum við á Jakob einnig að vera tilbúnir.
Batfjordbruket góðum haustdegi 005
 
 
 
Hérna sjáum við bankfiskebát af eldrigerðinni en svona voru bátarnir sem réru út í Barentshafið á haustin og reyndar eru þó nokkrir svona bátar eftir. 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Jón Páll Jakobsson

Höfundur

Jón Páll Jakobsson
Jón Páll Jakobsson

Er fæddur í Reykjavík rétt fyrir gos en uppalinn á Bíldudal, Útskrifaður frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1993 og hef starfað við það síðan, er giftur og á 4 börn. Er forfallinn Aston Villa stuðningsmaður.

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 1000012950
  • Messenger creation FA854288-631B-469C-BE10-7BEBDB104BDF
  • 1000012945
  • 1000012965
  • 1000012866

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband