17.12.2011 | 16:41
Rækjuveiði verður örugglega leyfð
eða svo segir Hlynur Björnsson Vélstjóri á Ýmir BA-32. sskr 1499. En þeir voru í seiðarannsókn fyrir hafró í síðustu viku og hann var svo bjartsýnn að hann sagði þetta við mig og ég trúi honum.
Rannsókninni lauk á fimmtudaginn svo við gætum fengið að vita þetta fyrir jól nema hafró sé farin í jólafrí. Það væri kærkomið að hreyfa bátinn þ.e.a.s Andra BA-101 en hann hefur legið óhreyfður síðan 28. janúar síðastliðinn ef frá er talin ein ferð suður í Stykkishólm þar sem hann var tekin í slipp.
Hér sjáum við Svan Þór Jónsson tilbúinn í löndun úr Andra BA-101 í mars 2009 er þetta fyrsta löndun bátsins á Bíldudal nánar tiltekið 23.03.2009.
Einbeittur á svipinn.
Þarna ríkti mikill bjartsýni hjá okkur Hafró búin að leyfa 500 tonna kvóta og við máttum veiða 125 tonn. Svo bjartsýnir vorum við að við ákváðum að skipta um spil og allt glussakerfi í bátnum og setja tog og dragnótartromlu um borð. En þá komu fyrstu neikvæðu fréttirnar kvótinn var skorinn niður úr 500 tonnum niður í 300 tonn og máttum við veiða 75 tonn. Svo það varð mikið reiðarslag fyrir reksturinn þegar ný var búið að fara í svona miklar fjárfestingar. Enginn teikn voru á lofti að stofninn væri á niðurleið. Svo á síðustu vertíð var kvótinn 400 tonn og fengum við að veiða 100 tonn. Svo í ár hefur ekki verið gefið út aflamark í Arnarfjarðarrækju vegna seiða í firðinum, og við vitum að stofn rannsóknin í haust eykur ekki bjartsýni okkar á stórum heildarkvóta en við vonum það besta.
En við skulum vona að kvótinn verði stærri heldur en þessi mynd gefur til kynna
Hey þetta er nú ekki skipstjórinn á Andranum nei nei þetta er nú gamall rækjusjómaður úr Arnarfirði sem man tímana tvenna, að upplifa rækjufílinginn svona rétt fyrir elliheimilið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2011 | 08:26
Verkefni lokið og kominn til Íslands
Já föstudaginn 2. des fengum við fyrirmæli frá Statoil að okkar þjónustu væri ekki lengur krafist á Troll svæðinu og við ættum að halda heim á leið.. Svo seinnipartinn á föstudaginn 2. des settum við stefnuna norður til Örnes. Fyrst settum svið stefnuna á Stad og svo þaðan á eyjuna Smöla og þaðan settum við stefnuna innan skerja alla leið til Örnes vorum við í heimahöfn á sunndagskvöld þann 4. des fengum við mjög gott veður ef frá er talið fyrstu 14 klst frá Troll til Stad. Þar var leiðindarbræla var reyndar lens en við fengum alveg samt að finna fyrir því. Strákarnir á Polar Atlantic sem voru í sama verkefninu en vorum mikið lengra út í hafi á svæði sem heitir Vigdis voru ekki eins heppnir það var styttra hjá þeim heim en þeir voru samt 14 tímum á eftir okkur skipstjórinn þar tók ákvörðun að halda fyrst í stað í Norður. Algjör klaufaskapur hjá honum líka norskur en ekki íslenskur
(má ekki segja svona).
Já verkefni sem átti að taka 10 daga varð að 8. vikum svona getur þessi bransi verið og til gamans var. Skipið sem við vorum að vinna með frá Subsea7. Skandi Seven búin að hafa áhafnarskifti þrisvar á þessu tímabili, en þar sem við reiknuðum aldrei með svona löngu verkefni var ekkert skipulagt að hafa nein áhafnarskifti um borð hjá okkur.
Þarna er norska ströndin að koma í ljós á Laugardagsmorgun og við komnir fyrir Stad og bara orðinir nokkuð sáttir á heimleið.
Að nálgast Brönnoysund alltaf gaman að sigla þarna í gegn og sérstaklega þegar svona gott veður er en þarna erum við að nálgast brúna þarna er mjög þröngt og ekki mjög djúpt og til dæmis ekki hægt að mæta Hurtigruta þarna.
Rétt áður en við fórum undir brúna sveigði þessi trilla upp að okkur og fylgdi okkur svo í gegnum sundið.
Hérna sjáum við svo að ekki er langt í húsin þegar sigld er í gegnum rennuna inn til Brönnoysund og hlýtur að vera frábært fyrir bátaljósmyndara að eiga heima þarna og ná allri skipatraffíkinni sem fer þarna í gegn.
Ekkert jafnast við að eiga sína eigin bryggju en þarna er eyja sem er í sjálfum sundinu og þaðan eru þeir Bradersen bræður Steinar og félagar en Steinar komst á stórþingið á sínum tíma.
Komnir í gegnum Brönnoysund og Helgelandkysten blasir við af þessum er Nordlendingar mjög stoltir.
Frá Brönnoysund til Sandnessjoen fengum við þessa báta í návígi.
Rockall danskur uppsjávarbátur.
Kominn framhjá. Flott skip.
Global I renndi sér framhjá okkur.
Og svo að lokum Hurtigruta Midnatsol sem kom skömmu seinna.
Ég flaug svo heim til Íslands þann mánudaginn 5. des. Fyrst fór ég keyrandi frá Örnes til Bodö og flaug þaðan til Oslo gisti á hóteli við Gardamoen (flugvöllinn) og svo flaug ég til Kaupmannahöfn og þaðan til Keflavíkur og gisti eina nótt í Reykjavík og flaug svo frá Reykjavík til Bíldudals og var ég kominn heim á miðvikudaginn 7. des hjá frekar langt ferðalag. Og nú er bara bíða og sjá hvort verði leyft að veiða rækju hérna í Arnarfirði. En í næstu viku fer fram rannsókn um hvort það verði leyft eður ei..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.12.2011 | 09:14
Leitað vars.
Í gærkveldi tók ég þá ákvörðun í samráði við Subsea7 að leita vars og fengum við leyfi kl 2130 til að yfirgefa varðstöðu við TrollC. "permission to seek shelter". Ástæða að við fengum að yfirgefa svæðið var stormur sem er að herja á í þessum skrifuðu orðum . Við héltum í var inn í Sognefjörð sem er langur og djúpur (veit ekki hvort hann sé lengstur Norskra fjarða allavega ekki langt frá því) við erum núna á ca 600fm dýpi og eigum eftir ca 70 sjm inn í botn og erum búnir að sigla svona ca 16 sjm. Reikna með að halda út á miðin í kvöld og vera kominn í varðstöðu um miðnættið sýnist að það ætti að ganga upp.
Við fengum smá jákvæðar fréttir af steinskipinu þ.e.a.s skipinu sem á að hylja kapalinn sem við erum að vakta, skipið er að lesta grjóti í nágrenni Bergen og er svo væntanlegt eftir það það er verið að koma ca 27.000 tonnum af grjóti um borð í það. þarf nokkur vörubílahlöss í það.
En hér sjáum við mynd af steinskipinu Stornes sem á að gera þessa vinnu það er 175m langt og 26 m breitt. það getur unnið niður á 2000m dýpi. Slaka þeir röri niður og fara svo steinarnir í gegnum rörið niður á botn akkúrat þar sem þeir eiga að vera. 27.000 tonn í ferð. Það er Hollenska fyrirtækið Van Oord sem á skipið kemur ekki á óvart að hollendingar eigi svona skip því mikið þarf að dæla til efni í Hollandi.
Hér sjáum við svo Stornesið lesta einhvers staðar
Svona lítur það út tómt. Stornes er smíðað í Kína 2010 það er með 2X 4000 kw vélar og gengur ca 15 sjm það ristir 10,7 m en lestað tæpa 15 metra. í áhöfn eru 56
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.11.2011 | 10:52
Bræla og aftur Bræla.
Já það er búið að vera bræla hjá okkur síðan við komum út á sunnudagsmorgun, og hefur blásið hressilega frá SA til N svo sjólagið er alveg frábært. Er óhætt að segja að Polarhav sé búin að velta eins og skopparakringla síðustu tvo dag vindurinn komið frá t.d í morgun var S stormur og tíu mín seinna var kominn Vestan stormur. Svo við höfum alveg fundið fyrir þessu og ekki alltaf sem farið hefur vel um mann í kojunni en svona er þetta bara og ekkert annað að gera en að taka þessu.
Þegar þetta er skrifað er ágæt veður og samkvæmt veðurspá gætum við fengið 3 til 4 tíma með ágætu veðri það var hressandi að kíkja út á brúarvæng áðan án þess að eiga á hættu að fá sjógusu yfir sig. Við verðum bara njóta þess meðan það er. Veðurspá er ljót framundan og gæti svo farið að við verðum að leita vars á ný(gæti þá keypt jólargjafir í H/M). Það grátlega í þessu öllu saman er að í öllu þessu óveðri seinkar bara verkefnið því steinbáturinn sem á að hylja kapalinn getur ekki unnið við þessar aðstæður svo því miður held ég að enginn vinna hafi farið fram í þessari viku, maður er farinn að ímynda sér jól hérna
. En vonandi verður þetta búið á tíma þ.e.a.s. ekki seinna en 16.des.....
Með því betra sem við höfum séð í þessari viku . Ég hélt að veður yrði svona skaplegt fram eftir deginn en bara á meðan ég var skrifa þetta æsti hann sig upp og er bara komin þessi yndislega bræla frá vestri.
Veður bara með betra móti í morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2011 | 09:31
Leitað í var og fleira.
Um hádegið tók Statoilmarin þá ákvörðun að Guard skip og þau skip sem ekki nauðsynlega vera úti á sjó ættu að leita vars. Svo kl 1700 á fimmtudaginn yfirgáfum við svæðið með miklum söknuði og leituðum í höfn og varð Bergen fyrir valinu. Komum við til Bergen kl 0400 á föstudagsmorguninn. Var ætlunin að taka vistir og olíu í Bergen en eitthvað vandamál var að fá afgreidda olíu þarna á föstudeginum svo við máttum til Florö (70 sjm sigling). Og lögðum við á stað kl 0400 á Laugardagsmorgun til Florö og sigldum við í fínu veðri nánast alla leið innan skerja komum við Florö um kl 1600 en rétt áður fengum upphringingu frá Statoilmarin að við ættum að koma okkur aftur út. Svo við tókum olíu þarna í alveg grenjandi rigningu hún var svo mikill að þó við værum í sjógöllunum þá urðum við blautir. Við fórum svo frá Florö í gærkveldi og erum komnir á svæðið í drullubrælu og haugasjó svo þetta er bara skemmtilegt.
Á leiðinni til Florö eins og sjá má er nú ekki hægt að kvarta yfir veðrinu þarna, en inní þetta sund erum við að fara milli tveggja eyja veit ekki hvað heita.
Ekki langt í land hægt að hoppa í land allavega hefði Gísli Súrsson klárað það.
Komnir framhjá.
Hér sjáum við Polarfront snemma á föstudagsmorgunin í Bergen.
Betri mynd tekin seinna um daginn. Polarfront hefur nú sennilega lent í vondum veðrum því þetta er gamalt veðurskip sem var staðsett úti norska hafi 66* N og á 2* E. Það var byggt sem veðurskip 1976 og var í drift út árið 2009 og var lengi vel eina veðurskipið sem var í drift. Það var að jafnaði 340 daga á sjó og voru áhafnarskifti mánaðarlega og voru þá einn til tveir dagar í höfn. Og í byrjun okt á hverju ári fór skipið í slipp og var þá að jafnaði í eina viku. Í áhöfn voru 16 og voru 8 á hvorri vakt. skipið hélt sig alltaf á svæði sem 1X1 gráða. Hugsa að á þessu skipi hafi verið margir dásamlegir bræludagar.
Í dag er skipið Guardskip í eigu færeyskra aðila og er þetta víst mjög gott skip eyðir ekki miklu eldsneyti enda byggt til að liggja úti hafi á sama staðnum í 340 daga á ári. Engir færeyingar eru um borð heldur eru 3. rússar og tveir pólverjar og þegar ég spurði um launin þau voru góð á rússneskann mælikvarða.
Hér sjáum við sjómælingaskip í eigu norðmanna aðeins stærri heldur en Baldur okkar og svo er hann með lítinn 11m bát til að kanna grunnslóðina.
Hydrograf heitir hann man bara ekki hvað sá litli heitir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2011 | 09:30
Komið ágætt veður.
Já sennilega lognið á undan storminum, því hann spáir ekki vel og á að fara vinda strax í kvöld. Og vera leiðindaveður næstu daga eða alveg fram á sunnudag.
Ekstrembølger kan stenge oljeplattformer

(Illustrasjonsfoto)
Foto: Kjetil OldereidePå Haltenbanken kan bølgetoppene bli 30 meter høye.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2011 | 11:07
Bræla og aftur bræla
Og ekkert annað í kortunum fyrir næstu daga.
Já nú eru svona 18 m/sek og fer upp yfir 22 í kviðum það er sunnanvindur og sem betur fer ekki mikill sjór en við erum búnir að slóa í alla nótt og gerum enn, höfum við farið 3,4 sjm á næstum 16 tímum og erum við aðalvélina (callesen) hálflestaða. En hann á að fara snúa sér í vestanátt og síðan kannski norðvestan og þá stækka öldurnar og eru hann nú að spá 10 til 13 m ölduhæð á þessu svæði á föstudaginn . Svo við verðum bara bíða og sjá. Öll skip eða næstum öll eru búin að koma sér í land og eru því bara við hérna og tvo önnur skip sem hafa ekki heimild til að fara Havila Troll og Skandi Sotra. Öll þessi stóru eins og Skandi Seven sem eru í neðarsjávarvinnu eru farin í land. Þessi bræla kemur sér mjög illa fyrir okkur hérna um borð því verkefninu bara seinkar og fengum við email í gær sem sagði okkur að búið væri að lengja verkefnið til 2. des sem byrjunardag og 16. des sem lokadag sem sagt á tímabilinu 2.des til 16.des verðum lausir (7-9-13).
. Held ef við verðum hérna til 16.des verði matarbirgðir orðnar mjög litlar og lítið annað en vatn,Haframjöl og hrísgrjón, því þegar við fórum frá Bergen tókum við kost fyrir 15 daga + vikuseinkun en Subsea7 sagði okkur þá að verkefnið yrði lágmark 10. dagar en hámark 15. dagar. hefðum ekki átt að taka mark á þeim því ekkert hefur nú staðist hjá þeim blessuðum síðan við fórum frá Örnes 15.okt í 10. daga verkefni.
. En eins og einhver sagði það eru smá bjartahliðar á þessu og þær eru money money.
Já það jákvæða eru að sjálfsögðu maður fær borgað fyrir þetta þó stundum manni finnst launin ver frekar fátækleg þegar meður veltist hér um passandi einhvern kapall sem liggur á botninum.
Mikill traffík var í kringum borpallana í gær mikið skipum sem komu með vistir svo sem vatn,oliu sement og fleira, verður sennilega ekki hægt að koma upp að þeim næstu daga nema í nauðsyn.
Síðustu dag hefur Stril Merkur verið hérna í kringum borpallinn West Venture. Starfsmenn hafa verið að vinna utan á borpallinum og var því Stril merkur til taks ef eitthvað óhapp yrði t.d ef menn myndu falla í sjóinn og svo framvegis t.d misstu þeir fimm tunnur í hafið og þá var Stril Merkur fljótur að pikka þær upp.
Hér sjáum við skipið Stirl Merkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2011 | 10:27
Allt gengur sinn vanagang.
Já tíminn flýgur áfram hjá okkur eða svoleiðis. Samkvæmt plani eigum við að vera lausir hérna 26.nóv en hver veit gæti orðið seinna ekki fyrr. Það var lítið talað um landsfund sjálfstæðismanna hérna í talstöðinni yfir helgina sem er auðvita skrýtið hélt að hann væri allstaðar þekktur.
Við erum með eitt skip á slóðinni sem við verðum að hafa augun með en það er seismicskipið Songa Spirit og fylgir honum guard vessel Faxaborg (sem er gamla Faxaborgin frá Rifi held að þar áður hafi það verið Skarfur frá Grindavík).
Hér er Svo mynd af Faxaborg Guardvessel.
Songa Spirit má ekki koma nærri þeirri vinnu sem Subsea7 er að vinna að svo við verðum að vera vakandi yfir þessu. en næst hafa skipin komið 8,4 sjm frá okkar staðsetningu og ég á frekar von á því að þeir munu ekkert koma nær en hver veit svo við verðum að vera tánum.
Við höfuðóvininn fiskiskipið þá höfum við ekki haft neitt fiskiskip á veiðum fyrir 16nm frá okkar staðsetningu.
Annars höfum við bara reynt að borða góðann mat og hafa fínann desert með.
En svona verður nú ekki dag því það verður venjulegar kjötfarsbollur með gömlu kartöflum og mauksoðnu grænmeti.
Veðurspáin er slæm fyrir næstu viku á að blása á okkur upp í liten storm eða 22 m/sek með leiðindasjólagi og skemmtilegheitum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2011 | 07:56
Allt gengur eins og á að ganga.
Allt gengur vel hérna hjá okkur. Skandi Seven kom aftur til okkar í gær og var að vinna hérna í tæpann sólarhring svo fór hún aftur út á Vigdis svæðið og síðan fara þau í áhafnarskipti en það eru 89 manns um borð og sennilega er ekki skipt um alla 89 í einu ætli því sé ekki skipt niður í nokkur holl, ekkeert bólar á áhafnarskiptum hjá okkur enda vonandi ekki nema rúm vika eftir, en er reyndar að spá leiðindaveðri á mánudag og þriðjudag gæti seinkað verkefninu en við vonum nú samt ekki.
Við fengum heimsókn í fyrradag held ég en þá komu 3. menn frá borppallinum Songa Trym að kíkja á okkur í blíðunni.
Nú er svona kaldaskítur en fer vel á því á rekinu við rekum svona í kringum 1 nm á klukkustund og er látið svona reka í 3 til 4 klst og svo kippt til baka getur ekki verið einfaldara. Enginn fiskibátur hefur verið á veiðum innan 24 sjm hjá okkur svo mjög lítið að gera.
Sólin að koma upp í gærmorgun
Við höldum að hásetinn hafi sett met í gær en þá horfði hann á einhverja framhaldsmynd í tölvunni hjá sér samfellt í 16 tíma án þess að taka sér pásu eða gaf sér tíma til að borða morgunmat. Frá átta um kvöldið til tólf á hádegi líka kláraði hann fyrstu seriuna. Í nótt gafst hann upp kl 0700 var orðinn eitthvað skrýtinn ú hausnum og fékk að leggja sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.11.2011 | 07:50
Blíða og sléttur sjór.
Já nú er komið veður eins og þau gerast best til sjós. Líka voru eldaðar svínakótilettur í gærkveldi og ís í eftirrétt með vanillusósu og súkkulaðisósu. Allt gengur vel engir fiskibátar nálægt okkur svo vaktirnar eru mjög auðveldar. Hér höfum við internet aðeins öðruvísi heldur en þegar við vorum úti á Skarv, en það getur nú verið gott að hvíla sig á netinu af og til. Samt virðist þetta vera orðið alveg bráðnauðsynlegt fyrir suma og ég held að t.d nýi hásetinn gæti átt erfiða daga ef við hefðum ekki netið. Veðurspáin er góð fyrir næstu 48 klst en þá á hann að fara blása af suðri en ekki nein alvöru bræla held ég bara svona kaldaskítur (eða fræsingur ).
Svona leit þetta út í morgun þegar sólin var að byrja koma upp.
Borpallarnir Trollc Stena Don og svo lengra í burtu sést í TrollB.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jón Páll Jakobsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar