Færsluflokkur: Bloggar

Kominn til Örnes

Já ég er kominn til Örnes og um borð í Polarhav þar sem hann liggur á sama stað og þegar ég skildi við hann fyrir 6 vikum og túrbína jafn biluð en aðeins búið að mála meira. Skil ekki alveg forgangsröðina hjá honum Torleif í augnablikinu. Svo mér sýnist að þessi bátur er ekki að fara á veiðar neitt á næstunni. Svo það verður rólegt framundan. Allt er eins hérna nema Holmvag er kominn hingað í heimahöfn og verður það örugglega alveg fram á næstu vertíð.

En þó það sé rólegt yfir Skotheimsvik útgerðinni þá er kominn nýr báturinn í sveitafélagið síðan ég fór heim og er hann mjög kunnugur þó sérstaklega fyrir okkur Bílddælinga.

Örnes júlí 2011 011Já Bríkin hans Gulla er kominn hingað og farin að fiska rækju hérna í fjörðunum. Spjallaði ég aðeins við eigandann en þeir voru að drífa sig á sjóinn. Eru þeir búnir að vera á veiðum í tvær vikur eftir að hann fékk hann en fór hann með hann í slipp þar sem honum var breytt fyrir rækjuveiðarnar. Fiskaði hann fyrir 150 þúsnd norskar fyrstu vikuna. Svona ca 35 þúsund á mann en þeir eru tveir á (700 þúsund). Búið að vera mjög góð veiði á norskann mælikvarða. Já Bríkin sem var smíðuð til að veiða rækju í Arnarfirði er kominn í sama hlutverk í Noregi.

 

 

Örnes júlí 2011 004Aldrei man ég eftir því að Bríkin væri með svona stóra hlera heima þegar hún mokaði um Arnarfjarðarrækju en þetta er 120" Tyboron. En eigandinn er mjög ánægður með togkraftinn og segir þá draga mjög stórt troll miðað við stærð á bát, en hér má ekki hafa bobbinga undir á innanfjarðarrækju. Þeir sjópakka rækjunni þ.e.a.s. sjóða hana og pakka henni í frauðkassa beint í smásölu.  

Búið er að breyta bátnum dálítið setja nýja trolltromlu og setja vinnslulínu fyrir rækju. Báturinn á að vera gerður út á rækju allt árið.

 

 

 

 

Örnes júlí 2011 012Svo er bara haldið á miðin aftur og komið svo í fyrramálið með nýjan skammt af rækju. En þeir landa á hverju morgni og er svo rækjan flutt með hurtigrutunni til Tromsö. 

 

 

 

 

 

 

Jæja læt þetta vera gott í bili frá Noregi. 


Á flugvellinum í Bödo

Já nú er ég staddur á flugvellinum í Bödo og reyna að láta tímann líða´, fór á stað frá 'Islandi kl 12 í dag og eftir 4 tímabið á Gardenmoen eftir flugi til Bödo þá verð ég nú að bíða í 3 tíma eftir að taka ferjuna frá Bödo til Örnes sem er loka áfangastaður í þessari ferð. Flugvölllurinn lokar kl 0100 svo ég verð að bíða niður á höfn í klukkutíma eftir ferjunni en það ætti ekki að drepa mig. Svo ég læt þetta vera gott í bili og blogga meira síðar.

Góð eða slæm þróun

Já þetta þekkjum við frá Íslandi og hverjar afleiðingarnar hafa verið fyrir mörg sjávarþorp á Íslandi. Ég var í Danmörku fyrir nokkrum árum , þegar  þetta var að byrja í Danmörku og þá var strax farið að tala um að verðið væri orðið óeðlilega hátt. Og þeir sem höfðu bestann aðgang af lánsfé voru með forskot á hina, ég fékk bara Déja Vú þarna beint í æð. Og margir sem skuldsettu sig þarna upp í rjáfur eftir 2007 þarna úti eru í miklu basli í dag vegna þess að veiðiheimildir voru verðlagðar allt of hátt og veiðar á heimildunum standa ekki undir rekstri bátsins.


mbl.is Danskir kvótabarónar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langt á milli skrifa núna.

Já nú er ég kominn til Íslands fór beint á strandveiði á Mugg BA-102 sskr 1827. Lendi í keflavík 31. maí og keyrði beint vestur og var kominn út á Rif (mið grunnt frá Kópanesi ) þann 1. júni og byrjaður að skaka í leiðinda norðan kalda, Svanur Þór fór með mér og má segja að fyrsti dagurinn hafi verið veltingur og smá sjóveiki hjá sumum. En við náðum þó að berja upp skammtinn sem er 774 kg af þorski miðað við óslægðann fisk sumir fiskarnir voru reyndar frekar stuttir í annan endann. Og eftir þennan róður var bara komið helgarfrí og sjómannadagur og stór afmæli hjá konunni. En mánudaginn 6. júni og var lagt á stað kl 0800 og haldið út á rif og síðan út fyrir Rifið ( ca 5 sjm frá Kóp ) og þar var nóg að fiski en var hann frekar smár en þar var skammturinn kláraður þennan daginn. 7. júni var ákveðið að fara lengra út og vaknað kl 0430 og lagt í hann kl 0530 og stefnan sett á sandblett sem heitir Sandnúpur (ca 8 sjm frá Kóp) Vorum við feðgar rúma 3 tíma að sigla en Mugggur gengur þetta 7,5 til 8 sjm á klukkustund. Þegar út var komið fengum við strax fisk og vorum lagðir af stað 4 klukkustundum seinna með skammtinn af mjög góðum fiski. Vorum við rúma 10 tíma í ferðinni og af því fórum 6 tíma í siglingar.Daginn eftir var stefnan sett á svipaðar slóðir og gekk svipað að fá skammtinn. Síðan þann 9 júni var frekar leiðindaveður svo ekki var hægt að fara út úr firði og var því hangið við Dalsdalinn en það er ysti dalur Arnarfjarðar norðanmeginn og þar var þrjóskast við og náð að berja upp helminginn af leyfilegum afla. Þetta varð síðasti dagurinn á strandveiðinni á svæði A í júní fengum við að róa í 5 daga og náði ég að fiska 3,4 tonn á þessum fimm dögum. Fór ég að meðaltali með 75 ltr af olíu í ferðina. Ég er auðvita bara afleysingarmaður í þessari strandveiði leysa kollega minn af vegna veikinda. En handfæraveiðar eru mjög skemmtilegar og þær snúast ekki um arðsemi eða bjarga þjóðarbúinu heldur um sjálfsögð mannréttindi að meiga að fara á sjó og veiða fisk og fénýtta hann. Handfæraveiðar eru ekki ógn við fiskistofna og þú getur aldrei eytt neinum stofni með handfærum svo í mínum haga þarf ekki að takmarka handfæraveiðar.Napp 008 Sett hérna norska vertíðarbáta sem eru komnir í sumarfrí búnir með kvótann. Þeir eru flottir þessir norsku timburbátar sem þeir eiga og eru ennþá að gera út og halda þeim við.Napp 006                                                                                                                        Hér sjáum við annan þetta er snurvoðabátur þeir eru flottir þessir trébátar held að þeir séu smíðaðir úr furu er samt ekki viss.Þessi fer aftur á stað í endaðann þennan mánuð að fiska ýsu. En ýsuveiðar eru frjálsar hérna vegna þess að ýsukvótinn hefur ekki náðst undanfarin ár það eru því ekki almannahagsmunir að takmarka ýsuveiðar því kvótinn hefur ekki náðst undanfarin ár!

Lítið um vera hjá okkur.

Örnes 30 maí 2011 012Ég vaknaði snemma og svona er lognið í Örnes í dag.

Annars er bara rólegt hjá okkur búnir með málinguna sem við notum inni og ekki hefur verið hægt að mála utandyra því það hefur verið fínn úði eða rigning svo ekki hefur verið hægt að mála mikið utandyra. Við vorum að rústberja og skrappa í gær og fengum kvörtun frá nábúanum að svona mætti ekki gera sunnudegi fólk vildi fá að slappa af og ég spurði hann hvort einhver lög í landinu sem bannaði þetta á sunnudegi þá brást hann versti við og rausaði einhverju út úr sér sem ég skildi ekki svo við bara hættum að ergja manninn.

En ég fer til Bodö í dag og svo flýg ég snemma á morgun til Osló og svo heim til Íslands og lendi í Keflavík kl 15 að íslenskum tíma.

Örnes 30 maí 2011 018Þetta er bara farið jafnast á við Bíldudal lognið hérna, þessi mynd er tekinn af skutnum á Polarhav og upp í fjöllin. Svona segja "heimamenn" að veðrið sé alltaf í Örnes á sumrin.

 

 

 

 

 

noregur 2011 april 026Hér sjáum við Björnson draga netin í skítabrælu og rigningu fyrir mánuði síðan smellti af honum mynd og hún kom út. Eitthvað heillandi við þessa mynd þó hún sé greinilega ekki tekin af atvinnuljósmyndara.

 

 

 

 

 

noregur 2011 april 028Þarna sjáum við grunnbrot en þarna er ég að sigla inn í skerjagarðinn í námunda við Rörvik fyrr í vetur ég er sjálfur á ca 60 fm dýpi en allt í kring er bara örgrunnt og boðar eins og þessi sem brýtur á. Veit ekki hvað er langt í þetta brot en það er ekki langt.

 

 

 

 

 

Noregur 2011 003Hér sjáum við Kato sigla frmhjá Rörvik í apríl á leiðinni til Röst að fiska þorskvótann sinn, Kato er netabátur og fiskar alveg heilt helvíti er mjög lunkinn við ufsann og fáir sem standast honum snúning þegar að ufsaveiði kemur en þetta er mikill galeiða dregur mikið af netum svo strákarnir á honum Kato vinna fyrir laununum sýnum það er alveg ljóst. Á sumrin veiðir hann hrefnu eða hann hefur allavega leyfi til þess. Við vorum að fiska með Kato á Sklinnabankanum í fyrra og þá vorum við með tæp 380 net en hann var 680 net við lönduðum ca 60 tonnum eftir vikuna hann var með 120 tonn. Hann kom ekkert á Sklinnabankann í ár tók tvo flotta túra á Trænabankanum.

Napp nr 2 014Og að lokum hér sjáum við Lofoten í fjarska rétt aður en sólin sest. Það er svona dagar sem við sjómennirnir gleymum öllum brælunum og puðinu sem hefur fylgt brælum kannski dag eftir dag. Eins og einn sjómaður sagði hérna þegar fer að vora og dagurinn lengist og veðrið batnar þá endurnýjast maður og það sé ekki að ástæðuljósu sem flest sjómannsbörn koma undir á vorin eða snemm sumars. (á ekki við mig á kannski bara við norska sjómennWink.)


Nú liggjum við í Örnes.

Já við komum snemma á 25.maí til Örnes og byrjuðum strax að opna túrbínuna og það varð nánast strax ljóst að legur væru farnar og olían öðru megin þ.e.a.s afgasmegin var dökk og lyktaði af sóti. Við þessar fréttir varð auðvita ljóst að túrbínan þarf upptekt en ekkert meira hefur skeð og útgerðarmaðurinn vildi ekki að við byrjuðum að losa og fjarlæga túrbínuna hann er að hugsa málið  vildi geta sett í gang,en að öllum líkindum endar túrbínan í Tromsö í upptekt.

Á meðan á þessu öllu hefur staðið hefur áhöfnin verðið að skrappa og mála bátinn að innan og gengur það verk vel, lítið hefur verið hægt að gera að utan því af og til hefur verið rigning og verður dagurinn í dag sennilega fyrsti dagurinn sem ætlar að haldast þurrHappy.

En þar sem ég mun fara á þriðjudaginn verð ég að öllum líkindum ekki viðstaddur þegar túrbínan verður tekin.

Polarfangst 001Hér sjáum við Polarfangst snurvoða og nótabátur byggður úr plasti í Svíþjóð. Þetta er Ísbrjótur svo það er mjög þykkt í honum plastið, var hann notaður sem slíkur í Svíþjóð. Hvalbakurinn og yfirbyggingin að aftan stýrsihúsið og fleira er allt úr plasti en yfirbyggingin sjálf yfir dekkið er úr áli. Þetta er algjör gangstrókur og lítið mál að setja hann í 14 sjm. En þetta er orðinn frekar sjúskaður bátur og hefur verið eigandum dýr mikið um bilanir og svoleiðis ástand núna er hann útbúinn að snurvoð og er búinn með kvótann. Hann á síldarkvótann eftir annars er hann til sölu og hafa tveir aðilar komið að skoða.

 

Noregur Maí 020Hér svo sjálfur Polar Atlantic gamall beitingavélabátur hét lengi Fernando, held hann hafi verið byggður svona í upphafi og verið með beitningavél held að þetta hafi verið fyrsta kynslóðin af norskum beitingavélabátum. Lítur vel út og er eingöngu útbúinn á net.

 

 

 

 

Myndir frá Noregi og fleira 078Hér svo Polarhav þarf nú lítið að segja um hann góður og traustur bátur og við þekkjum hann vel var í nokkur ár heima á Íslandi sem Skotta og svo síðar sem Eldborg.

Þá vantar bara Öyfisk, Holmsvaag og Turbo og verð ég að taka myndir af þeim svo ég geti sett inn allann flotann hans Torleifs Skotheimsvik. En Öyfisk er okkur líka mjög kunnugur var smíðaður fyrir Íslendinga í Frakklandi og kláraður á Skagaströnd. Holmsvaag er svo bara týppískur vertíðarbátur af minni gerðinni smíðaður úr tré en er mjög snyrtilegur bátur að öllu leyti. Turbo er lítill rækjubátur sem lág við stjóra og slitnað í vondu veðri og rak upp á sker og nærri sökk og Torleif fékk hann fyrir lítið og er að endurbyggja smátt og smátt.


Á leiðinni heim (Örnes) Asgard.

Asgard og fleira 005Já við erum á leiðinni heim frá Asgard eftir tveggja sólarhringa dvöl að vakta" Asgard Tee mainfold". Allt gekk vel við verkefnið þó veður hafi verið frekar leiðinlegt og var SA stormur nánast allann mánudaginn 23. maí en í gær var bara kominn sumarblíða aftur. þurftum ekki að hafa neinar áhyggjur. Ferðin er orðinn frekar löng samt þegar við leggjumst að kaja eftir ca 3,5 tíma verðum við búnir að vera átta daga í verkefninu. Má segja að verkefnið hafi byrjað illa því við fengum ranga dagsetningu og máttu bíða í Abelvær í þrjá daga. 

Ferðin heim hefur gengið frekar rólega því misstum túrbínuna alla vega datt niður þrýstingurinn á túrbínunni og Callesen (aðalvélin) fór að reykja svartur strókurinn upp úr henni og afgas rauk upp úr öllu valdi, þannig ekkert annað í stöðunni en að slá af til að ná afgasinu niður og keyrum við nú á rétt tæplega hálfu álagi og þá virðist allt vera í "lagi". Þetta ástand hefur skapað auka álag á skipstjórann því hann hefur bæði sinnt skipstjórn og vélstjórn í þessari ferð. Útgerðarmaðurinn á vara túrbínu heima svo við verðum að skifta um túrbínu þegar við komum til Örnes. Planið var að taka skötuselsnetin og leggja þau en við þessi tíðindi tefst það eitthvað ég giska á tveggja til þriggja daga vinna að skifta um túrbínu.

Ég á pantað far heim þann 31. maí svo sennilega fer ég ekki meir með Polarhav í bili, nema ég komist ekki heima útaf eldgosinu, en ekki er nema rétt ár síðan sem ég var fastur í kaupmannahöfn í tvo daga vegna eldgosins í Eyjafjallajökli en þá var ég einmitt að koma frá Noregi og ætlaði að vera sniðugur þar sem fluginu mínu frá osló var aflýst, komast heim frá Kaupmannahöfn sem fór svona mátti dúsa í Kaupmannahöfn í tvo daga.

Asgard og fleira 003En hér má sjá viðbrögð síðuritara við eldgosinu í Grímsvötnum, er sagan að endurtaka sig hver veit. En eitt er víst að ég get ekkert gert við því en við verðum bara vona það besta.

Já planið er að báturinn farí skötuselsnet og verði reynd að veiða löngu, karfa og ufsa með og eiga að vera fimm í áhöfn. En við meigum ekki vera með meira en 300 skötuselsnet og veerðum svo með 160 net af ufsanetum og löngunetum. Þannig að það verður nóg að draga skötuselsnetin tvisvar i viku og svo verður leitað af löngu og karfa á milli en það má byrja að veiða karfa beint 1.júlí en það má vera á skötuselnum til jóla.

noregur 2011 april 039 Hér sjáum við Olíuskip á Asgard svæðinu Held þetta sé Jorunn Knutsen 270 metra löng og 47 metra breið en alltaf eru olíuskip þarna að lesta olíu yfirleitt eru þau tvö og eitt að bíða. (Ætli við eigum eftir að sjá svona skip liggja í Arnarfirði þegar olíuhreinsistöðin verði byggð í Hvestu. hver veit.

noregur 2011 april 040Og hér sjáum við yfirlit yfir Asgardsvæðið en þá því eru allavega þrír borpallar og eitt borskip síðan eru þarna fullt af skipum alltaf vinna dráttarbátar að draga borpalla til og frá og skip að vinna á botninum eins og þessu svæði sem við vorum að vakta. Þannig að þarna er nóg um að vera og svo ekki langt frá Asgard er Heidrun olíusvæðið sem her svipað nóg að borpöllum og olíuskipum.

Ég segi þetta gott í bili


Bless Abelvær.

Eftir ca 2 tíma við yfirgefum Abelvær og setjum stefnuna á Asgard svæðið, Það eru ca 114 sjm héðan þangað og við eigum að vera þar kl 12 á morgun spáin er orðinn fín og svo vonandi verður þetta allt í besta lagi. Gæti verið að við færum út á Skarv í smá verkefni eftir Asgard.

Abelvær og fleira 025Hér sjáum við Brannstasjon í Abelvær fer ekki mikið fyrir henni en sjálfsagt gerir hún sitt gagn. Í dag lifnaði þessi litli bær, svo virðist sem þessi bær sé svefnbær og núna í dag var fólk að dytta að húsum og slá grasið og skera til eldivið.

 

 

 

 

Abelvær2 004

Hér sjáum við hraðferjuna sem gengur til Abelvær. En þessi bátur gengur frá eyjunni Lekna til Namsos, ég held að hann sé með þrjár ferðir á dag. Svo ef þú tekur þennan til Rörvikur ertu ca 20 min en ekki alveg með það á hreinu hvað hann er lengi héðan til Namsos. Þetta er alveg ný ferja sem tekinn var í notkun í byrjun árs og heitir Foldafjord mjög flott.

 

 

 

Abelvær og fleira 010Hér sjáum við brunnbát held að þetta sé Ronja Nordic, en þeir eru alltaf hér á ferðinni flytja lax fram og til baka, þær eru margar Ronjurnar hér Nordic, Harvest og fleiri. Ætli við eigum eftir að sjá svona skip sigla með lax úr Arnarfirði í framtíðinni!.

Abelvær2 010

Ég gekk upp á fjallið á eyjunni og tók mynd af þorpinu að hluta til. En þessi hæðsti punktur er ekki meira en 50 m svo ekki er þetta fjöllótt eyja frekar en aðrar hér í kring þ.e.a.s kringum Rörvik.

Ég frétti það áðan að tveir úr áhöfninni hafi yfirgefið Örnes og séu hættir á bátnum hafa ekki sagt það við mig en alla vega eru þeir farnir til Leknes í Lofoten og hafa tjáð öðrum hér um borð að þeir væru hættir mjög skrýtið en svona er þetta bara og lítið við því að gera, Svo við erum orðnir 4 í áhöfn,einn rússinn farinn í frí og hjá hinum var atvinnuleyfið afturkallað, sem er mikill synd því mjög duglegur og traustur strákur. Þannig ekki veit ég hvort við förum að fiska eftir Þetta olíudæmi en í sjálfu sér er nóg að vera fjórir á löngu því hún er mjög fljót unninn og það gæti bara orðið einhverjir peningar fyrir strákana.

En alla vega þá förum við í kvöld á stað og höldum svo sennilega út á Skarv og svo til Örnes en það kemur reyndar betur í ljós seinna sennilega á þriðjudag. Einhvern veginn er þetta orðið eins og að vera á flugvelli eða í strætóskýli alltaf að bíða orðið frekar leiðinlegt, þessar afleysingar eyðilögðu mánuðinn sem fiskimánuð því miður fer bara alltof langur tími í þetta.

Svo eftir ca 12 tíma verð ég kominn út fyrir netsamband og þá verður lítið skrifað


Liggjum í Abelvær!.

Abelvær og fleira 016Já við liggjum við bryggju í þorpinu Abelvær sem er á eyjunni Kalvoeya. Já svona getur þetta verið við vorum á leiðinni út á Asgard olíusvæðið þegar BP. Norge fattaði að þeir höfðu gefið okkur ranga dagsetningu með verkefnið við áttum að vera frammi þann 19. maí en svo kom í ljós að það var ekki fyrr en 22.maí og við fengum ekki að vita þetta fyrr en við vorum lagðir af stað frá Rörvik til að leysa af Jonrit þá fengum við símtal frá BP.Norge.

Og þar sem við skildum meirihlutann af áhöfninni eftir í Örnes vorum við bara í tómu tjóni, því var í skyndi ákveðið að láta athuga með Beckerstýrið en það hefur verið að stríða okkur, og var fenginn kafari til að athuga með það, kom þá í ljós mikið slit sem gæti orsakað hvað leiðinlegt er að stýra bátnum, var þá fengið slipppláss fyrir skipið í Abelvær sem er lítill slippur, en þegar átti að fara taka upp kom í ljós að slippurinn gat ekki útvegað varahluti í stýrið í tíma svo við liggjum bara hér Abelvær í hálfgerðu reiðileysi og verðum þangað til á Laugardaginn en þá förum við aftur á stað út til Asgard. Við höfum unnið við að þrífa bátinn háþrýsti þvo hann, og verið að grunna yfir ryð í kjölfarið svona til að gera eitthvað. En strákarnir sem við skildum eftir í Örnes eru alveg snarvitlausir yfir þessu kannski skiljanlegt.

Það vinna 3 í slippnum hérna svo ekki er þetta stór slippur minnir mig á slippinn sar inn vogum í gamla daga var það ekki Jón á 11. Og innsiglingin er mjög grunn og er myndin að ofan af henni við tókum niður þegar við komum inn hana komum reyndar á fjöru en þeir sögðu mér að þetta er bara sandbotn gæti verið einn og einn steinn svo ekkert væri að óttast. Það er reyndar 1/2.metrers kjölur undir Polarhav svo hann ristir mjög djúpt.

Þessi staður má muna sinn fífill fegri, samt er mjög fallegt þorp og húsum vel við haldið hér. Hér eru tvö stór frystihús fyrir lax sem bæði eru farin á hausinn, einnig er hér kræklingavinnsla sem er nánast að leggja upp hlaupana, þeir í slippnum vonuðust til þess að annað frystihúsið myndi opna fljótlega aftur. En þetta er mikið laxasvæði og mikið um laxeldi.

Abelvær og fleira 012Hér sjáum við laxapramma sem var í slipp þegar við komum í gærkveldi en svona prammar er mjög algengir hér í Noregi (ætli við eigum eftir að sjá svona pramma víða fljótandi í Arnarfirði. Ég er ekki með það á hreinu hvað margir búa hérna en mér sýndist mörg hús vera sumarhús þegar ég tók göngutúr um þorpið í gærkveldi en þá var alveg logn og 14. stiga hiti.

Abelvær og fleira 017Bryggjukraninn í Abelvær ekki er hann stór veit ekki hvort Hlynur húskall væri ánægður með svona krana á bryggjunni sinni heima á Bíldudal. En ekki held ég að þessi sé oft notaður.

Abelvær og fleira 021Hér ein af stærstu trillunum svo voru í smábátahöfninni í Abelvær í gærkveldi, væri alveg fínn fyrir okkur Svan á strandveiðarnar. Sennilega er þessi ekki mikið notaður eins og löndunrakraninn. Smábátahöfnin er mjög flott og nýleg og eru mikið að svona skemmtibátum og minni bátum sem liggja við hana hled það hafi verið 3. fiskibátar þarna og svo virðist vera góð aðstaða fyrir skútufólk og annað ferðafólk sem kemur siglandi aðgangur að sturtu og svo framvegis.

 


Á leiðinni frá Örnes til Rörvikur

Noregur Maí 007

Nú erum við að siglingu frá Örnes til Rörvikur og erum væntanlegir kl 1000 í Rörvik, fyrir hálftíma síðan fórum við í gegnum Brönnoeysund. Veðrið er búið að vera gott logn og súld. Við eigum að taka olíu í Rörvik ekki veitir af aðeins um 7 tonn í bátnum. Eftir að við tökum olíu verður stefna sett út til Asgard til að leysa af Jonrit sem er að fara í áhafnarskifti til Kristiansund eigum við að vera komnir kl 1400 út til Asgard. Veðurspáin er frekar leiðinleg 15 m/sek frá suðvestri fáum þá tilbreytingu frá öllu logninu sem hefur verið allann maí. Við erum fjórir um borð skildum eftir 4 í Örnes. Og erum þeir núna um borð Polarfangst sem liggur við bryggju í Örnes.

Samferða mér núna eru tveir rækjubátar sem fóru frá Brönnoeysund um svipað leiti og ég fór þar í gegn ekki eru þeir búnir að kasta er á siglingu með mér eitthvað suður á bóginn.

Það eru 139 sjm frá Örnes til Rörvikur og svo frá Rörvik út til Asgard erum um 100 sjm. Og frá Lofoten til Örnes vorum um 70 sjm svo við komum til að sigla 310 sjm til að leysa bátinn af og fara alveg í þetta 6 dagar með öllu.

Noregur Maí 030Sigld frá Örnes frekar tignarleg fjöll. Þegar ég kom til Noregs þann 1. maí var ekkert farið verða grænt en þegar ég kom í gær var allt orðið grænt og fallegt öll tré orðinn græn og bara orðið sumarlegt samt er ennþá snjór í fjöllum.

Þjóðahátíðardagurinn var í gær hjá norðmönnunum og var mikið um dýrðir feikna mikil skrúðganga í Örnes með lúðrablæstri söng, NRK (norska sjónvarpið) sýndi svo beint frá nánast öllu landinu og frá helstu borgum heims þar sem norðmenn búa varð reyndar ekki var við útsendingu frá Reykjavík.

Noregur Maí 039Setjum eina mynd inn til að sýna Röstbankann eins og hann var daginn fyrir þjóðhátíðardaginn 17. maí.

Var að lesa það í blöðunum í gær að kjöt er 80% dýrara heldur en í Evrópu, Brauð eru 60% dýrari og Mjólk,ostur og egg eru 54% dýrari í Noregi heldur en í Evrópu. Ekki veit ég hvernig samanburðurinn er á milli Íslands og Noregs, við keyptum kost í gær fyrir 6000 þús norskar (120 þúsund ísl) En það er fyrir 8 kalla í 7 til 10 daga þannig erfitt að átta sig á þessu en mín tilfinning er að matur sé nú dýrari hér heldur en heima við verslum reyndar í Joker svona lítil búð sem er opin langt fram á kvöld og um helgar svipað og 10/11 heima og er verðið mun meira heldur en í stórmörkuðunum myndi segja að þessi búð væri frekar dýr og það er auðvita svipað og heima það er miklu dýrara í 10/11 heldur en í Bónus. Annars spái ég lítið í þetta, eitt er ljóst að á lægstu launum sem borguð eru heima myndir þú varla lifa vikuna hérna það segir bara hvað Ísland er orðið mikið láglaunaland og komið í flokk með Lettum,Eistum og Pólverjum. Mikið er um það að pólverjarnir komi á eiginn bíll til að vinna hérna og þegar þeir koma eftir frí heima koma þeir með bíllinn algjörlega yfirlestaðann af matvöru frá Póllandi sem á að duga þeim fyrir allann tímann sem þeir vinna. Albert rússinn sem er hér um borð hann á sendibíll sem hann fer á reglulega til Svíþjóðar til að kaupa sér mat og kemur með hann troðinn af vörum. Þessu myndi ég aldrei nenna en það er svo annað mál. Noregur Maí 013Hér sjáum við Polar Atlantic á reki þegar við fórum með Franklín um borð í byrjun maí en Polar Atlantic er á Skarv olíusvæðinu þar sem við vorum fyrra. Svo ég hugsa að þarna um borð séu búnir að vera margir rólegir dagar.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Jón Páll Jakobsson

Höfundur

Jón Páll Jakobsson
Jón Páll Jakobsson

Er fæddur í Reykjavík rétt fyrir gos en uppalinn á Bíldudal, Útskrifaður frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1993 og hef starfað við það síðan, er giftur og á 4 börn. Er forfallinn Aston Villa stuðningsmaður.

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 1000012950
  • Messenger creation FA854288-631B-469C-BE10-7BEBDB104BDF
  • 1000012945
  • 1000012965
  • 1000012866

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband