Færsluflokkur: Bloggar
2.8.2011 | 09:00
Kominn í höfn í Örnes.
Já við erum komnir í höfn í Örnes og byrjaðir að láta renna á vatn og kokkurinn farinn að kaupa í matinn. Nú erum við bara að ath hvort olían komi til með að duga en við eigum 20 tonn af olíu og held það sé meira en nóg þeir fóru með tæpa 17 tonn í þessum túr sem stóð í 7 vikur.
Hérna sjáum við Træna snemma í morgun þarna búa 500 manns og er þetta sjálfstætt sveitafélag annað hvort annað eða þriðja minnsta í Noregi. Þetta eru flott fjöll sem rísa þarna upp úr hafinu.
Það tilheyra 1000 eyjur og hólmar Træna Kommune(sveitafélag). Og þarna förum við alltaf framhjá og er þetta síðasti staðurinn sem við förum framhjá áður en við komust út á opið haf. Þeir hafa ferju og hurtigbát (hraðferju) til að koma sér upp á fasta landið.
Og er er næsta eyja Norðan við Træna Mareyja og Stortovey og tilheyra þær Træna og er búið þarna en það er alveg merkilegt hvað er búið á mörgum af þessum eyjum og hvað norðmenn eru miklir sveitamenn líkar ekki öllu við borgarlífið.
Svo er bara bíða eftir að allt verði klárt og svo höldum við á stað aftur út til Skarv.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.8.2011 | 19:41
Áhafnarskiptum lokið
Áhafnarskiptum lokið og ég lagður á stað aftur til Örnes á Polar Atlantic. Eftir velheppnaða aðgerð. Ég fór sem sagt yfir á léttabátnum og þeir fóru til baka Franklín skipstjóri og Pitrek háseti. Allt gekk þetta vel nema mótorinn ætlaði aldrei að fást í gang. Og erum við því þrír á leiðinni til Örnes ég skipstjóri Jaro vélstjóri og Frank kokkur. Og áhöfnin á Polarhav er því núna Franklín skipstjóri, Finn Arne vélstjóri, Lorents kokkur og Pitrek háseti. Þeir voru að borða lax áðan en hér var bara karbonettur og kartöflumús. En lítið er eftir að matabirgðum hér eftir 7 vikna útiveru og lítið eftir af vatni.
Verðum kl 0900 í fyrramálið í höfn og þá er bara bunker op eins norðmennirnir segja og halda aftur út í sæluna. En ég fékk skeyti frá Bp Norge í gær varðandi Skarv ogg nú segja þeir að hann eigi að leggja af stað frá Klostersfjord þar sem hann liggur 5 ágúst og eigi að vera frammi þann 8 ágúst svo kannski verður þetta ekki lengra en til 8 ágúst hver veit.
Hér er ég kominn um borð Polar atlantic og strákarnir að gera sig klára til að fara. Pitrek kominn um borð og allt dótið.
Og hér fara strákarnir yfir.
Og hérna eru þeir að klifra upp lóðsstigann og allt gengið eins og í sögu og þá er ekkert eftir nema hífa bátinn upp en vindan er handvirk svo það tekur svolítið á
Svo er ekkert nema kveðja Polarhav og strákana og sigla í höfn og verðum svo væntanlega á miðvikudagsmorgni aftur komnir út og þá geta þeir haldið á stað í land.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.7.2011 | 16:56
Lagður á stað
Já við lögðum á stað áleiðis út á Skarv olíusvæðið kl 1800 og áætlum að vera þar kl 13 á morgun. Þá skiftum við á bátum ég og Franklín og ég fer yfir á Polar Atlantic. Veður er alveg gott sól og 20 stiga hiti. Við siglum á 8,4 sjm hraða eins og er og Callesen stendur sig vel.
Þennan munum við nota á morgun til að fara á milli bátana. 25 ha Johnson.
Hér sjáum við svo Skaren og Öyfisk. Liggja og bara
og bíða Örlaga sinna Skaren á að gera upp sem hobbybát en hvað verður um Öyfisk er ekki vitað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2011 | 19:40
Komið á hreint.
Áhafnarskiptin eru komin á hreint. Polarhav á að vera kominn á mánudaginn út á Skarv svæðið og leysa Polar Atlantic af og þá heldur Polar Atlantic heim á leið til að taka vatn og vistir. Og verður vætanlega kominn til baka á miðvikudagsmorgun og þá tekur ljúfa lífið við hjá mér. Planið er samt dálítið flókið ég fer sem sagt út á Polarhav og verð svo fluttur yfir í Atlantic á léttabát og Franklín kemur yfir um borð í Polarhav og ég fer í land á Polar Atlantic og kem svo til baka og Franklín bíður á meðan úti á Polarhav og fer svo heim til Örnes á honum á miðvikudagsmorgun. Já svona er hægt að gera einfalda hluti flókna en okkur vantar einn skipstjóra þess vegna verðum við að gera þetta svona Torleif(útgerðarmaðurinn) sjálfur kemst ekki þarf að fara á mikilvægann fund á þriðjudaginn ( svo segir hann).
Hér er svo mynd af Polarhav tekinn áðan og sýnir hann nýmálaðann við bryggju.
Yfirlitsmynd yfir Örnes ekki samt öll byggðin. En þetta er frekar dreift hérna en það er byggð inn dalinn og báðum megin við fjallið.
Hér sjáum við privat kaja( einka bryggjur ) og naust hinum megin við Örnes.
Og hér sjáum við eina enn einkahöfnina veit ekki hvort þessi sé með vigtunarleyfi dreg það stórlega í efa.
Ég er bara farinn að taka myndir af bryggjum kannski er ég orðinn svo norskur að mig er farið að langa í eina.
Hér sjáum við gamlann höfðinga sem hann Finn Arne reddari hjá útgerðinni á. Samkvæmt upplýsingum frá honum er hann smíðaður 1926 og er í honum eins cylendra Wichmann vél og er vélarhljóðið mjög líkt því sem heyrðist í Káranum heima en í honum var Juni munkel (kann ekki að stafa það). Þetta er flottur bátur með alveg orginal vélarrúmi, gaman ef við íslendingar ættu eitthvað að þessum gömlu bátum okkar.
Önnur af þessum gamla höfðingja.
Svo hérna er nýi tíminn nútímalegur bátur á kannski betur við okkur íslendinga, annars bara mjög flottur bátur eða snekkja. Þið kannski sjáið það ekki en ég er búinn að komast að því að forstjóra Yara Glomfjord á þennan og er skorsteininn málaður með merki þess. Hefði svo sem ekkert á móti því að eiga þennan
Þessi er líka flottur og einnig væri gaman að eiga einn svona til að sigla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2011 | 16:55
Hér sjáum við Risholmen í Glomfjord
eða það sem eftir er af honum. Búið er að fjarlæga yfirbygginguna og nánast allt eigulegt þó er aðalvélin ennþá um borð og veit ég ekki hvenær hún verður fjarlægð en það er nýleg Caterpiller samkvæmt eigandanum (getur þess vegna verið ný fyrir mörgum árum). Þennan bát eignaðist Torleif fyrir tveim árum síðan flutti kvóta yfir á hann og svo aftur til baka yfir á sama skip og fékk þá úreldingarstyrk fyrir skipið. Áður en Torleif eignaðist skipið átti það Steinar Barthsen (fyrrverandi stórþingsmaður, íslendingavinur og hvalveiðimaður með meiru). Eitthvað fór úrskeiðs hjá kallinum svo hann tapaði kvótanum og bátnum svo í kjölfarið eitthvað útaf því hann veiddi kvótann í nokkur ár. Hann er reyndar í málaferlum við norska ríkið útaf því máli en bátinn fær hann aldrei aftur spurning hvort honum verði dæmdar bætur.
En eins og má sjá á myndinni og sést ennþá betur nú að bryggjan er orðinn frekar lasin og lítur ekki traustvekjandi út og taldi síðuritari það best að fara ekkert út á bryggjuna held hún þoli ekki þungt hlass. Hvort þessi bryggja sé síðan virkjunin hinum megin í firðinum veit ég ekki en það er alveg hugsandi. En eins og norðmaðurinn segir það er enginn maður með mönnum nema eiga sinn egen kaja (sýna eiginn bryggju). Svo það er töluverð eign í þessari allavega fyrir stoltið.
En nú er það orðið ljóst ég er að fara leysa skipstjórann á Polar Atlantic af. En báturinn er að koma inn í áhafnarskipti og taka vatn og vistir. Verkefninu sem hann er í hefur verið framlengd til 18. ágúst en því átti að ljúka fyrst 29 maí svo 22 júni og svo loks 25 júli svo við skulum vona að sá 18 sé loka dagsetning. Áætlað er að Polar Atlantic verði hér á mánudagsmorguninn. Já þá fer maður aftur á kunnuglegar slóðir Skarv olíusvæðið og á örugglega eftir að eiga þar ótrúlega notalegann tíma án sjónvarps, síma(verðum samt með iridum) og internets. (ekkert gervihnattasjónvarp í Atlantic) . En gamla gufan verður á sínum stað með öllu þeim frábæru þáttum sem boðið er upp þar.
. Skipstjórinn sem ég er að fara leysa er íslenskur og heitir Franklín og hefur hann verið í hafi síðan 1 maí síðastliðinn kom í land fyrir rúmum mánuði síðan til að taka vatn og vistir og var stoppað í 6 tíma hann er víst orðinn léttpirraður og vill fara komast í frí skil það nú ekki eins og þetta er nú skemmtilegt að láta reka og hafa akkúrt ekkert fyrir stafni næstu 12 tíma nema bíða eftir því að komast aftur í koju.
. Við verðum að gæta staðsetningu sem sem heitir Skarv FPSO en þar á samnefnt skip að koma og hefja vinnslu tekur við olíu og gasi frá borpöllum. Og er búið að vera bíða eftir því í allt sumar.
En hér sjáum við Skarv FPSO og hvernig það lítur út við erum semsagt að vakta svæðið þar sem þetta skip verður staðsett
Og hér sjáum við tölvumynd af skipinu komið á sinn stað. Skrýtið Polar Atlantic er ekkert á mýndinni.
Skarv er 292 metrar á lengd 50,6 metra breiður og 29 metra djúpur og verður hann stærsti FPSO skip við Noreg.
Til að fræðast meira um Skarv svæðið getið þið farið inn á www.offshore-technology.com/projects/skarv . Eins ef þið viljið fræðast meira og hvernig gangurinn er með skipið þá getið þið farið hérna inn www.bp.no . Svo hérna fyrir neðan er teiking hvernig FPSO skip virkar með borpöllunum. Læt þetta vera gott í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.7.2011 | 21:54
Vélin kominn í lag.
Já Turbo á Polarhav er kominn í lag. En í gær var túrbínan tekinn í sundur og sett saman aftur. Gerði undirritaður það með reddara útgerðarinnar Finn Arne og vorum við í beinu sambandi Danskere eða Kurt sem er vélaproffi og kemur að sjálfsögðu frá Danmörku eins og aðalvélin en túrbínan er frá Sviss (hélt að þeir gerðu bara osta). Í gær fengum við kassa með varahlutunum í og þau sérstöku verkfæri sem átti að nota til að opna túrbínuna og skipta um legur, svo kl 18 í gær var verkinu lokið og vélin sett í gang og allt virkaði eðlilega. Þetta var einfaldara heldur en ég reiknaði með og undir góðri leiðsögn Kurt (Dansker) gekk þetta bara eins og í sögu og núna kom það sér vel að vera með gsm og getað verið í beinu sambandi við proffann. Svo í morgun var farið í alvöru prufutúr sem gekk eins og sögu fengum fínasta trukk á túrbínuna og aðalvélin stoppaði að reykja eins og hún gerði þegar skaðinn gerðist fyrir 6 vikum síðan. Svo núna er allt í bátnum klárt verið að mála síðustu sleikjurnar. Við skulum ekkert tala um veðrið en ef eitthvað er þá verður það bara betra og betra. Og það er bara nánast ólíft inn í bátnum því ekki er mjög öflug loftkæling hérna um borð í bát sem gerður var fyrir Grænlendinga aftur er nokkuð öflug hitaelement í kerfinu.
Í fyrradag fór ég í bíltúr inn í Glomfjorden og ætlaði að fara í sund en sundlauginn var lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks svo ég fór bara að skoða mig um í Glomfjord. Glomfjord er norskt iðnaðarþorp sem byrjaði árið 1898 og 1912 var virkjunin byggð inn í firðinum í tengslum við sinkverksmiðju. Var það einhver sænskur ofurhugi (kannski svipaður á Einar Ben okkar) sem kom þessu á koppinn. Virkjunin sjálf var svo tekin yfir af norska ríkinu árið 1918 og svo fer sinkverksmiðjaní þrot árið 1922 þegar verður mjög mikið verðfall á sinki. Tekur þá ríkið yfir verksmiðjuna og allt saman í Glomfjord. Svo árið 1926 byrjar álframleiðsla í Glomfjord og var virkjunin notuð til þess og voru það bretar sem áttu verksmiðjuna. Svo að sjálfsögðu var verksmiðjan svo tekinn yfir af þjóðverjum en var svo sprengt ú loft um ásamt virkjunni árið 1941. En eftir lagfæringar var byrjað með einhvers konar framleiðslu þarna í stríðinu. En eftir stríð var byrjað að frameliða þarna áburð og framleiða ammoníak fyrir áburðarframleiðsluna. Árið 1993 hætta þeir að framleiða ammoníak í Glomfjord og 100 manns missa vinnuna.
Hér sjáum við Virkjunina innst inn í Glomfjorden það voru fimm túrbínurnar þarna til að framleiða rafmagn og framleiddu þær á 25 Hz (50 hz er venjulegt hjá okkur ) Svo seinna þegar stærri virkjun var búin til seinna sem nýttir vötnin þarna fyrir ofan þá var þessi virkjun eingöngu notuð til að fyrir framleiðslu á þungvatni fyrir ammoníkaframleiðsluna. Þessi vikjun er í gangi í dag held að tvær vélar af 5 séu ennþá keyrðar. Ekki veit ég hvað þetta var stór virkjun í upphafi hugsa þó að hún hafi verið eitthvað stærri en rafstöð okkar.
Hér stoppaði ég og tók mynd þvert yfir fjörðinn en fjörðurinn er svona brattur
Og hér sjáum við út Glomfjorden og eins og má sjá er hann frekar brattur.
Og hér er kominn uppúr Glomfjordinum og tek mynd niður á þorpið sem stendur báðum meginn við hólinn sem þið sjáið húsin á. Það búa ca 1200 manns í Glomfjord og þar eru 15 starfandi fyrirtæki mismunandi stærð en stærst er REC Wafer Norway með 400 starfsmenn þeir framleiða Silisiumskífur fyrir sólarsellur. Síðan er þarna fleiri stórfyrirtæki eins og Yara Glomfjord sem framleiðir steinefni fyrir áburð og kalsíium nítrat og eru þeir með 180 starfsmenn. Ef þið viljið fræðast meira um Glomfjord þá getið farið inn á www.glomfjordindustripark.no
Ég segi þetta bara gott héðan frá Noregi í kvöld þar sem lognið á heima allavega þessa dagana. Framundan gæti verið mannskapskifti á Polar Atlantic því búið er að framlengja verkefninu hjá honum til 18 ágúst. Ég fæ að vita meira um það á morgun hvernig það verður. Og hvað mitt hlutverk verður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2011 | 21:40
Leithe heitir hann ex Brík frá Bíldudal
Já Leithe heitir hann í dag og er með skráninguna N-8-G. N stendur fyrir Nordland og G stendur fyrir Gildeskal, sem er næsta sveitafélag hérna fyrir norðan okkar. Hann er skráður í Storvika sem er lítill staður í því sveitafélagi.
Hann hefur samkvæmt Norsk Raafisklag landað tvisvar daganna 17 og 20 júlí.
Þ. 17 landaði hann 1175 kg af rækju sem flokkast stór og 723 kg af rækju í stærð 221-250
Þ. 20 landar hann 431 kg af rækju og svo 241 kg í stærðinni 221-250.
Hann landar hjá KarlS Fisk og skalldyr í Tromsoe.
Hér er bara búinn að vera alveg frábært veður tvo síðustu dag og alveg logn farið að minna mig bara mikið á Bíldudal þessir tveir síðustu dagar. Málingavinnu er svo til alveg lokið og báturinn orðinn bara helvíti flottur og eiga málaranir að fara mála næst Holmvaag.
Örnes alveg um miðnættið í gærkveldi tekið út fjörðinn.
Sjáið lognið gæti sko alveg verið Bíldudalur!.
LEITHE (N 0008G) | 20-JUL-11 | Karl'S Fisk Og Skalldyr As (T1079) | Reke | Rund | Unspec | 431 |
Reke | Rund | 221-250pcs | 241 | |||
17-JUL-11 | Karl'S Fisk Og Skalldyr As (T1079) | Reke | Rund | Unspec | 610 | |
Reke | Rund | Unspec | 575 | |||
Reke | Rund | 221-250pcs | 723 |
Hér sjáum við einn hobbybátinn en þennan á forstjórinn yfir Verksmiðjunni í Glomfjord (veit ekki hverslags starfsemi fer þar fram) sem er hérna nokkuð fyrir innan Örnes. Veit ekki hvenær maður fer að kalla hobbybáta snekkjur. En þetta er flottur bátur sem ekki er mikið notaður allavega ekki orðið var við það þegar ég hef verið hérna held ég hafi séð hann einu sinni fara rúnt í svona 3 tíma en auðvita getur vel verið að maðurinn sé alltaf á rúntinum þegar ég er ekki hérna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.7.2011 | 16:49
Slippurinn í Repa.
Já í gær fór ég bryggjurúnt og tók þá í leiðinni myndir af slippnum sem þeir hafa í Repa, væri nú gott að hafa svona slipp heima á Bíldudal þar sem hægt væri að renna alla vega Andra BA-101.
Svona lítur hann út hjá þeim og eru það útgerðarmennirnir sjálfir eftir því sem mér skilst sem eiga hann og reka slippinn á samvinnufélagsgrunni.
Og svona er hann í nærmynd frekar einfaldur og virðist ekki svona í fljótubragði hafa kostað nein ósköp.
Hér svo spilið sem drífur slippinn áfram trúlega fengið úr einhverjum bátnum sem búið er að eyða.
Og svo hér sjáum við vélina sem drífur slippinn áfram sé nú ekki í fljótibragði hvað tegund þetta er gæti verið Gemsa?. Svo við hliðina á henni er glussatankurinn. En þetta er nú bara fyrir vélaáhugamenn. Þannig að þið verðið að fyrrgefa mér þessar myndir og skrif.
Tók reyndar líka mynd af rækjutrolli sem var í yfirhalningu á bryggjunni, en það er af þessu rauða rækjubát sem ég var með mynd af í gær, ekki er þetta nú stór feldur sem hann notar og þið sjáið að það eru engir bobbingar því það er bannað innan fjarðar held að grensinn sé 3 sjm frá grunnlínupunktum.
Veðrið er búið að vera mjög gott í dag yfir 20 stiga hiti og léttskýjað og höfum verið að mála og mála og erum búnir að afreka mikið í dag. Það byrjaði ekki vel því strax í morgun þegar við byrjuðum. Byrjaði að rigna svo við urðum að taka hlé en svona eftir kl 10 í morgun bara gerði þetta flotta veður og náðum við að mála það sem vantaði að mála svo núna eru bara eftir sleikjur hér og þar og ættum við að klára alla málingavinnu á morgun.
Svo vonandi fara mín mál að skýrast fljótlega eftir helgi og komast á hreint. Læt þetta næga á þessum fallega degi í Örnes.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.7.2011 | 14:55
Sorgardagur í Noregi
Já það er sorgardagur hérna í dag eftir þessa hræðilegu atburði sem átt sér stað í gær. Ég bara átta mig ekki á þessu.
Hvernig svona getur getur gerst.
En af öðru það var málað og málað í gær en svo í dag hefur verið rigning svo þá notuðum við tækifærið og þrifum dekkið og löguðum til svo það þarf ekki nema ca tvo daga þá er báturinn fullmálaður. En ég notaði svo tímann áðan og skrapp út í Reipa að kíkja á höfnina fara svona hafnarrúnt.
Hér sjáum við tvo rækjubáta í höfninni.
Svo sjáum við yfir hafnarsvæðið þetta eru sjarkar eða smábátar eins og við köllum þá en norðmenn tala alltaf um sjark fyrir smábát mikið miðað við 50 fet. (15 m.) Þetta er svona klassík fiskihöfn, mikið drasl sem fylgir fiskibátum kannski er þetta svona af því það er enginn hafnarvörður.
Hef þetta ekki lengra á þessum sorgardegi hérna í Noregi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2011 | 21:28
Dagur 3 í Noregi.
Jæja nú er maður búinn að fá að vita hvers vegna þetta allt uppstand er. Málið er að norska fiskistofa telur mig ekki hafa verið löglegur sem skipstjóri um borð í Polarhav á vertíðinni og þar af leiðandi hafa þeir tekið veiðileyfið af bátnum af því ég hafi ekki verið skráður í fiskimannatalið (fiskerimanntallet blad B) ég var sem sagt ekki skráður sem fiskimaður í Noregi og strangt til tekið verður skipstjórinn ef eigandinn er ekki um borð að vera með þessa skráningu. Litið er framhjá þessu nánast í öllum tilvikum en ég hef sennilega farið fyrir brjóstið á þeim uppreisnargjarn íslendingur. Þeir hafa ekki bara svipt bátinn veiðileyfi þangað til þetta verður lagað heldur hafa þeir gert allann afla upptækann á meðan ég stjórnaði skipinu. En nú er sem sagt verið að skrá mig afturvirkt í fiskerimanntalið og er lögfræðingur norsku LÍÚ að gera þetta klárt en til þess að það gangi í gegn verð ég að vera skráður hérna með heimilsfang. Þannig að þetta er aðalvinnan hjá okkur í augnablikinu, þessu hefði auðvita verið hægt að bjarga að heiman en svona er þetta. Svo það er ekkert nema taka um vinnuvettlingana og gera eitthvað á meðan þetta er að ganga í gegn.
En að skemmtilegri fréttum ég fór út í búð í dag og keypti mér tvær 1/2 ltr af Solo (norskt appelsín) og fékk þær á frábæru verði eða tvær á 40 kr norskar (800 kr ) sparaði 10 kr (200). Einnig keypti ég mér hálsmixtúru og borgaði fyrir hana 99 kr nrk (2000 kr) en mér er strax farið að líða betur.
Og er ég þegar búin með aðra flöskuna.
Hér er svo Holmvag, Fröyskjær og síðan sést aðeins í Turbo. En sjáið þið hvernig bátarnir er bundnir saman þeir koma aldrei við hvorn annan, því dálítið frá bryggjunni er akkeri sem ysti báturinn er bundinn í bæði að framan og aftan og þannig haldið frá hinum bátunum og þannig kemur innsti báturinn aldrei heldur við bryggjuna. Fröyskjær er bátur sem búið er að gera upp til þess að búa í og sigla um ströndina. Eiga nokkrir hann saman þ.á.m Torleif útgerðarmaður og er þetta bara eins og með sumarbústaðina þú átt þina daga yfir sumarið.
Af bátum útgerðarinnar eru tveir í drift núna. Polar Atlantic er í offshore verkefni á skarvsvæðinu og Polarfangst er einnig í Offshore á Asgardsvæðinu. Polarhav, Holmvag,Turbo og Öyfisk eru í höfn reyndar hefur Öyfisk verið allt þetta ár og allt síðasta ár einnig bundinn við bryggju svo það er ekkert nýtt. En á þessum tíma í fyrra vorum við á Polarhav í Offshore og hættum ekki fyrr en í lok okt.
Læt fylgja eina mynd af Öyfisk þar sem hann liggur og bara bíður örlaga sinna.
Læt þetta vera gott í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jón Páll Jakobsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar