10.5.2013 | 18:47
Kominn á klakann.
Kominn á klakann eftir vertíð í Noregi, hérna áður fyrr fóru menn frá Bíldudal á vertíð suður til Sandgerðis,Grindavíkur eða Keflavíkur svona breytast tímarnir það er engin vertíð á Íslandinu lengur, hún er en við lýði í Noregi svo má segja að ég hafi upplifað þessa vertíðarstemmingu sem fylgir alvöru vertíðum í fyrsta sinn í fyrra og svo í ár alveg 100% þar sem ég var að róa á litlum bát og upplifði þetta allt frá a til ö. Ég hitti kalla sem voru byrjaðir að fara vertíð áður en ég fæddist, einn var mér mjög minnisstæður en hann var á sinni 45 vertíð í Henningsvær og sagði hann mér að bærinn hefði nánst ekkert breytst þennan tíma væri alltaf jafn gaman að koma á vertíð í Henningsvær, já það er einhver sjarmi yfir þessum stöðum að lappa upp á fiskeriheim (hvíldarstofu fyrir sjómenn). kaupa sér riskrem og spjalla við kallana. Kannski óarðbært á excelskjalinu en alveg sannanlega arðbært fyrir þessa kalla. þeir hafa tekjur eru ánægðir með lífið og spá svo sem ekkert í það hvort einhverjir íslendingar séu að skrifa það í blöðin hvað norsku sjávarútvegur sé illa rekin og lítið fæst fyrir fiskinn saman borið við Ísland hvað norskur sjávarútvegur sé " óarðbær ". Hann Per frá Sör Arnoy sem ég kynntist þarna og er búinn að fara Vertíð í Lofoten í 45 ár á sinn bát skuldlausann tekur 80 % af árstekjunum þarna, þannig var það ekki alltaf hjá honum hann sagði mér að í kringum 1990 hafi verið alveg mjög slæmt hefði bara ekki fiskast og litlar hefðu verið tekjunar.
Þó alvöru vetrarvertíð séu ekki lengur við líði hérna er svo sannanlega strandveiðivertíð við lýði og lét ég plata mig til að taka þátt í því og var það nú ekki ferðir til fjárs því kallinn fékk ekki upp á hund.

Ekki voru komnir margir eftir fyrstu klukkustundinar og þá hugsaði undirritaður " nei hvern andskotann er ég búinn að hafa mig úti í ". Svo hugsaði bara á jákvæðum nótum eins og Páll frændi minn í Ási hefði gert " jæja maður er allavega kominn með í soðið.

Aðeins betra útlitið daginn eftir en samt held ég að ég ætti bara koma mér aftur til Norge, annars held ég ef svona gengur áfram verð fara koma mjög seint í land eða fá mér góða lambhúshettu.

Kári BA. Skipstjóri og eigandi Hlynur Björnsson, þessi nær alltaf skammtinum.

Mardöll BA eigandi Björn Magnússon, áhöfn Jón Hákon og Björn, eitthvað er Nonni ( Jón Hákon) kuldalegur á þessari mynd ekki alveg sumarlegur

Anna BA, Jón Halldórsson eða Jón Póstur eigandi og í áhöfn.

Einn sá allara elsti strandveiðimaður á Bíldudal. Sigurður Brynjólfsson skipstjóri og útgerðarmaður á Sölva BA.

Dufan BA. skipstjóri og eigandi Guðlaugur Þórðarsson.
Já nógur tími var til að taka myndir því ekki mikið fór fyrir fiskerínu.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2013 | 04:33
Komnir í heimahöfn.



Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.4.2013 | 15:08
Jæja síðasta vikan


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2013 | 14:17
Rólegt en alltaf kaldi


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2013 | 07:14
Lítið um að vera.
Ekki er nú mikið fiskerí hjá strákunum á Holmvaag þessa stundina, Lofoten vertíð er komin á endastöð þetta áríð. 1,5 til 2 tonn á dag í 65 net er nú afrakstur þessa dagana. En nú liggjum við í landi vegna veðurs það blæs nú hressilega frá SSW, við fórum reyndar út í nótt og lögðum svo við hefðum eitthvað að gera á morgun en það er góð spá fyrir morgundaginn.
Við eigum ennþá um 20 tonn eftir að kvóta svo það er alveg ljóst að ég verð ekki aflakóngur þessa vertíðina. Nú er bara fjölga netunum eins og norðmenn gera eftir að það fer að tregast, það er bara eitt vandamál hjá okkur að við eigum enginn net til að setja í sjóinn.
Eins og staðan er núna eru litlar líkur á því að ég verði kominn heim fyrir kosningar þannig að ég mun hafa lítill áhrif á það hverjir munu stjórna landinu næstu fjögur árin sem er kannski bara gott þá þarf maður ekki að leggjast í þunglyndi eftir kosningar.
Internet frekar rólegt þessa dagana áhöfnin búin með mánaðarniðurhal svo lítið hægt setja inn af myndum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.4.2013 | 18:13
Henningsvær
Já nú róum við frá þessum gamla lofotenbæ " Henningsvær" þar sem hefur verið róið til fiskjar lengi eða frá því í kringum 1700. Þessi bær sem er byggður upp á hólmum og litlum eyjum einu samgöngur við fastalandið var ferjusamgöngur allt til 1983 þegar Henningsværbroa var byggð. Margir vilja meina þess vegna hafi bærinn varðveitst eins og hann er engar steinsteypublokkir byggðar í skjön við umhverfið og bæinn sjálfann.

Þessi er en starfandi hérna en þetta fyrirtæki var stofnað 1868, gaman að þessu að sjá svona gömul fyrirtæki en starfandi þó sérstaklega í sjávarútvegi.
Það er búið að vera kaldaskítur síðustu tvo daga en nú lofar hann fínu veðri næstu daga svo vonandi verður eitthvað kropp en við vorum með 2,1 tonn í dag í 50 net erum farnir að leggja aðeins meira og munum fjölga netum á morgun þannig að eftir morgundaginn verðum við komnir með 60 net. .

Og auðvita eru hjallar hérna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2013 | 12:32
Eftir helgarfrí búmm búmm




Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2013 | 06:02
Helgarfrí.
Já nú er helgarfrí Sagafisk tekur ekki á móti fiski á helgum nema frá skakbátum. Alveg frábært að fá helgarfrí í blíðunni . Við liggjum alveg í miðbænum í Svolvær svo nú er bara gerast ferðamaður í þessum mikla ferðamannabæ í Lofoten.

Við liggjum fyrir aftan þennan "Betelskipet" (kirkjuskipið eða guðskipið). Það er samkoma í dag kl 18 ætli það sé ekki best að fara og fá guðsblessun.

Þetta er nú minnsti skakbáturinn sem ég hef séð landa hjá Sagafisk hann var með einhver 300 til 400 kg af fiski svona strandveiðiskammt miðað við rund fisk (blóðgaðann fisk)

Hér sjáum við snurvoðabát kasta nótinni. Sést ekki á þessari mynd en þeir eru ekki búnir að finna upp stert eins og við þ.e.a.s segja tóg frá pokagjörð upp í kjaft eða væng svo auðvelt sé að ná fiskinum úr nótinni norðmenn nota belg þeir kasta belg með nótinni og svo kasta þeir á belginn til að komast í pokann oft mikið bras hálfkjánalegt.

Hér sjáum við svo voðina og belginn sem tengdur er við pokann í staðinn fyrir stert eins og við gerum.

Svona eru skreiðarhjallarnir hérna, það er ekki full hengt hérna því það var svo kalt í mars svo nokkrir eru ennþá að hengja en það verður nú ekki mikið lengur því flugann fer að kveikna og þá er nú ekki gott að eiga nýjan fisk á hjalli.

Ein bryggjumynd að lokum en hér er gömul verkun og henni fylgir að sjálfsögðu gömul bryggja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2013 | 17:06
Langt milli skrifa.





Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2013 | 15:56
Komnir á stað aftur.
Já við fengum að leggja í gær ein trossa á bát minni bátar með hámark 35 net í trossu og stærri bátar 50 net í trossu. Við lögðum eina trossu og eru í henni 22 net. En þess má geta að eitt norskt net er helmingi styttra en íslenskt hvernig sem stendur á því.
Svona er þetta bara þegar mikill fiskur berst að landi. Bátarnir voru frekar fljótir í dag t.d vorum við búnir að öllu rétt fyrir eitt flestir voru á því róli. Aflinn í dag í trossuna var 2,2 tonn af slægðum og hausuðum þorski.
Þetta ástand verður sennilega fram yfir páska.

Síðasta löndun fyrir stopp. á Sunnudaginn verða þrjár vikur liðnar síðan við byrjuðum þetta úthald. Og aflinn farinn að nálgast 50 tonn af slægðum og hausuðum þorski. Þetta bann sem kom í byrjun vikunnar setti dálítið strik í reikinginn en svona er þetta bara bráðum förum við að hætta telja upp kvótann og byrjum að telja niður og einhvernveginn er það miklu skemmtilegrar.

Sólsetur í Röst nánar tiltekið tekið frá eyjunni Glea.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jón Páll Jakobsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar