3.10.2015 | 10:49
Kominn til Bíldudals
Já úthaldið i Noregi var styttra heldur ég reiknaði með. Eins og kom fram í síðasta bloggi var ég balalaus og fékk ekki bala beita, reyndi ég að þrýsta á Sjoset í Træna en án árangurs. Svo ég bara lagði Jakob og fór í fyrirbyggjandi viðhaldsviðgerðir aðal ástæðan fyrir því að ég lagði Jakob var að ég vissi að ég þyrfti að fara til Íslands í byrjun okt til að sinna áhugamálinu rækjuveiðar á Andra BA-101. En Dröfn RE kom í Arnarfjörð þann 20 sept að rannsaka rækjustofninn og taka stofnmat og í framhaldinu munu sérfræðingar hafró taka ákvörðun hvort það sé óhætt að leyfa veiðar eður ei og einnig hvað hafró telji öruggt að veiða mikið.
Þar sem þetta var í undirmeðvitundinni fannst mér bara ekki taka því að ná í allt línuúthaldið mitt og finna beitingafólk fyrir kannski ca tvær vikur.
Því var Jakob lagt, ég reyndar fór þrjá róðra á Magny til að sjá hvernig Oilwind línukerfi virkaði en ég hef ákveðið að kaupa mér beitingarkerfi í bátinn hvort það verði trekt eða beitingarvél er ekki alveg komið á hreint en held ég séu búinn að útiloka Oilwind lýst ekki alveg nógu vel á það.
Svo núna er ég bara bíða eftir grænu eða rauðu ljósi frá Hafró hvort við fáum að byrja veiðar í næstu viku eða ekki. Andri BA er klár og áhöfnin einnig.
Jakob liggur í Reipå við almenningsbryggjuna það stendur nú til bóta en ég er sennilega búinn að leiga mér bryggju og naust á eyju norðar við Reipå á Sandhornoy þar fæ ég fína aðstöðu og varanlega.
Våg Sandhornoy þarna í nágrenninu fæ ég aðstöðu
Ég er meðlimur í Reipå Fiskarlag, sem er eitt að aðildarfélögum í Nordland Fiskarlag sem er síðan aðili af Norges Fiskarlag. Þetta er svona svipað eins og L.Í.Ú nema þarna eru líka venjulegir sjómenn þ.e.a.s ekki útgerðarmenn. Mikill spenna er nú samtökunum vegna þess að þar koma margir ólíkir hópar saman.
Magny en á þessum var ég að róa síðustu vikuna áður en ég kom heim. Rær með 20 bala með oilwind kerfi yfirleitt tveir í áhöfn stundum þrír en aflinn er slægður um borð.
Aðaldeilumálið er strukturert ( sameina fleiri en einn kvóta á sama bát) á fiskikvótum en nú er ekki leyfilegt að sameina kvóta á bátum undir 11.m en leyfilegt í öðrum flokkum.
Einnig er sum aðildarfélögin farin að lýsa yfir áhyggjum vegna áhlaups íslendinga inn í norskann sjávarútveg. Gæti þetta orðið mjög stórt áhyggjuefni en samkvæmt EES samingi meiga aðrir evrópuíbúar sem eru aðilar að ESS að uppfylltum ákveðnum skilyrðum kaupa sér fiskibát í Noregi og byrja að kaupa reyndar meiga þessir bátar ekki vera stærri en 15. metrar.
Almennareglan í Noregi er reyndar sú að aðeins norskir rikisborgarar meigi eiga fiskibát og kvóta en þessi undanþága hefur verið veitt í kringum EES en nú vilja sem sagt margir norskir sjómenn að þessu verði breytt búnir að fá nóg af innrás íslendinga skilja reyndar ekkert í því hvers vegna íslendingarnir vilji ekki bara vera heima hjá sér þar sem er nóg af fiski og besta kerfi í heimi. Eins og einn sagði við mig þið hafið gagnrýnt norskann sjávarútveg mikið sagt opinberlega að þið séuð með besta sjávarútvegi í heimi en svo flykkist þið hingað.
Helstu rökin fyrir þessu hjá norskum sjómönnum er sú nú er góðæri í norskum sjávrútvegi kvótar háir, verð á fiski á uppleið allir eru þéna gott en svona hefur þetta ekki alltaf verið því hér því ekki er svo langt síðan kvótar voru lágir með tilheyrandi erfiðleikum. Norðmenn vilja sem sagt meina að íslendingarnir séu eingöngu komnir til að taka þátt í góðærinu.
Einnig eru þeir mjög óhressir hversu auðvelt er fyrir tildæmis íslending að koma til Noregs og byrja að gera út búa kannski eingöngu í póstkassa hérna sem sagt búa í rauninni á Íslandi. Svo eru þessir andskotar mállausir tala ekki stakkt orð i norsku.
Ég hef tekið nokkrar snerrur við vini mína nojara um þetta mál. Að mínu mati er margt til í þessu held það myndi tildæmis heyrast eitthvað frá skerinu ef það væru nú tuttugu trillukarlar frá Noregi að veiðum tildæmis á Vestfjarðarmiðum töluðu að sjálfsögðu ekki stakkt orð í íslensku brytu árlangar hefðir um línulagnir og netalagnir legðu þvers og kurs og svöruðu ekki í talstöð þó reynt væri að ná í þá.
Svo má heldur ekki gleyma því að þetta eru ekki bara íslendingar sem eru byrjaðir að gera hérna út heldur eru Litháar, lettar og danir eru hérna líka en íslendingar eru í miklum meirihluta En svona heilt yfir eru ánægja með þessa þróun hjá norðmönnum almennt búið að styrkja byggð tildæmis í Finnmörku eins og einn sagði komin ljós þar sem áður var slokknað.
Í sumar lendi ég í þrasi við Martin Solhaug eiganda og útgerðarmanninn á Vibeke Cathrin en hann hefuur allt á hornum sér varðandi íslensku innrásina, eitt að því sem hann sagði við mig hann bara skildi ekki hvers vegna við værum allir að koma ekki væri ástandið á Íslandi eins og í Sýrlandi. Svo sagði hann af því ég mátti veiða ýsu fría enginn kvóti hvort hann gæti komið til Íslands og fengið frítt spil tildæmis í ýsu ég varð auðvita svara honum neitandi.
Í dag held ég fari með rétt mál að það séu allavega 20 íslendingar sem eiga bát og eru farnir að gera út hérna í Noregi allir eiga þeir bát undir 15 metrum og flestir gera út í gr2 (open gruppe) sem er svona sameiginlegur pottur með ákveðnum garantikvótum myndi þýðast sem með ákveðum lágmarkskvótum á hvern bát. Hvað ætli þetta sé stór prósenta varðandi miðað íslenska smábátaútgerð. Svo eru allavega 10 til viðbótar sem eru skipstjórar eða eins og norðmenn kalla þetta leieskipper.
Getur verið að það sé eitthvað að í besta kerfi heimi?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2015 | 04:59
Nu er kallinn balalaus.
Jå thad kom ad thvi sem eg ottadist ad Sjøset i Træna gæti ekki skaffad meiri bala linu. I fyrstu gekk thetta vel en thegar fleiri båtar byrjudu ad roa og thå serstaklega fra Træna thå før allt i vitleysu svo nu nå their ekki nema skaffa einum båt linu og eg sit å hakkanum svo thad virdist sem thessi vertid se bara gufa upp nånast ådur en hun byrjadi en svona getur thetta farid. Oft getur thad verid betra ad rada ser sjalfur eins og med beitingu og annad.
Å einni viku er eg buin ad vatna 48 bala i sex ferdum sem gerir gerir 8 balar ad medaltali hef eg fiskad å thessa 48 bala rett rum 6 tonn af fiski sem gerir 125 kg å hvern dreginn bala. Sem aftur gerir rett rum 0,3 kg å hvern dreginn krok og ad sjlafsøgdu ad få linuna fria er audvita fråbært. Medalverdid å thessari viku er 9,24 kronur midad vid oslægdann fisk en eg fæ minstepris ( verdalgsstofuverd) vegna thess ad eg fæ linuna fria sem aftur er bagalegt thegar enga linu er ad få.
Thad kemur vonandi i ljos i dag hvort eg fåi meiri bala edur ei og thar sem stutt er i rækju i Arnarfirdi er thad kannski of litill timi til ad fara finna folk og starta beitingu eda byrja beita og svo thurfa svo eftir 10 daga ad byrja stokka upp linuna og og vaska hana og svo framvegis.
Ad mørguleiti er thetta gråtlegt thvi thetta ekki ågøtlega hefdi reyndar viljad få fleiri bala svo hægt hefdi ad roa med 12-14 bala i ferd i stadinn fyrir 8-10. Svo nu er thad bara ad åkveda sig hvort madur fer ad reyna fyrir sig å skaki eda fari og geri rækjutrollid klårt og byrji ad keyra i spring å Andra BA-101.
Vedur hefur svo sannanlega leikid vid mann bara blida hvern einasta dag og hitastig i kringum 15 stig ut å sjonum og sjorinn bara spegilslettur. I landi hefur madur bara gengid um i stuttbuxum svo eg fekk thå snefill af sumri eftir allt saman en upp i Finnmark i sumar var ekki sumar og thegar eg var å Islandi i august var ekki heldur sumar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2015 | 20:13
Buid fara i fjorar sjøferdir.
Ja vid felgarnir Jakob og eg erum bunir ad fara i fjora rodra. Ekki var farid med neitt svakalegt magn af bølum. 6. balar i fyrsta rodur sama magn af bølum var farid med i rodur tvo sidan var thad 8. balar og i dag var roid med 10 bala thetta er svona små saman ad komast i gang. Fiskeriid hefur verid rett rumlega 100 kg å bala ekki thad stora en samt svona brukbart eins nojarinn segir.
Jakob i Småbatahofninni her i Støtt eg er ca 45 min ad sigla til Reipå hedan ef mig vantar eitthvad
Linan kemur herna frå Træna med fraktbåtnum Fjordlest II. Sidan sendi eg obeitu balana til baka. Fjordlest er litill fraktbatur eda skip sem siglir herna å strøndina frå Bodø og sudur til Sandnessjøen og svo aftur til baka er hann er hann thrisvar i viku herna i Støtt adlalega ad taka fisk til Træna og koma med tom kør til baka einnig er hægt ad få almenna frakt med skipinu thetta eru nidurgreiddir flutingar af Nordland Fylkeskommune.
Flutingarskipid Fjordlest.
Bara nokkud vel utbudi hjå theim hifa fra bordi med thessar skuffu hafa svo lyftara um bord til ad setja i skuffuna svo eru their med fyrstir svo balarnir minar fara beint i frost thegar their koma um bord i Træna.
Støtt hefur skartad synum fegursta undanfarna daga sol og renniblida tildæmis i dag var stuttbuxnavedur. Madur er farinn små saman ad kynnast folkinu herna å eyjunni enda ekki svo svakalega margir sem eru busettir herna en thessar fåu hrædur er forvitnar um islendinginn sem er kominn til Støtt thetta er svona svipad og thegar såst svartur madur i Thistillfirdi herna um årid.
A.S Sørensen sem å verkunina herna å eyjunni var stofnad 1916 og hefur verid rekid å sømu kennitølunni sidan thå her adur fyrr voru mikill umsvif hjå thessu fyrirtæki stør saltfiskvinnsla, sildarsøltun og frysting. Og ad sjalfsøgdu rak Sørensen einnig budina og fleira. Åarid 2012 stoppudu their ad verka og lokudu verkuninni enda ordir håaldradir enda komnir yfir nirætt brædurinn sem råku thetta en budina reka their ennthå og før eg thangad i gær til ad borga oliu å batinn og thå afgreiddi annar thessar brædra mig verd nu ad segja hann var ekki snar i snuningum en eg var ekkert stressadur svo thetta gekk alveg.
I 2014 opnudi their aftur herna i breyttu snidi eru alveg hættir ad verka og føru i samstarf med Sjøset i Træna og førum einnig ut i ferdamannabisness og tar kemur dottir eigandans inn i mynda en hun flytur heim fra Oslo til ad taka vid fyrirtækinu. Svo nu er hjolin farinn ad snuast aftur herna en turstinn er jafnvel ordinn mikilvægari heldur en fiskurinn en note bane eins og tau segja sjålf ef thau hefdu ekki fiskinn væri toppurinn af køkunni horfinn svo thratt fyrir allt er thad addrattaraflid til ad lada turistann ad sjå eyjuna i drift.
Eyjusamfeløg herna i Noregi hafa ått undir høgg og hafa tau flest minnkad folk flutt i burtu. En samt er thad otrulegt arid 2015 se samt enntha svona mikil byggd i thessum eyjum vidsvegar i Noregi eins og tildæmis Røst og Træna eyjur ut i ballarhafi.
Svo svona i lokin her eru 30 manns hafa her fasta busetu allt årid samt er rekin herna matvøruverslun reyndar bara opin frå kl 0900 til 1300 en fyrir utan hefdbundin opnunartima er budin opnud eftir thørfum svo er herna einnig postafgreidsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2015 | 16:01
Kominn aftur til Konungsrikid Noreg.
Jå thad er langt å milli blogga hjå mer nuna. Og tharf sem eg er kominn med norska tølvu verdur thetta svona bjagad hjå mer en eg vona thetta skiljist. Eg er sem sagt kominn til Noregs og vid felagarnir eg og Jakob ætlum ad fara roa med linu fra eyjunni Støtt eda Træna en Modolv Sjøset i Træna er bjoda upp a Finnmark kerfi thad er ad segja ef vid løndum hjå theim fåum vid fria linu og beitingu og minste pris ( Verdlagstofu verd). Modolv Sjøset kaupir einnig fiskinn sem kemur å land i Støtt svo their voru jåkvædir ad senda linu hingad til Støtt thar sem vid erum staddir nuna ætludu their ad senda 15 bala en thad komu bara 12 svo thad er plan ad roa med eitthvad af thessum bølum i nott.
Jakob i småbatahøfninni i Støtt.
Eyjan Støtt thar sem eg er staddur nuna er eyja rett fyrir utan Reipå ca 4 sjm herna er fiskimottaka, fin høfn og god adstada fyrir trillur eina sem vantar er trillurnar og folkid en herna eru busettir um 30 manns. Her er mikill ferdamannastraumur en samt vilja ibuarnir gera allt til ad efla sjavarutveginn reyna koma Støtt å koppinn aftur og horfa their til thess sem er verid ad gera å næstu eyju herna fyrir nordan okkur Sør Arnøy en thar er mikil uppbygging og allt ad fyllast af islendingum komnar 3 eda fjorar fjølskyldur islendingar eru tilbunir af rifa sig upp fra Islandi og flytja ut å landbyggdina herna segir kannski allt sem segja tharf um byggdastefnuna hjå okkur å Islandi. Å thessari 30 manna eyju er matvøruverslun og posthus reyndar er hun bara opin fra kl 0900 til 1300 en hægt ad få hana opnada utan opnunartima bara hringja sagdi konan sem rekur budina reyndar rekur hun lika fiskimottøkuna, veitingastadinn og gistiheimili herna hun er hedan og er komin til baka fra Oslo thar sem hun starfadi sem løgfrædingur til ad taka vid af øldrudum fødur sinum.
Sed yfir høfnina og fiskverkunina
Adal storskipahøfnin i Støtt.
Adalgatan i Støtt ekki mikid um ad vera.
Vid ætlum sem sagt ad fara å sjoinn i kvøld buid er taka ut 6 bala sem var planid ad roa med i nott. Tha eigum vid eftir 6 bala til ad fara med å morgun og ef hann vill ekki senda fleiri bala hingad verdum vid ad taka stefnuna til Træna. Eg hefdi viljad helst geta roid med 12 til l4 bala i ferd th.e.a.s thegar eg er einn å båtnum en audvita ef vid værum fullmannadir væri tad 20 balar held eg.
Ågætt fiskeri hefur verid hjå theim sem eru ad roa med linu hedan svona rum 100 kg å balann en thad thigir gott herna å thessum årstima. Thad eru mikil vidbrigdi ad vera einn herna hafa ekki Solrunu og krakkana i kringum sig eins og var i sumar hjå okkur upp i Båtsfjord. Koma svo hingad ut er akvedinn sjokk manni lidur svona eins og Palla einum i heiminum eg er buinn ad rekast å 5 ibua herna i dag og sidan 2 adkomumenn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2015 | 10:45
Beðið eftir næstu vertíð
Nú liggur Jakob í Reipå og bíður eftir næstu vertíð. Þar sem ég er ekki ennþá kominn með fast bryggjupláss í heimahöfninni er ég enn og aftur alfarið kominn upp á kunningjana og þá aðallega Lars Göran að sníkja út pláss fyrir bátinn. En sem betur fer stendur til að bæta úr og er á stefnuskránni að setja niður tvær flotbryggjur nú í haust og fáum við félagarnir þá pláss þar.
Haldið á stað í langt ferðalag.
Hann er nú ekki stór hann Jakob en hefur alveg staðist væntingar eins einhver sagði "maður verður sníða sér stakk eftir vexti"
Reipåhavn er er svokölluð fiskihöfn rekin af Kystverket ( Vita og hafnamál Noregs). Höfnin er þannig uppbyggð að Kystverket leigir út lóðir á hafnarsvæðinu og og svo byggir þú bara bryggju sem er þín og nú er svo komið í Reipå að allar lóðir eru uppteknar.
Jakob N-32-ME í Tromsö en þar stoppuðum við til að kaupa Burger King.
Ferðalagið suður eftir gekk bara vel tókum við ferðalagið í einum rikk hvergi stoppað til að sofa. Reyndar stoppuðum við í Tromsö og hvíldum okkur í 4 tíma og fengum okkur Burger King og spókuðum okkur í miðbænum og meðal annars leituðum af Donkin Donuts. Við lögðum af stað kl rétt fyrir kl 16 þriðjudaginn 28. júlí og við feðgar vorum að sigla inn í höfnina í Reipa rétt fyrir kl 19 föstudaginn 31. júlí. Var brakandi blíða nánast alla leiðina suður eftir fengum smá kaldafýlu fyrir sunnan Lödingen bara svona til að minna okkur á að það er ekki alltaf blíða.
Já svona var veður nánast allann tímann hjá okkur á siglingunni suður eftir.
Núna er ég og allir komnir á Bíldudal eiginlega líður manni eins og ferðamanni hérna var að reikna það saman að ég er búinn að vera tæpar 5. vikur á Íslandi þetta árið. Svo er í bígerð annað úthald eftir 14 daga.
Allt var eins hérna á Bildó Andrinn í höfninni reyndar ekki á sama stað hafnarvörðurinn búinn að láta flytja hann á svo kallaða dauðadeild veit ekki hvort þetta séu skilaboð til okkar sem gerum bátinn út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2015 | 03:19
Nu er timi til blogga.
Ja nu er sko timi til ad blogga litid ad gera thvi vid erum lagdir af stad fra Båtsfjord nidur til Reipå i Meløy. Erum vid fedgar tveir i åhøfn
Jakob Fulllestadur af veidarfærum a leidinni sudureftir.
Sidasti rodur var å sunnudaginn og var hætt i godu fiskeri eda um 200 kg a bala og var sidiasti rodur rett tæp 3,8 tonn midad vid oslægdann fisk. Thetta var fint flotlinusumar og erum vid bara ånægd med hlutinn okkar i ar en vid fiskudum rett tæp 63 tonn thetta sumarid. Thratt fyrir frekar leidinda sumar margir bræludagar.
Allar dollur fullar å sidasta sunnudag og vid ånægdir med sidasta rodurinn thetta sumarid i Båtsfjord.
En thad voru sveiflur å fiskerinu tildæmis var størsti rodurinn rett tæp 4 tonn a 16 bala å medan så minnsti var 72 kg å 14 bala.
Nu er thad bara små fri og svo er ekkert nema halda åfram i september. I ar erum vid bunin ad fiska 110 tonn af torsk og ysu. Og er aflaverdmætid ordid 1,1 miljon å thessum tæpu thremur manududm sem baturinn hefur verid gerdur ut. Eru vid bara nokkud sått med arangurinn.
Thessa køku fengum vid fra Båtsfjordbruket eftir sidasta rodurinn. Ad minu mati er Båtsfjordbruket einn af bestu fiskverkunum og mottokum sem eg hef landad hjå her i Noregi. 100 % folk og borga alltaf yfirverd og borga lika meira fyrir gædahraefni eins tildæmis flotlinuysu.
Thessi mynd lysir kannski sumrinu vel en yfirleitt var thetta svona thegar batarnir voru ad landa en a thessari mynd sjaum vid Soløy landa en thennan dag var hann med 7 tonn a 24 bala.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.7.2015 | 08:54
Ekki verið timi til að blogga.
Já það er langt síðan ég bloggaði síðast en það hefur bara ekki verið tími til þess vegna þess að nú hefur gefið vel á sjóinn og fiskerí hefur verið með betra móti. Það blés reyndar ekki vel fyrir ca 12 dögum haugasjór og norðan átt ekkert veður fyrir Jakob og félaga, og svo á þriðjudagskvöld fyrir rétt rúmum tveim vikum komust við á sjóinn og lögðum útaf Kongsfjord og árangurinn varð ekki góður 72 kg á 14. bala allgjört búm ætla ekki að reyna skrifa hvað fór fram í hausnum á mér þegar ég stóð á rúllunni og línan kom upp með beitu á hverjum öngli og enginn ýsa veit satt að segja ekki hvernig stóð á því að ég fékk þessar ýsur sem bitu á. Eftir þetta var ákveðið að með 14 bala færum við ekki meir með þessa vertíð.
Á landleið með fullann bát þ.e.a.s í öllum körum rétt tæp 4 tonn á 16 bala.
Eftir þennan lélega róður hefur bara verið gott fiskerí og hægt að vera að bátarnir hafa verið að fá 200 til 300 kg á bala svo það má segja að hafið kraumar af ýsu. Svo bátarnir hafa komið fulllestaðir nánast hvern dag og þar hefur Jakob ekki verið nein undantekning við höfum fyllt körin núna daglega.
Eina sem hefur ekki verið jákkvætt er veðurfar en það hefur verið með daprar móti kalt og norðanvindur þó svo nú í þessum skrifuðum orðum er 17 stiga hiti.
Á sunnudagskvöldið síðasta varð ég fyrir því óláni að fá krók í fingurinn með þeim afleiðingum að hann stakst á bólakafi inn aðp beini svo það var ekki möguleiki að ná honum út svo ég varð bara teipa hann við puttann þ.e.a.s krókinn og halda á að draga en þetta gerðist á fyrsta bala af 16. Tíu tímum seinna upp á spítala var ég orðinn frekar aumur í puttanum en læknirinn var flinkur og tók það hann ekki nema nokkrar mínutur að ná króknum úr var ég frekar áhyggjufullur til að byrja með því hann talaði dönsku ekki norsku og ég hugsaði með mér danir vita nú varla hvað línukrókur er . En þetta gekk vel hjá honum. En vegna þessa varð ég að taka mér einn dag í frí við misstum einn róður.
Það er ekki bara ýsa sem beit á krókana í hjá okkur því um daginn fengum við lax ca 5kg lax.
Að vera hérna upp frá er bara ákveðin forréttindi að geta gert út sinn eiginn bát þurfa ekki að hafa áhyggjur að kvóta og kvótaleigu. Því miður eru þessi forréttindi horfinn úr íslenskum sjávarútvegi. Svo börnin mín fá svoa smjörþefinn af þessu hérna sniglast í kringum beitingaskúrana og bara í lífinu á bryggjunni eitthvað sem er orðið mjög erfitt að finna heima. Svo er sagt að enginn vilji vinna í kringum fiskveiðar eða vinnslu er það ekki augljóst þegar möguleikinn er ekki til staðar.
Mér varð hugsað til þessa um daginn þegar dóttir mín sem er 17 ára og alin upp í sjávarþorpi reyndar þorpi sem er búið að úrelta í krafti "arðseminnar", sagði við mömmu sína þegar hún sá karfa hvaða bleiki fiskur er þetta nú. Já mér var hugsað til þess hvað þetta voru í raun mikill forréttindi þegar ég var að alast upp í þessu sama þorpi fá vinnu í fyrstihúsinu 13 ára gamall kynnast sjávarútvegnum í raun. Ég fæ flashback þegar ég kem inn í Batsfjordbruket hérna upp frá og sé alla skólakrakkana sem fá þar sumarvinnu. Hugsa til gömlu dagana þegar var útgerð og líf í okkar gamla þorpi. Kannski munu einhverjir segja að ég sé bara með eitthvað rómantískt blaður sem eigi ekkert stoð í raunveruleikanum það getur svo vel verið en ég tel það alveg nokkuð ljóst að stefna okkar íslendinga í sjávarútvegsmálum er kolröng að útloka fólk frá einni atvinnugrein er bara ekki rétt. Svo segi ég alltaf arðbært fyrir hvern?.
Nú fer að styttast í veru okkar hérna síðasta vikan runninn upp svo verður tekið langþráð sumarfrí það er erfitt að gíra sig niður og stoppa bátinn í góðu fiskerí og engum kvótaböndum ( frí ýsuveiði). En ég ætla nú samt að gera það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2015 | 16:05
Allt gengur sinn vanagang
Hér i Batsfjord og við búin að koma okkur vel fyrir í litlu risíbúðinni fyrir ofan skrifstofu Batsfjordbruket. Erum við búin að fara 13 sjóferðir og aflinn eitthvað í kringum 20 tonn. Svo þetta fer betur af stað heldur en í fyrra og ýsan er líka mikið stærri mikið ýsa í kringum 2 til 3 kg.
Litla fjölskylduútgerðin er sem sagt tvískipt ég sé um að róa og reyna fiska. Sólrún og Birna eru í beitingaskúrunum Svanur Þór er landmaður sér um að greiða flækjur og hafa yfirsjón með öllu í landi. Með þessu móti verður mikið að innkomunni eftir í okkar vasa en eins og kannski allir vita er línuútgerð dýr. Svo erum við með eina konu frá Litauen sem betir fjóra bala á dag. Því miður lendum við í því að við urðum að láta konuna sem var hjá okkur í fyrra fara, hún Lima sem sem stóð sig svo vel í fyrra datt bara í það og var farin að koma full í beitingaskúrinn og það fór lítið fyrir beitingu hjá kellu. Við horfðum nú framhjá þessu og héldum að þetta væri eitthvað uppáfallandi en þegar kella var búin að vera full í viku þá bara sáum við að þetta gengi ekki lengur svo hún fékk uppsagnar sms og hún Jurgita kom í staðinn ætla ég að vona hún standi sig.
Við feðgar að fara taka balana.
Þegar kella var í þessu formi gekk að sjálfsögðu lítið í skúrnum og var orðið mikið óbeitt því við reyndum að halda áfram að róa. En nú er þetta komið í lag sem betur fer.
Síðasta sjóferð var sú besta hingað til í tonnum eða rétt tæp 3. tonn á 16. bala en besta sjóferðin í ár er sjóferð nr tvo sem var rúm tvo tonn á 10 bala en þá var ég einn en nú er ég kominn með félaga með mér íslending sem flutti til Tana sem er hérna fyrir fyrir innan Batsfjord inn í landi þar sem Samarnir búa. Hann er sem sagt með mér og ætlar vera eitthvað svo nú er þetta aðeins meira í betingu minna um frí, þó svo ég ligg í landi þá er nóg að gera í beitningaskúrnum.
Það er alltaf að fjölga íslendingum í útgerð hérna ytra menn sem hafa ákveðið að freista gæfunnar hérna. Á þessu ári hefur verið nánast flóðbylgja og maður spyr sig hvers vegna menn séu að "flýja besta kerfi heimi". En ég held að norðmönnum sé farið að láta þetta fara pínulítið í taugarnar á sér og þeir bara skilja ekkert í þessu þeir sjá í fréttum að sjávarútvegurinn á Íslandi sé í svo miklum blóma og svo er við að flýja hingað þeim finnst mikill mótsögn í þessu. Staðreyndin er sú að hér er bara mikið auðveldara að komast inn kvótar eru ódýrir miðað við Ísland og svo er opna kerfið sem er opið öllum atvinnusjómönnum.
Að gera út trillu hérna er enginn peningavél en það gengur vel upp og þú ert þinn eiginn herra og þú sérð árangur kannski aðeins öðru vísi en þegar ég var tildæmis að basla í því að gera út á leigukvóta á Íslandi þá sá maður aldrei til sólar var í rauninni þræll.
Það eru sjö bátar hérna sem róa með flotlínu þ.e.a.s landa hjá Batsfjordbruket. Svo eru einhverjir hjá Norway Seafood.
Hér er einn af þeim sem rær hérna hann Olav á Start hann vill helst ekki nota krana til að taka bjóðin um borð heldur gerir hann þetta svona þegar það er fjara. Hér erum við feðgar að hjálpa honum
M-Solhaug að draga netin um daginn en hann er bæði útbúi til að róa með net og línu.
Þegar hann rær með línu notar hann handbeita línu er ekki með beitingarvél tekur 800 bala með sér í senn og svo fyrstir hann aflann um borð. Kemur hann svona ca einu sinni í viku að ná í bala og svo landar hann á 14 daga fresti.
Hér sjáum við M-Solhaug á landleið hann er nánast nýr kom í apríl í fyrra byggður í Tyrklandi.
Svo í lokin er einn gamall trébátur hann Klogrunn fra Balstad
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2015 | 17:18
Flotlínan byrjuð.
Já búið er að ná í fjölskylduna niður til Bodo svo var keyrt á nýja Peugeot bílnum frá Bodo til Batsfjord rétt rúmlega 1300 km sem við keyrðum, krossuðum Svíþjóð og Finnland á leiðinni.
Síðan þegar komið var í Batfjord var bræla og ekkert að gera nema gera nema beita, svo á sunnudaginn síðasta var farið í fyrsta róðurinn með flotlínu var farið í samfloti með Olav á Start og var árangurinn bara fínn eða rétt rúm 200 kg á balann. En tíðin er búinn að vera frekar leiðinleg svo það verða aðeins þrír róðrar í vikunni. En flotlínu er ekki hægt að stunda nema það sé gott veður og er 8 til 9 metrar á sek bara grensinn á til að einhver alvöru árangur verður. Ýsan sem veiðist er stór og bara flott ýsa.
Í þessum skrifuðu orðum er bræla hérna vestan kuling ( kaldaskítur) svo það verður ekkert sjóveður fyrr en á sunnudaginn tíminn er notður til að betrum bæta og að sjálfsögðu að beita upp.
Nú hefur komið í ljós að ýsustofninn er miklu stærri heldur en reiknað var með svo það er búið að auka heildarkvótann um 25% og búið að auka kvótann hjá bátum undir 11m um 92%. Já fiskifræðingarnir misreiknuðu hryggingarstofninn um rétt rúm 300 þúsund tonn. Þegar það var orðið ljóst var fundað með Rússum og kvótinn aukinn 25%. Kannski mættu menn taka þetta til athugunnar á skerinu.
Það eru komnir 30 balar í frystrinn og allt orðið klárt fyrir næstu viku. Vonandi verður framhald á fiskerínu og vonandi verða veðurguðurnir okkur hliðhollir.
Ég held að þetta sé annað hvort Guðbjörg GK eða Árni ÓF síðan Stapi BA-65. Ef þetta er Stapi þá var ég þarna vélstjóri í gamla daga.
Í dag fórum við í Rema 1000 svona bónusverslun þeirra norðmanna og þar var ekki þverfótað fyrir íslendingum en var þar áhöfnin af Sigurbjörgu ÓF og af Norma Mary.
Hérna er svo einn sem var færeyingur einu sinni en er nú rússneskur gamla Skálaberg. búinn að liggja hérna í langann tíma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2015 | 18:27
Allt að verða komið fastar skorður
Já lífið farið að komast í réttar skorður hjá okkur hérna upp í hjara veraldar. Byrjað að róa á fullu eða eigum við ekki að segja á svona 50% afköstum því það er ekki komið fullur gangur í beitniguna en það fer að komast á fullu ferðina.
Meiri segja er sumarið komið hingað og hugsa ég að sumarið sé svona þremur til fjórum vikum fyrr á ferðinni heldur en í fyrra hérna upp frá. Ef sumarið verður gott þá verður vonandi gott ýsufiskerí.
Og nú er held ég komið að því að fara prufa flotlínu að einhverju alvöru fara að leita að lóðningum og leggja heila setningu. En í síðustu viku hef ég verið að leggja á botninn. Fiskerí hefur verið þokkalegt nema í blíðunni í nótt þá var búm hjá kallinum en svona getur þetta verið ekki alltaf mok.
Eftir aðeins tæpa viku í drift er komið frí hjá áhöfninni á Jakob. En ekkert verður róið mánudag, þriðjudag og miðvikudag. En ég er að fara til Reipa til að ná í bílinn og restina af beitngarfólkinu ( fjölskylduna). Síðan er planið að keyra hingað upp eftir og þess vegna er þetta svona langt frí því það tekur tíma að keyra þessa 1200 km sem vegalengdin er hingað upp eftir frá Reipa. Ég sem sagt flýg héðan á morgun til Bodö og þangað kemur fjölskyldan og við höldum þaðan hingað upp eftir aftur í sumarið.
Svo það mun fjölga fljótlega í kringum okkur Jakob sem er bara mjög jákvætt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jón Páll Jakobsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar