Færsluflokkur: Bloggar

Úthlutuð kvóta í Arnarfirði náð.

Já síðasti róður var í gær en þá náðum við settu markmiði að klára úthlutað kvóta sem Andri BA-101 hefur í Arnarfjarðarrækju. Fórum við 17 sjóferðir og veiddum 50.162 kg í þeim sem gerir 2.950 kg í róðri eða tæp 3 tonn. Byrjuðum við 11. janúar og lokin þann 8.feb. Aðeins í síðustu viku náðum við að veiða alla vikuna eða frá mánudegi til föstudags. Nú er bara binda Andra vel því sennilega verður hann ekki hreyfður fyrr en á nýju kvótaári ( kannski verður farið í siglingu á sjómannadaginn hver veit Cool.) 

DSCN1396

 

Það eru ekki allar rækjur litlar í Arnarfirði eins og sjá má á þessari mynd. Sú stóra man sennilega tímana tvenna og hefur allavega sloppið undan rækjusjómönnum undanfarin fimm ár. Sú minni ekki jafn heppin.

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1400

 

Ýmir tekur trollið í gær inn á Borgarfirði.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1401

 

 

Hér sjáum við Gíslasker, en vertíðin var enduð á því að toga fyrir sker og allaleið út með Langanesgrunni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nú er bara bíða eftir því að Steingrímur komi með óbreytt kvótafrumvarp svo það sé alveg öruggt að útgerðarklúbbnum verði endanlega lokað.  


Fjórða vikan búinn á Arnarfjarðarrækjunni

DSCN1375Jæja þá erum við búin að vera á veiðum í fjórar vikur. Afli var frekar tregur hjá okkur í þessari viku fórum við fimm sjóferðir og höfðum um 12 tonn upp úr krafsinu. Nú eigum við 2,6 tonn eftir að úthlutuðum veiðiheimildum og reikna ég fastlega með því að klára í næstu viku og þarf vonandi ekki nema tvo daga til þess. Við erum búin að eyða rétt rúmum 4400 ltr af olíu til að ná í 46,6 tonn af rauða gullinu. Sem ég tel mjög viðunandi.

 

Arnarfjörður skartaði sýnu fegursta á Miðvikudaginn en þá vorum við á veiðum inn á Suðurfjörðum og höfðum rétt rúm tvo tonn eftir daginn.

 

DSCN1377

 

Sjáum hérna inn á Trostanfjörð á miðvikudaginn en veður gerast ekki betri en þarna.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1382

 

 

Trollið tekið á miðvikudaginn í mynni Geirþjófsfjarðar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1383

 

Hásetinn einbeittur að hífa í rússann (en svo nefnist reipi það sem notað er til að hífa belg og poka að síðunni þegar troll er tekið á síðuna)

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1384

 

Þarna sjáum við þegar seiðaskilja nálgast en ekki enn þá hægt að sjá hvort eitthvað sé í pokanum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1385

 

Skiljan nálgast og eitthvað í pokanum en ekki stórt.Crying

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1386

 

 

 Ansans þetta er ekki nógu gott ekki fullur poki eftir einn og hálfan klukkutíma.

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1387

 

 

usss usss þetta er ekki meira en 400 kg.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já ekki var það björgulegt þarna svo nú er ekkert annað en að kasta trollinu aftur og reyna á nýjum slóðum.

 

DSCN1388

 

 

Allt klárt til að sleppa pokanum. Og hásetinn bíður spenntur eftir að fá merki frá skipstjóranum lagóoóó.

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1389

 

Hásetinn einbeittur að bíða eftir lagóóó.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1390

 

 

Pokinn farinn þá er bara að fylgjast með rússanum að allt fari fram eftir settum reglum .

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1391DSCN1391

 

Allt að verða klárt svo hægt verði að kasta aftur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á miðvikudaginn tók ég þessa mynd og svo tók ég í dag mynd tekin í dag á svipuðum slóðum og við sjáum glöggt hvað snjórinn hefur hopað á þessum tveimur dögum.

DSCN1380
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
DSCN1395

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Ætli ég láti þetta ekki vera gott í bili.  


Þriðja vikan búin

Jæja þá eru þrjár vikur búnar á rækjuveiðum þetta árið og farið að síga á seinnihlutannWoundering. Nú eru ca 14 tonn eftir af úthlutuð kvóta. En búið er að veiða um 35 tonn af 49 tonna kvóta. 

Þessi vika einkenndist af leiðinlegu tíðarfari og voru bara þrjár sjóferðir farnar. Mánudag,fimmtudag og föstudag. Og höfðust 8,3 tonn í þessum veiðiferðum. Vorum við tvo daga inn á Geirþjófsfirði og suðurfjörðum Arnarfjarðar og einn dag fórum við fyrir Langanesið og drógum á norðurfjörðum Arnarfjarðar.

 

DSCN1350

 

Hér sjáum við Brynjar BA-128 taka trollið við Ófærunesið á Fimmtudaginn. Þarna eru þeir félagar að byrja að hífa í stertinn eða rússann og þar með hífa pokann að síðunni.

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1349

 

Ýmir BA-32 að taka trollið við endann á Ófærunesgrunninu sem skilur að Geirþjófsfjörð og Trostansfjörð á fimmtudaginn þarna höfðu þeir fest þegar þeir ætluðu að toga með grunninu og inn á Trostansfjörð.

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1352

 

Þeir bræður að taka trollið inn á Fossfirði á fimmtudaginn en þarna eru þeir að undirbúa að taka trollið innfyrir og halda í höfn því dagbirta á síðasta snúning.

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1355

 

 Þessi er tekin í gær föstudag og nýbúið að hífa við Gíslaskerið og eru þeir bræður Sindri og Hlynur önnum kafnir að hreinsa rækjuna og koma henni niður í lest þarna erum við á Andra alveg við hliðina á þeim og erum að toga inn fjörðinn.

 

 

 

 

 

 

 

 

Hörmulegt sjóslys varð í Noregshafi í vikunni þegar Hallgrímur SI-77 fórst og með honum þrír menn en einn bjargaðist úr hafi. Ég votta aðstandendum samúð mína. En vill hrósa norsku strandgæslunni fyrir björgunarstörfin við mjög erfiðar aðstæður.

DSC01416

  Á Hallgrími var undirritaður stýrimaður í eitt og hálft ár og líkaði vel við skip og áhöfn. Þarna sjáum við þegar skipið kemur til Bíldudals frá Ísafirði og má segja að undirritaður hafi fylgd með í kaupunum en áður en skipið var keypt til Bíldudals hét það Sólborg I og var gert út til rækjuveiða frá Ísafirði.

 

 

 

 

 

 

DSC01461

 

Góð stund um borð í Hallgrími

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta var nú eitt besta sjóskip sem ég hef verið á og duglegur togari í allastaði.  


Önnur vika búin hjá okkur á rækjunni.

Þá erum við búin að fara 8. ferðir til rækjuveiða í Arnarfjörð og fiska tæp 26 tonn og erum því rúmlega hálfnuð með úthlutað kvóta. Við fórum 4 daga í þessari viku sem er að líða og var afli ágætur vorum við mest á veiðum inn á suðurfjörðum Arnarfjarðar en fórum reyndar inn á Borgarfjörð í gær prufuðum að draga kúlubótina með litlum árangri og héldum því snemma í land. Því frekar kuldalegt var í Ísafjarðarbæ í gær. Reyndar var búið að ákveða að vera snemma í landi vegna pizzuveislu sem við erum alltaf með á föstudögum fyrir heimilisfólkið á Dalbraut 30 og auðvita vorum við með rækjupizzu á boðstólnum Wink. Og smakkaðist hún auðvita vel.

 

DSCN1335

 Búið að innbyrða gott hal inn á Geirþjófsfirði en þar vorum við á veiðum á miðvikudaginn og fyllti þetta hal kassann og gott betur. En afli var mjög góður þennan dag eða yfir 6 tonn í 4 hölum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1336

 

Þarna erum við búin að kasta aftur og byrjuð að toga og þá er ekkert nema koma aflanum niður í lest því bara rúmur klukkutími þangað til híft verður aftur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1334

 

 

Nóg að gera hjá hásetanum og var lítið um pásu þennan daginn og ekkert hægt að hanga á facebook!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1330

 

 

Á þriðjudaginn vorum við að fiska við Boðann sem gengur út úr Reykjafirði og voru þeir bræður á Ýmir BA-32 einnig með okkur þennan dag og þarna eru þeir ný búnir að taka trollið á Trostanfirði og eru þarna báðir úti að hreinsa.

 

 

 

 

 

 

DSCN1338

 

Ný búnir að mæta Brynjari BA-128 í mynni Geirþófsfjarðar. Þetta er tekið á fimmtudaginn en þá vorum við allir þrír á veiðum á þeim slóðum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1341

 

Hér erum við að toga með Ýmir BA-32 á fimmtudaginn þarna erum við að toga út Geirþjófsfjörðinn að norðanverðum og þarna er ekki langt á milli bátana en við vorum allir hnapp þarna seinnipartinn.

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1339

 

 

Léleg mynd Brynjar og Ýmir að toga alveg upp við hvorn annan við Krosseyri á fimmtudaginn.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1342

 

 

Á föstudaginn vorum við á Kúlubótinni (Auðkúla) með litlum árangri en fengum 950 kg í tveimur hölum áður en við fórum heim. Þarna sjáum við Hrafnseyri.

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1344

 

 

Þessi er svo tekin af Auðkúlu og er gamla kaupfélagshúsið sem sést þarna í fjörunni og Auðkúla í fjarska.

 

 

 

 

 

 

 

 

En auðvita hefði maður átt að prufa Baulhúsaskriðurnar bara svona til að geta séð ættaróðal okkar í BaulhúsaættinniCool 


Fyrsta vikan búin á rækjunni.

Jæja fyrsta vikan búin og veiðar gengu þokkalega. Reyndar var ekki farið á þriðjudaginn vegna veðurs. Ætli við höfum ekki fengið ca 12 tonn í þessum ferðum. Alveg ásættanleg veiði hefði nú samt mátt vera meiri reyndar er ekki mikil dagsbirta í byrjun janúar og er því veiðitími stuttur því rækjan er ekki veiðanleg í myrkrinu eða svo segja reyndir rækjuveiðimenn hérna firðinum.

 

DSCN1309

 Séð inn á Dynjandavog á miðvikudaginn síðastliðinn en þarna var mjög gott veður. og Arnarfjörður skartaði sýnu fegursta.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1311

 

 Ýmir á toginu á miðvikudaginn nýbúinn að láta það fara.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1313

 

 Hásetinn á Andra BA-101 tilbúinn slaginn eftir að búið var hífa.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1314

 

Rækja í móttökunni og hásetinn að hreinsa niður í lest. Þetta var nú kallað rauða gullið hérna á Bíldudal áður fyrr á varla við í dag. Nú hefur kalkið tekið við. Þó svo rækjan sé ekki lengur sá burðarás í atvinnulífi Bílddælinga eins og áður er hún samt alltaf jafn bragðgóð.

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1315

 

Dynjandi á fimmtudagsmorgun en kald var í veðri og varla hægt að greina fossinn þarna.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1319

 

 

Ýmir að láta byrja að láta trollið fara í blíðunni á fimmtudagsmorgun ekki alveg orðið bjart þarna en kl er rúmlega níu að morgni.

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1325

 

Mæta Brynjar BA í gær föstudag, rigningunni, þetta er fyrir innan Skeleyri, en við vorum að draga í kantinum fram að Urðarhlíðinni í gær frá Skeleyri inn á Dynjandisvog, var ágæt kropp.

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1327

 

Tók svo eina mynd seinnipartinn í gær sem sýnir dráttarvél vera moka Urðarhlíðina opna veginn úti í Mosdal, sennilega eitthvað tengt Stórbýlinu Laugarbóli.

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo tekur bara önnu vika við á mánudaginn og verður maður bara að vona allt verði lagi og veður hagstætt svo hægt verði að halda á að veiða rauða gullið. 


Rækjuveiðar hafnar í Arnarfirði 2012.

Já rækjuveiðar eru hafnar var fyrsti róður hjá okkur á Andra í gær og þá var einnig Ýmir BA-32 á sjó. Veður var frekar leiðinlegt til að byrja róðra en lægði þegar leið á daginn. Afli var þokkalegur Andri með rúm 3 tonn og Ýmir með 4,5 tonn. En það var frekar kuldalegt og var erfitt fyrir undirritaðann að þurfa allt einu að byrja að vinna útivinnu eftir að setið á xxxxxxxxxx í allt haust en þetta hafðist nú allt saman. 

DSCN1290

 Arnarfjörður í gærmorgun þarna í fjarska sjáum við Ýmir BA-32. Frekar kuldalegt. En svo sem ekkert fyrir hrausta Arnfirðinga.

Það gekk á með dimmum SV éljum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1292

 

 

Ýmir að slefa trollinu fyrir framan stefnið hjá okkur í gærmorgun. Tekið út um stýrishúsgluggann

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1295

 

 

Þarna er hann að skríða fyrir stefnið.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1301

 

Og hérna komnir fram fyrir okkur og tilbúnir að láta það fara. Hlynur Björnsson tilbúinn að slaka og mér sýnist að bróðir hans Sindri sé að öskra laggóó akkúrt þegar ég smellti af. Þarna sjáum við Skeleyrina og grillir í bæinn Ós.

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1302

 

Hérna erum við að mæta þeim bræðrum seinnipartinn í gær og allavega annar þeirra er að hreinsa hinn sennilega að tala við mig í talstöðina eða í gemsann.

 

 

 

 

 

 

 

 

DSCN1291

 

Og svo sjáum við dekkið á Andranum greinilegt að hásetinn hefur talið að það þyrfti ekkert að skola snjóinn burt.

 

En spilvélin sem skift var um milli hátíðanna  er þarna fram í bakka og stóð sig eins og hetja í fyrsta róðri eins og auðvita öll áhöfnin, en hún virðist vera öflugri og betri heldur en sú gamla blessuð sé minning hennar.

 

 

 

 


Hann Hlynur klikkaði ekki.

Búið að gefa út Rækjukvóta í Arnarfirði og máttu bátar fara á sjó í dag en enginn fór. Það fengu 5. bátar úthlutað kvóta á þessari vertíð. Og uppfylla 4. skilyrði fyrir því að fá veiðileyfi til að byrja. Einn bátur er ekki skráður á Bíldudal og fyrirtækið á ekki þar heimilsfesti og því fær hann að óbreyttu ekki veiðileyfi!. En þeir bátar sem fengum úthlutað aflamarki í Arnarfirði eru: Andri BA-101 49 tonn. Brynjar BA-128 49 tonn. Höfrungur BA-60 33 tonn. Ýmir BA-32 33 tonn. Egill ÍS-77 33 tonn.

Reikna ég með að bátar byrji strax eftir nýtt ár. Við Andra menn höfum þó reyndar staðið í vélarbilun en spilvélin hjá okkur hrundi fyrir jólin og erum við búnir að fá aðra vél og erum við þessa dagana að gera hana klára og vonandi verðum við búnir fyrir lok þessa árs.

Reikna ég með því að rækjan muni fara til vinnslu í Grundarfirði eins og undanfarin ár, en Rækjuvinnsla hér á Bíldudal hefur legið niðri í mörg ár og því er ekkert annað að gera en að senda rækjuna í burtu. Og má segja að það sé grátlegt að þurfi að gera þegar verksmiðja er til staðar á staðnum, en svona er þetta bara því miður.

Ég óska svo öllum gleðilegs nýs árs og vona að nýja árið verði farsælt.

Polarhav og fleira í Bergen 011

 Set hérna myndir inn úr síðustu ferð til Noregs. En Polarhav á að fara út 4 janúar og ætlar Torleif sjálfur að fara með hann. 

En Hér sjáum við Bourbon Moonson, á honum er íslenskur stýrimaður.

 

 

 

 

 

 

Polarhav og fleira í Bergen 012

 

Þetta eru hlerarnir á Hafrannsóknarskipinu Johan Hjort, hef ekki séð þessa tegund áður og veit ekki hver framleiðir þessa en þeir eru hringlaga.

 

 

 

 

 

 

Polarhav og fleira í Bergen 005

 

Hér sjáum við fóðurflutingaskip fyrir laxeldi kannski eigum við eftir að sjá svona skip hérna í framtíðinni hérna í Arnarfirði þegar allt verður komið á fullt hérna hver veit.

 

 

 

 

 

 

Polarhav og fleira í Bergen 027

 

Hér sjáum við svo Polarhav í Bergen. Kannski ekki flottasti báturinn í flotanum en góður bátur og alveg sérstaklega gott sjóskip.

 

 

 

 

 

 

Polarhav og fleira í Bergen 040

 

Og er ekki við hæfi að setja eina mynd af Callesen vélinni eða Olgu eins og við köllum hana. Alveg einstaklega góður mótor alveg öruggt að danir kunna þetta fag. 5. strokka og gefur 600 hestöfl.

 

 

 

 

 

 

IMG_4748

 

 Andri BA-101.

 

 

 

 

 

 

 

Gistiheimilið 024

 

 Brynjar BA-47.

 

 

 

 

 

 

 

Gistiheimilið 019

 

 

Ýmir BA-32.

 

 

 

 

 

 

Á því miður ekki mynd af Höfrung BA-60 eða Egill ÍS.

 

 

 

 

 

 


Rækjuveiði verður örugglega leyfð

eða svo segir Hlynur Björnsson Vélstjóri á Ýmir BA-32. sskr 1499. En þeir voru í seiðarannsókn fyrir hafró í síðustu viku og hann var svo bjartsýnn að hann sagði þetta við mig og ég trúi honum.

Rannsókninni lauk á fimmtudaginn svo við gætum fengið að vita þetta fyrir jól nema hafró sé farin í jólafrí. Það væri kærkomið að hreyfa bátinn þ.e.a.s Andra BA-101 en hann hefur legið óhreyfður síðan 28. janúar síðastliðinn ef frá er talin ein ferð suður í Stykkishólm þar sem hann var tekin í slipp.

Svanur og löndun 001

Hér sjáum við Svan Þór Jónsson tilbúinn í löndun úr Andra BA-101 í mars 2009 er þetta fyrsta löndun bátsins á Bíldudal nánar tiltekið 23.03.2009.

 

 

 

 

 

 

 

 

Svanur og löndun 004

 

Einbeittur á svipinn.

 

 

 

 

 

 

 

 

Svanur og löndun 006

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna ríkti mikill bjartsýni hjá okkur Hafró búin að leyfa 500 tonna kvóta og við máttum veiða 125 tonn. Svo bjartsýnir vorum við að við ákváðum að skipta um spil og allt glussakerfi  í bátnum og setja tog og dragnótartromlu um borð. En þá komu fyrstu neikvæðu fréttirnar kvótinn var skorinn niður úr 500 tonnum niður í 300 tonn og máttum við veiða 75 tonn. Svo það varð mikið reiðarslag fyrir reksturinn þegar ný var búið að fara í svona miklar fjárfestingar. Enginn teikn voru á lofti að stofninn væri á niðurleið. Svo á síðustu vertíð var kvótinn 400 tonn og fengum við að veiða 100 tonn. Svo í ár hefur ekki verið gefið út aflamark í Arnarfjarðarrækju vegna seiða í firðinum, og við vitum að stofn rannsóknin í haust eykur ekki bjartsýni okkar á stórum heildarkvóta en við vonum það besta.

rækja og fleira 003

 

En við skulum vona að kvótinn verði stærri heldur en þessi mynd gefur til kynnaCool

 

 

 

 

 

 

 

rækja og fleira 002

 

Hey þetta er nú ekki skipstjórinn á Andranum nei nei þetta er nú gamall rækjusjómaður úr Arnarfirði sem man tímana tvenna, að upplifa rækjufílinginn svona rétt fyrir elliheimilið.


Verkefni lokið og kominn til Íslands

Já föstudaginn 2. des fengum við fyrirmæli frá Statoil að okkar þjónustu væri ekki lengur krafist á Troll svæðinu og við ættum að halda heim á leið.Smile. Svo seinnipartinn á föstudaginn 2. des settum við stefnuna norður til Örnes. Fyrst settum svið stefnuna á Stad og svo þaðan á eyjuna Smöla og þaðan settum við stefnuna innan skerja alla leið til Örnes vorum við í heimahöfn á sunndagskvöld þann 4. des fengum við mjög gott veður ef frá er talið fyrstu 14 klst frá Troll til Stad. Þar var leiðindarbræla var reyndar lens en við fengum alveg samt að finna fyrir því. Strákarnir á Polar Atlantic sem voru í sama verkefninu en vorum mikið lengra út í hafi á svæði sem heitir Vigdis voru ekki eins heppnir það var styttra hjá þeim heim en þeir voru samt 14 tímum á eftir okkur skipstjórinn þar tók ákvörðun að halda fyrst í stað í Norður. Algjör klaufaskapur hjá honum líka norskur en ekki íslenskurW00t (má ekki segja svona).

Já verkefni sem átti að taka 10 daga varð að 8. vikum svona getur þessi bransi verið og til gamans var. Skipið sem við vorum að vinna með frá Subsea7. Skandi Seven búin að hafa áhafnarskifti þrisvar á þessu tímabili, en þar sem við reiknuðum aldrei með svona löngu verkefni var ekkert skipulagt að hafa nein áhafnarskifti um borð hjá okkur. 

Heim fra Troll 001Þarna er norska ströndin að koma í ljós á Laugardagsmorgun og við komnir fyrir Stad og bara orðinir nokkuð sáttir á heimleið.

 

 

 

 

 

 

 

Heim fra Troll 006Að nálgast Brönnoysund alltaf gaman að sigla þarna í gegn og sérstaklega þegar svona gott veður er en þarna erum við að nálgast brúna þarna er mjög þröngt og ekki mjög djúpt og til dæmis ekki hægt að mæta Hurtigruta þarna.

 

 

 

 

 

 

Heim fra Troll 007Rétt áður en við fórum undir brúna sveigði þessi trilla upp að okkur og fylgdi okkur svo í gegnum sundið.

 

 

 

 

 

 Heim fra Troll 009 Hérna sjáum við svo að ekki er langt í húsin þegar sigld er í gegnum rennuna inn til Brönnoysund og hlýtur að vera frábært fyrir bátaljósmyndara að eiga heima þarna og ná allri skipatraffíkinni sem fer þarna í gegn.

 

 

 

 

 

 

 

Heim fra Troll 010

 

Ekkert jafnast við að eiga sína eigin bryggju en þarna er eyja sem er í sjálfum sundinu og þaðan eru þeir Bradersen bræður Steinar og félagar en Steinar komst á stórþingið á sínum tíma.

 

 

 

 

 

Heim fra Troll 011

 

Komnir í gegnum Brönnoysund og Helgelandkysten blasir við af þessum er Nordlendingar mjög stoltir.

 

 

 

 

 

 

Frá Brönnoysund til Sandnessjoen fengum við þessa báta í návígi.

Heim fra Troll 016

 

Rockall danskur uppsjávarbátur.

 

 

 

 

 

 

 

 

Heim fra Troll 020

 

Kominn framhjá. Flott skip.

 

 

 

 

 

 

 

 

Heim fra Troll 021

 Global I renndi sér framhjá okkur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heim fra Troll 024

Og svo að lokum Hurtigruta Midnatsol sem kom skömmu seinna.

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég flaug svo heim til Íslands þann mánudaginn 5. des. Fyrst fór ég keyrandi frá Örnes til Bodö og flaug þaðan til Oslo gisti á hóteli við Gardamoen (flugvöllinn) og svo flaug ég til Kaupmannahöfn og þaðan til Keflavíkur og gisti eina nótt í Reykjavík og flaug svo frá Reykjavík til Bíldudals og var ég kominn heim á miðvikudaginn 7. des hjá frekar langt ferðalag. Og nú er bara bíða og sjá hvort verði leyft að veiða rækju hérna í Arnarfirði. En í næstu viku fer fram rannsókn um hvort það verði leyft eður ei..


Leitað vars.

Í gærkveldi tók ég þá ákvörðun í samráði við Subsea7 að leita vars  og fengum við leyfi kl 2130 til að yfirgefa varðstöðu við TrollC. "permission to seek shelter". Ástæða að við fengum að yfirgefa svæðið var stormur sem er að herja á í þessum skrifuðu orðum . Við héltum í var inn í Sognefjörð sem er langur og djúpur (veit ekki hvort hann sé lengstur Norskra fjarða allavega ekki langt frá því) við erum núna á ca 600fm dýpi og eigum eftir ca 70 sjm inn í botn og erum búnir að sigla svona ca 16 sjm. Reikna með að halda út á miðin í kvöld og vera kominn í varðstöðu um miðnættið sýnist að það ætti að ganga upp.

Við fengum smá jákvæðar fréttir af steinskipinu þ.e.a.s skipinu sem á að hylja kapalinn sem við erum að vakta, skipið er að lesta grjóti í nágrenni Bergen og er svo væntanlegt eftir það það er verið að koma ca 27.000 tonnum af grjóti um borð í það. þarf nokkur vörubílahlöss í það.

STORNES

En hér sjáum við mynd af steinskipinu Stornes sem á að gera þessa vinnu það er 175m langt og 26 m breitt. það getur unnið niður á 2000m dýpi. Slaka þeir röri niður og fara svo steinarnir í gegnum rörið niður á botn akkúrat þar sem þeir eiga að vera. 27.000 tonn í ferð. Það er Hollenska fyrirtækið Van Oord sem á skipið kemur ekki á óvart að hollendingar eigi svona skip því mikið þarf að dæla til efni í Hollandi.

 

 

STORNES2

Hér sjáum við svo Stornesið lesta einhvers staðar

 

 

 

 

 

 

STORNES3

 

Svona lítur það út tómt. Stornes er smíðað í Kína 2010 það er með 2X 4000 kw vélar og gengur ca 15 sjm það ristir 10,7 m en lestað tæpa 15 metra. í áhöfn eru 56  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Jón Páll Jakobsson

Höfundur

Jón Páll Jakobsson
Jón Páll Jakobsson

Er fæddur í Reykjavík rétt fyrir gos en uppalinn á Bíldudal, Útskrifaður frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1993 og hef starfað við það síðan, er giftur og á 4 börn. Er forfallinn Aston Villa stuðningsmaður.

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 1000012950
  • Messenger creation FA854288-631B-469C-BE10-7BEBDB104BDF
  • 1000012945
  • 1000012965
  • 1000012866

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband