Færsluflokkur: Bloggar
13.10.2011 | 16:17
Kominn aftur til Noregs
Já svona getur þetta verið. Átti nú ekki von á því að fara til Noregs í bráð en var plataður til að taka að mér verkefni í olíubransanum. Er ekki búinn að fá heildarmyndina en við eigum semsagt að fara á Polarhav og suður á Troll olíusvæðið en það er fyrir utan Bergen. Frá þeim stað sem ég eru núna eru 460 sjm eða um 60 tíma sigling. Við erum að fara vinna fyrir Subsea fyrirtækið útaf einhverjum borpalli sem var fluttur til við eigum að vakta svæðið þangað til eitthvað stórt skip kemur með grjót til að setja á botninn, og er reiknað með 4 til 5 dögum á sjó svo mér sýnist þetta geta orðið 10 dagar í það minnsta. Ég hugsa að við byrjum á morgun en erum reyndar að bíða eftir grænu ljósi frá Subsea.
Hér sjáum við Borpallinn á Troll C .
Hér sjáum við svo borpallinn á Troll A í líkingu við Eiffel turninn. Dálítill munur En einhvert þangað er ferðinni heitið.
Hér er Troll A á sínum stað og farinn að vinna gas fyrir alla evrópu.
Hér er verið að draga ferlíkið á staðinn það eru nokkrir dráttarbátar notaðir við verkið, sé nú samt ekki Polarhav þarna.
Held ég fari með rétt mál að þetta sé stærsta mannvirki sem hefur verið flutt til þ.e.a.s fært frá byggingarstaðnum og þar sem hann er núna. Pallurinn er 472 m á hæð og vigtar 683,600 þúsund tonn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2011 | 10:34
Rækjurannsókn lokið og nú er bara bíða!
Dröfn RE-35. Búin að rannsaka fyrir okkur Arnarfjörðinn, og nú á eftir að reikna út hvað mikið að rækju sé núna til í firðinum og hvort og þá hvað mikið við fáum að veiða. Mín tilfinning varðandi rannsókina að stofninn sé eitthvað undir meðallagi en mikið að smá rækju (hlýtur að vera gott fyrir framhaldið). Ég reyndar set dálítið spurningarmerki með aðferðarfræðina sem notuð er hvort þetta rall með fyrir fram ákveðnum togum sem eru alltaf toguð og stofninn reiknaður út frá þeim, t.d togin eru aldrei tekin á sama tíma stundum í byrjun okt stundum um miðjan okt eða í lok mánaðar. T.d núna var stórstreymt þegar rannsakað var þetta allt hefur áhrif og t.d gæti verið rækja á slóðinni í dag en ekki á morgun þannig að ég held að Hafró verði bara að fara að hugsa þessar rannsóknir upp á nýtt.
En við verðum bara að bíða og sjá þegar 12. manna ráðið (Hafró ) heldur sinn fund í næstu viku og ákveður hvort við fáum að veiða hérna í firðinum. Svo þegar Hafró er búið að koma með úrskurðinn þá fer það til sjávarútvegsráðuneytið og að sjálfsögðu verða þeir að vega þetta fram og til baka svona til að sína aðeins vald sitt svo frá ráðuneytinu fer það til Fiskustofu og þeir tilkynna okkur bréflega hhvort við fáum að veiða og hvað mikið og sjá um að gefa út veiðileyfið.
Á meðan verðum við að bíða og vona það besta, bátarnir eru að verða klárir . Andri BA-101 er orðinn klár Ýmir BA, er í klössun, held að Brynjar BA, sé klár og svo er byrjað vinna í Höfrungi BA.
Að öðru hér á Bíldudal er búið að opna litla Skipasmíðastöð og er búið að taka fyrsta bátinn til endurbóta er það M/B Anna BA sem er í eigum Jóns Pósts Halldórssonar en póstflutningar hafa stóraukist svo það var ekkert annað en að ráðast í endurbætur á bátnum.
Hér búið að taka bátinn í sundur. Ekki er búið að ákveða hvenær verklok eru eða hvenær næsti bátur verður tekin og hvort það verði endursmíði eða nýsmíði. En sá sem sér um breytingarnar er BMM-útgerð, þeir félagar Björn Magnús Magnússon og Jón Hákon Ágústsson.
Hér sjáum við ofan á bátinn.
Svo sjáum við Andra BA-101 á sínum stað tilbúinn til rækjuveiða ef leyft verður að veiða rækjuna. Og auðvita er logn á Bíldudal. Báturinn sem liggur utan á Andra er Kristbjörg SH (ex Jörundur Bjarnason BA ). Þessi bátur er kominn hingað vestur til að fara veiða kúfskel svo það er allt að gerast á Bíldudal í augnablikinu.
Hér sjáum við svo aðeins betri mynd af Kristbjörgu. Lítil hreyfing hefur verið á bátnum síðan hann kom. En hann er svo sem vanur að liggja í höfninni á Bíldudal lág í nokkur ár án þess að hann væri hreyfður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2011 | 10:15
Lítið að frétta
Lítið að frétta hvort það sé frá Íslandi eða Noregi. Andri BA-101 klár til veiða ef við fáum leyfi til að veiða Arnarfjarðarækju. Polarflotinn liggur við kaja í Noregi í heimahöfn og verður allavega einn mánuð enn. Dröfn RE-35 ekki komin eða var ekki komin til okkar í gær. Hún fann rækju í Ísafjarðardjúpinu held ég fari rétt með að hún sé búin að landa yfir 20 tonnum af rækju af djúprækju. Það eru alveg ótrúlegar fréttir miðað við stöðuna á stofninum því í ástandsskýrslu hafró segir um Ísafjarðardjúpið " Samkvæmt stofnmælingu í október mældist
rækjustofninn í Ísafjarðardjúpi nálægt sögulegu
lágmarki. Eins og á flestum grunnslóðasvæðum var
þorskgengd mjög mikil árin 20032005. Mikil
fiskgengd er talin hafa valdið mestu um minnkunina
frá árinu 2007. Í október 2010 mældist fjöldi af
þorski og ýsu yfir meðallagi og því ólíklegt að
rækjustofninn þar muni vaxa á næstunni. Ekki er
lagður til upphafsafli fyrir fiskveiðiárið 2011/2012."
Hafró taldi að rækjustofninn í djúpinu myndi ekki ná sér á næstu árum svo fá þeir bara mokveiði frétti að Dröfnin hafði komist í 5 tonn í einu hali. Í allri rannsókninni í djúpinu í fyrra fékk Dröfnin 401 kg. Hvernig getur stofn rétt svona svakalega úr sér frá því að vera í sögulegu lágmarki gefa 401 kg yfir í 20 tonn á einu ári. Og ekki hefur fiskgengd í djúpinu minnkað því Dröfn hefur fengið mikinn fisk einnig. Hvernig verður þetta skýrt.
Að öðru fyrir nokkrum árum var ég sjómaður út í Danmörku eyddi tveimur sumrum sem sjómaður frá fiskibænum Hanstholm.
Hér sjáum við Evu koma en á þessum var ég á netum
Hér sést aftan á Evu. Þetta var svona hefðbundinn danskur kútter vel varin fyrir Norðursjónum en Norðursjórinn er eitt leiðinlegasta svæði sem ég hef verið til sjós á alltaf vindur og leiðinda sjólag.
Löndun úr Evu. Lyftarinn var með litla bómu og svo voru kassarnir hífðir upp einn og einn í einu.
Hér kemur fyrsti kassinn upp, þarna vorum við að veiða kulmule ( veit ekki hvað hann heitir á Íslensku) hann var seldur til Spánar og var mjög gott verð á honum en núna hefur verið lækkað mjög mikið vegna efnahagsástandsins á Spáni.
Löndun lokið og ekkert annað en að færa bátinn og krakkarnir komnir um borð vilja fá smá siglingu. Þessar stíur sem þið sjáið þarna settum við öll netin við vorum með mikið að netum man ekki hvað mörg en þau voru einhver hundruð.
Hér sjáum við kannski of vel kulmula kominn á markaðinn í Hasntholm og var bíða eftir uppboði.
Hér sjáum við Sandvik HM-123. Þessi var nú smíðaður á Akureyri hét held ég upphaflega Tjaldanes. En þennan gerði Jónatan Hallgrímsson út frá Hanstholm, held hann sé hættur og fluttur heim. Hann átti einnig þennan fyrir innan Sandvik hann hét Stromsvik.
Hér sjáum við netabátinn Mechalan þessi brann svo seinna en mannbjörg varð. Keyptu svo annan gamlann togbát sem þeir breyttu til netaveiða.
Hér sjáum við gamla Vestbank þetta er danskur rækjubátur, það eru feðgar sem eiga Vestbank og þegar þessi mynd var tekin voru þeir að bíða eftir nýsmíði sem er löngu komin í notkun í dag. Eru allt árið á rækju.
Þessi er sænskur og er með beitingavél og gekk mjög vel á þennan alveg ótrúlegt ekki bátur upp á marga fiska, en það réru færeyingjar með svíanum og kom það fyrir að fresta varð brottför vegna björdrykkju skipstjóra og áhafnar.
Dauðadeildin í Hanstholm fyrir nokkrum árum veit ekki hvernig staðan er á þessu í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2011 | 21:35
Verður rækja? Dröfn Væntanleg á næstu dögum
Dröfn RE-35 er væntanleg í Arnarfjörðina á næstunni að rannsaka hvort það verði leyft að veiða Arnarfjarðarrækju á þessu fiskveiðiári, má segja að menn bíði spenntir. Set inn hérna myndir teknar á síðustu vertíð.

Ýmir BA- 32 að fara undirbúa að kasta trollinu í Geirþjófsfirði í janúar á þessu ári.
Ekki farið að birta en þarna vorum við en á siglingu og ekki búnir að láta trollið fara hjá okkur.

Nokkru seinna byrjaðir að toga.


Þarna kemur hann er að beygja eiithvað út í fjörðinn fram af Ósi

Og hér kemur hann svo nálægt okkur þegar hann mætir okkur.

Enginn á dekki en það sést glitta á skipstjórann sitja í stólnum og kíkja út um gluggann.
Já svo verðum við allavega að vona það besta með rannsóknina og það verði leyfð rækja. Andri BA-101 er allavega klár í slaginn svo auðvita ef enginn verði rækjan þá verður hann flottur í bryggjunni nýmálaður og flottur ferðamönnum til yndisauka á komandi mánuðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2011 | 17:47
Mission complete. Andri BA-101 kominn heim.
Fyrir rúmri viku fórum við með Andra BA-101 (bryggjublómið) í slipp í Stykkishólm. Þar sem hann var þykktarmældur,bolskoðaður,öxuldreginn og málaður. Hann var svo tekinn út af Skipaskoðun Íslands og er kominn með kvaðalaust haffæri sem er auðvita fínt í bryggjuna á Bíldudal.
Hér komum við svo í morgun og eins og þið sjáið klikkar ekki veðrið á Bíldudal. Við lögðum af stað kl 2000 í gærkveldi frá Stykkishólmi og fengum gott veður alla leiðina og ferðin gekk bara vel. Í áhöfn voru undirritaður, Snæbjörn Árnason og Svanur Þór Jónsson.
Sólin að koma upp og vogurinn spegilsléttur.
Hann lítur bara vel út hjá okkur svona nýmálaður og flott veður á Bíldudal en og aftur.
Og hér komum við inn í höfnina og breytingin á stýrinu virðist virka vel því það er allt annað stýra bátnum. En við stækkuðum stýrið og setum vinkil einnig vinkill aftan á það.
Svo er ekkert eftir nema setja hann á sinn stað og bíða hvort verða einhver verkefni fyrir hann það á eftir að koma í ljós.
Meirihlutinn af áhöfninni eftir velheppnaða heimsiglingu og eru þeir ánægðir að vera komnir í heimahöfn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2011 | 07:39
Skipsskrúfa.
Okkar vantar stærri skipsskrúfu á bátinn hjá okkur. Við erum 350 ha Volvo Penta vél og erum með Twin Disc MG-514 gír og niðurgír er 4,5:1. Hér sjáum við mynd af gömlu skrúfunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.9.2011 | 10:15
Slippur í Stykkishólmi og fleira.
Að kvöldi þriðjudags 6 sept lögðum við í hann með Andra BA-101 í slipp og var haldið til Stykkishólms áhöfn Jón Páll Jakobsson og Snæbjörn Árnason og vorum við 14 tíma í ferðinni og komum til Stykkishólms um kl 12 á hádegi þá var fyrir upp í slippnum Dröfn RE-35 og tók þá við ca 3 tíma bið þangað til við komust upp í slippinn.
Um kl 14 miðvikudaginn 7.sept byrjuðu þeir að slaka Dröfn niður og hér sjáum við þegar hún er byrjuð að renna niður nýmáluð og flott og kemur fljótlega að rannsaka Arnarfjörðinn fyrir okkur og ath hvort það sé rækja eður ei.
Og hér er Dröfn byrjuð að fljóta og farin að bakka frá sleðanum hún kom svo í smá stund upp að kaja og svo fór hún að gera klárt fyrir rækjuleiðangur.
Eftir að Dröfn var farin var sleðinn tekin upp og breytt og síðan fórum við upp, allt gekk eins og í sögu.
Hér sjáum við svo Andra BA-101 í gær föstudag þar sem hann stendur nýmálaður í slippnum og er nánast tilbúin vantar bara skrúfuna og stýrið.
Hér sjáum við hann frá bakborða. Báturinn var þykktarmældur og kom hún mjög vel út má segja að þykktarmælingin var alveg eins og þegar báturinn var mældur fyrir fimm árum.
Þessi er Stykkishólmi en þennan endurbyggðu Skipavík fyrir Þörungavinnsluna á Reykhólum. Hann heitir Flatey og er sko sannanlega búin að fá andlitsupplyftingu. En þessi er systurskip Driffells sem Jón Halldórsson átti en það er orðið lítið líkt með þessum tveimur. Hann er vélarlaus eins og er því ekki alveg að fara á næstunni.
Þessi væri kannski góður á strandveiðina allavega færi ekki illa um mannskapinn.
Það er lítið að frétta frá mínum manni í Noregi eftir því sem ég best veit eru allir bátarnir við bryggju í Örnes, hvort það verði einhver útgerð fyrr en eftir áramót er ekki gott að segja. Ég kom heim frá Noregi þann 26 ágúst og þessar myndir tók ég þá um morgunin áður en ég lagði í hann til Bodo.
Hér er flotinn Turbo,Holmvag,Froyskjar,Polarhav,Polarfangst og Polar Atlantic. Vantar Öyfisk og Ogrunn.
Þetta er ekki bátur þetta er mustanginn hans Torleifs Þessi er mjög lítið notaður svipað og með Skaren markmiðið að eiga hann. Þetta er flottur bíll er á númerum og í fínu standi. Torleif er búin að eiga þennan mjög lengi.
Hér segja menn að þú sért orðinn innfæddur norðmaður verði maður að eiga bát, snjóblásara og keðjusög og svo er auðvita toppurinn hjá þeim að eiga eigin bryggju og þetta á Torleif allt og meira til svo hann stendur alveg undir nafni að vera sannur norðmaður.
Hér sjáum við ferjuna Örnes og Hurtigrutuna mættast þarna er Örnes að koma og Hurtigrutuan að fara frá Örnes þetta er um kl 0730 að morgni Hurtigrutan kemur á hverjum degi alla daga ársins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2011 | 09:50
Gamalt og gott.
Það er lítið um að vera núna hjá mér kominn heim frá Noregi og er að njóta lífsins með fjölskyldunni, svo eftir helgi fer ég með Andra BA-101 í slipp í Stykkishólm að gera hann klárann fyrir rækjuvertíðina.
En ég ætla setja inn einhverjar myndir. Á þessum var ég stýrimaður veturinn 2005 en þá var hann keyptur hingað frá Ísafirði og aflaði hráefni fyrir frystihúsið, útgerðin gekk brösuglega ekki að fiska en það gekk eins og í sögu og vorum við nánast alltaf með fullt skip, en kvótinn var enginn því fór sem fór. En þarna var gott að vera gott skip og fín áhöfn.
Trollið að koma. Við vorum aðallega á steinbít og ýsu en svo koma einhver sölutregða með ýsuna og vorum við þá sendir á karfa og þorsk. En hér erum við á steínbít útaf Kópnum og var oft helvíti gott hjá okkur eftir stuttann tíma.
Þarna er pokinn kominn ca 2 til 3 tonn í en við toguðum yfirleitt ekki lengur en 30 til 40 mín á þessari bleyðu.
Allt að fyllast hjá lestarstjóranum og yfirvélstjóranum í þessum túr.
En það kom fyrir að við rifum og þá gat oft farið tími í súginn því steinbítur veiðist á á nóttunni á þessum árstíma en þetta er í feb aðeins á nóttunni. Svo þarna er bætingavinna í gangi hjá stýrimanninum og næturvaktinni.
Stýrimaðurinn að hífa.
Hér sjáum við Bílddælinginn og sjálfstæðismanninn Páll Ágústsson en við vorum aðeins tveir Bílddælingar í áhöfn ég og Palli. Þeir sem þekkja ekki Palla þá er hann auðvita á spilinu að hífa.
Sunnudagur um borð í Hallgrími lambahryggur í matinn ekki viss hvort hann var frá Eiríki eða Palla Magg held þó að hann hafi verið úr Bónus.
Hér stýrimaðurinn sjálfur á toginu og allt orðið rautt hjá honum og ekkert annað í stöðunni en að hífa.
Skipper Gísli Hallgrímsson að kanna lestina hvað mikið lestarpláss eftir, en þegar birta fór að degi kipptum við og leituðum að ýsu og í þessum túr kipptum við Norður á Straumnesbanka. En þarna áttum við lestapláss fyrir einhver tíu tonn og var ætlunin að fylla upp með ýsu á Straumnesbankanum.
Trollið að koma hjá okkur fyrsta hal á Straumnesbankanum en þau urðu aðeins tvö þar.
Já hölin uðru tvö þennan dag þarna á bankanum fyrra halið var ca 2 til 3 tonn eftir 4 tíma en seinna halið það var nokkuð gott eða um 20 tonn eftir rétt rúma tvo tíma en kallinn fékk blett undir sem gaf þennan flotta afla og hér sjáum við þegar halið er komið í rennuna.
Komið inn fyrir og Palli alveg í skýjunum með þetta en það er alltaf gaman að innbyrða stórt hal.
Ca 20 tonn.
Kallinn ánægður með aflann. Þessar myndir eru teknar í feb 2005 og eru settar saman úr þremur veiðiferðum. En veiðimynstrið var alltaf eins hjá okkur þarna steinbítur á nóttunni og leitað að ýsu á daginn. Og þarna var nóg að ýsu hjá okkur og ekkert vandamál að fiska hana eins var með steinbítinn nóg var af honum þarna útaf kópnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2011 | 16:18
Meira frá Grænlandi
Hann var dálítið þéttur á köflum og máttum við sigla í svigi.
Sumir jakar eru fallegri en aðrir en þeir voru margir flottir í þessari ferð og er þessi einn af þeim, en það getur verið erfitt að velja og hafna.
Constable Point. Danir byggðu þessa stöð og flugvöllinn fyrir mörgum árum og þá átti hann að duga í 25 ár og eru þau löngu liðin. Held þetta hafi verið í sambandi við olíleit á sínum tíma þegar verið var að leita af olíu þarna norður frá. En nú hefur Constable Point þyðingarmikill flugvöllur í sambandi við hugsanlega námuvinnslu og fleira þarna á svæðinu og svo vissulega í sambandi við Scoresbysund og vaxandi ferðamennsku á svæðinu.
Hilton Hótel á Constable Point. mínus ein stjarna. er klassinn á þessu hóteli.
Eins og sést Hilton Hotel og mínus ein stjarna.
Hér sjáum við þegar þyrlan er að nálgast okkur kemur yfir bátinn.
Og hér sjáum við þyrluna yfir bátnum.
Læt þetta vera gott í bili og kannski birti ég fleiri myndir úr þessari ferð seinna. Ég er kominn heim til Íslands (eða í frí til Íslands).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2011 | 11:21
Grænlandsleiðangur.
Í ágúst 2008 fór ég í grænlandsleiðangur með góðum mönnum á Surprise ÍS leiðangursstjóri var góð vinur minn frá Ísafirði Arnar Kristjánsson.
Hér sjáum við strönd Grænlands en við vorum að fara til Constable Point með stutta viðkomu í Scoresbysund ( held Iiioqqortoormiut á grænlensku) með tæki og tól fyrir danskann leiðangur.
Komnir í ísinn en það var ís fyrir mynni fjarðarsins.
Fyrstu húsin sem við sjáum þegar við sigldum inn fjörðinn.
Komnir til Scoresbysund. Og þurftum að bíða eftir því að fá afhenda eina 200 ltr af olíu.
Olían tekin um borð.
Akkerið látið falla við Constable Point.
Svo þegar átti að byrja að aferma um morgunin var svarta þoka og ekkert hægt að fljúga en notuð var þyrla til að flytja dótið í land.
Byrjað að létta til þokan að gefa sig.
Þyrlan að koma að byrja að hífa í land og þarna sést líka flugvöllurinn í Constable Point.
Hér sjáum við þegar verið er að taka ljósavel frá borði. En þetta var frekar seinnvirkt að gera þetta svona.
Og hér sjáum við bátinn Surprise við akkeri fyrir framan Constable Point. Þarna erum við farnir í land aðeins að spóka okkur um áður en haldið verður til Ísafjarðar á ný.
Hér sjáum við svo leiðangursstjórana á leið í land á Grænlandi eftir velheppnaða aðgerð með að taka í land frá Surprise ÍS.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jón Páll Jakobsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar