Færsluflokkur: Bloggar
13.4.2019 | 19:49
Komið nýtt blogg
Langt síðan ég hef skrifað hér inni, eða 7 mánuðir, margt hefur gerst í mínum málum Jakobsson+ N-19-G var seldur og heitir núna John Martin og er skráður í Batsfjord. Ég réri Magny sem var 15 metra timbur bátur haustið 2018. Frá Janúar hef ég nánast verið í Stykkishólmi þar sem nýi báturinn okkar er byggður, átti hann að vera tilbúinn í janúar en nú er komið apríl og smíðin er á lokametrunum.
Báturinn hefur fengið nafnið Jakob eftir föður mínum og hefur fengið fiskinúmerið N-5-G, vonast ég til að geta siglt honum heim til Noregs eftir páska. Í byrjun april fékk ég norskann ríkisborgararétt og afsalaði ég mínum íslenska ríkisborgararétti þar sem Noregur býður ekki ennþá upp á tvöfald ríkisfang. Þar sem ég er orðinn norskur ríkisborgari get ég nú eignast báta yfir 15m og stærri kvóta. En ég gat ekki átt meira en 40% í hlutafélagi í norskum sjávarútvegi sem erlendur ríkisborgari svo þessi staða var farin áhrif á hlutafélagið mitt en nú er ég orðinn norskur og get eignast félagið allt þess vegna.
Gamli Jakobsson orðinn blár og fengið nafnið John Martin F-19-BD
Svanur Þór fékk bátinn sinn Lovísu skráðann sem fiskibát og hefur hann fengið skráningarnr N-29-G, er því komnir tveir fiskibátar í fjölskylduna hér úti.
Magny N-444-ME við koma úr róðri af Nordkappbanka, Og var allt fullt þarna.
Andraútgerðin liggur í dvala og virðist ekkert liggja fyrir en Andri fari í brotajárn er dálítill eftir sjá eftir þeim fína báti en hann liggur á Bíldudal og er farinn að verða dálítið rústaður og farinn gera sér grein fyrir örlögum sínum Hef þetta ekki lengra að sinni og ætla reyna að vera duglegri að blogga í sumar á nýja bátnum
Sigling á Lovísu í Sörfirðinum þar sem við höfum haft vetursetu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2018 | 04:24
Helsta nýtt
Ég hef ekki skrifað mjög lengi er trúlega lengsta ritstífla sem ég hef haft síðan ég byrjaði með bloggsíðuna mína. Eigum við ekki segja ég sé búinn að vera mjög upptekinn undarfarna mánuði. Síðasta blogg var 27.04.2018. En margt hefur gengið á síðan 27.04 þegar ég var staddur í Svolvær fá bátinn skoðann, heil sumarvertíð er búin sem inniheldur grálúðu, ýsu og þorsk.
Heilt yfir gekk sumarið vel og er eiginlega besta sumarið hjá okkur í þessari útgerð sem spannar nú á fimmta ár. Við rérum á línu í sumar með botnlínu,flotlínu og vormlínu. Sumarið 2018 í Finnmark var líka með besta móti og komu dagar sem maður óskaði þess að hafa loftkælingu í húsinu. Heitasti dagurinn sjónum var 22 gráður og var þá verið að draga línu útaf Persfjörð sem er fjörður rétt vestan við Vardö til gamans var kaldasti dagurinn hjá okkur á vetrarvertíðinni -18 gráður.
Eftir að vera hálfpartinn búsettur í Noregi síðustu 8 ár tók fjölskyldan öll stóra skrefið í sumar og fluttum öll varanlega til Noregs. Var það frekar skrýtið að pakka saman á Dalbraut 30 eftir 20 ár þar og komu upp margar minningar sem nánst voru gleymdar en til gera langa sögu stutta fluttum við frá Íslandi 17 ágúst og byrjuðu yngstu börnin i framhaldsskóla hér þann 20 ágúst. Í fyrsta sinn síðan feb 2011 erum við hjónin með sama heimilsfang en við höfum undanfarin 7 ár verið skráð sem hjón ekki samvistun hjá Hagstofu Íslands en nú höfum við bæði sama heimilsfang en ekki lengur hjá Hagstofunni heldur hjá Folkeregistering en við búum á litlum stað sem heitir Sörfinnset og við búum við Sörfinnsetveien 12.
Það var kannski skrýtið að kveðja Bíldudal eftir nánst 45 ár samfelda sögu því að sjálfsögðu á ég margar góðar minningar en einnig nokkrar daprar sem er tengdar Bíldudal en hvort það sé staðnum sem slíkum að þakka eða fólkinu sem var með mér skapa þessar minningar er svo allt önnur saga en að kveðja var ekki eins erfitt og ég hélt það yrði ég var í raun löngu síðan fluttur og nánst búinn að kúpla mig út úr því daglega. Má segja eina sem tengdi mig við Bíldudal síðustu árin var fjölskyldan, sagan og traustir vinir en eins og einhver sagði þar sem manni líður vel og hefur sína hjá sér á maður heima enda er hver staður bara punktur i stóra heiminum svo orðið heima er eiginlega smá afstætt kannski ef ég kynni að spila á gítar,syngja og drekka rauðvín eins og kollegar okkar fyrir vestan okkur segja sé eina sem Bíldælingar kunna að gera væri söknuðurinn kannski meiri hver veit.
Stundum er sagt að enginn sé spámaður í sínu föðurlandi kannski er það rétt þar sem ég hef sett smá spurningarmerki við Laxeldi sem ég ætla ekki að fara nánar út í hér en ég hef sagt mínar efasemdir sem reyndar eru ekki bara byggðar á sandi ég átti rauninni smá hagsmuni var og er aðili að rækjuútgerð sem hefur nýtt Arnarfjörðinn til framfleyta sér og sínum lengi undir ábyrgu eftirliti. Eftir að hafa tjáð mig aðeins um þennan málaflokk var mér bent á það frekar pent svo ég sletti smá að þetta kæmi mér hreinlega ekkert við því kennitalan mín væri ekki skráð á Bíldudal. Ég ætla vona að öll sjónarmið fái hljóma á Bíldudal í framtíðinni óháð hvar kennitalan á heima þannig að staðurinn nái þroskast og dafna með þessum nýju atvinnumöguleikum sem laxeldi er og sjái að á öllum peningum eru tvær hliðar.
Að allt öðru þá er vonandi bjart framundan hjá okkur fjölskyldunni við höfum náð að byggja upp litla fjölskylduútgerð hérna og erum við að láta smíða fyrir okkur nýjan bát sem verður afhendur í lok nóvember 2018 og verður það þriðji báturinn sem við eignumst með hjálp bankanna hérna megin við stóra fjörðinn. Og mun hann fá nafnið Jakob. Jakobsson er seldur og verður afhendur nýjum eiganda nú október. Í september keypti Svanur Þór sonur minn sinn fyrsta bát litla trillu sem hann ætlar að fiska á en hann réri með okkur í sumar og fjárfesti hann fyrir hlutinn sinn. Mér finnst þetta alveg frábært að þetta skulli vera hægt ennþá hér að ungir menn sem hafa áhuga geta keypt sér trillu og aflað sér tekna utan borga stórfé fyrir aðganginn að fisknum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2018 | 12:44
Vetrarvertíð og Vorvertíð.
Lokið hjá okkur á Jakobsson N-19-G var þetta fyrsta vertíð sem við notuðum net i Lofoten en í janúar og fram i mars rérum við með botnlínu frá Baatsfjord.
Eftir kaldann janúar og febrúar þar sem aldrei var nánast farið úr föðurlandinu koma smá hlýindarkafli þar sem hitastig fór upp undir frostmark fannst okkur þá eins og sumar væri komið.
Þann 7.03 yfrigáfum við Baatsford í blíðu veðri áleiðis til Röst með stoppi í Reipaa þar sem átti útbúa bátinn til netaveiða í fyrsta sinn. Gekk ferðin suður eftir eins og í sögu og vorum við rétt rúma 2,5 sólarhring suður eftir. Fengum reyndar ísingu frá Hammerfest til Loppu en eftir það var ferdin bara hin besta.
Frekar kuldalegt þegar við kvöddum Finnmörku 9. mars.
Báturinn var útbúin til netaveiða í Reipaa og eftir 4 daga var haldið út til Röst reyna við þann gula en ekki er sopið kálið þó í ausuna er komið, því við strákarnir lendum i miklu veseni spilið var bara ekki nógu gott og það sem verra var að skífan hélt mjög illa svo fyrsta daginn urðum við að draga nánast með höndum sem okkur fannst nú vera frekar fúlt svona 2018 en til gera langa sögu stutta gáfumst við upp og fengum lánað annað spil sem og urðum við að fara aftur til Reipaa til skipta um spil. En eftir það gekk allt eins og í sögu og vorum við búnir með kvótann á 7 dögum 42 tonn og þar af fengum við 21 tonn síðustu tvo dagana.
Góður dagur á netunum eitthvað yfir 9 tonn og áttum eftir draga eina trossu.
Það vorum því ánægðir strákar á Jakobsson á flugvellinum i Bodö Laugardaginn fyrir páska á leið i langþráð páskafrí eftir nærri 3. mánuða úthald.
Það var margt minnisstætt frá Þessari vertíð nýtt met var slagið í afla tæp 13 tonn í einum róðri fórum reyndar tvisvar eftir aflanum. 9,4 tonn og svo 3,6 tonn.
Það sem mér fannst minnisstæðast frá vetrinum var þegar sólin kom upp fyrir sjóndeildarhringinn í fyrsta sinn við vorum þá staddir í róðri og ég verð að segja mér fannst það bara hreint stórkostleg upplifun að sjá sólina koma alla upp fyrir.
Einnig við keyptum extra kvóta með John Greger AS og Lars Göran Ulriksen og var það kvótinn sem við veiddum Röst. Svo nú höfum við tvo þorskkvóta til fiska á Jakobsson.
Eftir páskafrí á Íslandi var haldið aftur til Noregs til gera bátinn klárann fyrir "Vorvertíð" í Finnmark eða Finnmörku. Netaútbúnsður tekin frá borði og gert klárt fyrir línuveiða og síðan var haldið til Svolvær til láta skoða bátinn frá Svolvær var svo haldið til Tromsö þar var talstöðin skoðuð og fengið nýtt vottorð um að báturinn uppfylli skilyrði til að geta verið á Bankfisk 2 innan radiodeking A1 sem þýðir að við meigum fara út undir 90 nm svo framanlega við heyrum i strandstöð þar sem við erum ekki með stóra talsöð er þetta svona.
Í Svolvær á þriðjudaginn gert klárt fyrir vorvertíð.
Það er svo sem nóg verkefni framundan við eigum eftir 11 tonn af okkar kvóta svo höfum við fengið úthlutað 10 tonnum i Byggðakvóta svo er ýsan frjáls grálúðan kemur svo inn eftir 1. júni. Það er bara gera eins og hann Hermund vinur minn segir "Peis på".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2018 | 09:34
Murrr hefur verið kalt.
Árið 2018 byrjaði svoða líkt og 2017 endaði. Þann 4 januar flugum við til Batsfjord fra Reykjavik með viðkomu i oslo yfir nótt svo 5 janúar vorum við komnir hér upp eftir i svarta myrkri og blindbyl.
Lítið var um sjóveður fyrstu dagana en nóg að gera moka sjó og gera klárt. Þann 9 janúar voru balarnir teknir í fyrsta sinn árið 2018 og haldið í róður í sunnan velting og myrkri en þann róðurinn birti nú aldrei. Svo þá byrjaði rútinan og hefur verið þannig alveg fram á daginn í dag með bræluhléum fyrst i viku svo virðist ætla vera bræla núna í viku svo það hefur gefist nógur tími til að hugsa hér uppi.
En eftir sem tíminn leið hækkaði sólin á lofti og það var alveg yndislegt þegar hún kom í fyrsta sinn upp yfir sjóndeildarhringinn manni fannst bara vera komið sumar. Í dag er hún meiri segja farin að skína inn um stofugluggan komin yfir Syltfjordfjallið svo núna verður hrært í sólarpönnukökur.
Í þessu úthaldi hefur verið kalt alveg svakalega kalt upp í 12 stig á sjónum og upp í 20 í landi, ég hef verið með skegg og þegar verður kalt fæ ég alltaf nefrennsli og hefur horið frosiö jafn harðann i skegginu svo það hefur verið svona nýtt fyrir mér. Með miklum kulda er oft mikil hætta á ísingu og höfum við fengið smð kynningu allt hefur frosið og þurft að berja af bátnum á landleiðinni misst signal fá AIS og GPS en á móti kemur fiskerí hefur verið gott og verð einnig svo smá ísing og kuldi höfum við bara leitt hjá okkur, en satan það hefur verið kalt.
Oft kalt miðstöðin á fullu en hún hefur bara ekki við og að lokum sást ekki út ekki einu sinni smá og svo datt Gpsinn og AIS og radar sýndi illa þá var gott að hafa gamla kompásinn
Í janúar datt undirritaður í sjóinn og í 16 stiga frosti og með sjávarhita í kringum 2 gráður er kalt held mér hefur alsrei verið eins kalt og þegar ég kom upp úr sjónum og á þessari mínutu sem tók mig að komast inn í stýrihús gjörsamlega fraus ég en allt fór þetta vel að lokum og á móti kemur að fiskerí hefur verið gott.
En eins og ég segi það hefur verið kalt og í dag er kalt og vindur frá SV og svo vindátt er köld hérna á veturnar svo núna er svona í kringum -20 með vindkælingunni.
Hérna liggjum við nýkomnir í land búnir að berja smá af og þarna höfum við 7,6 tonn Þarna máttum við stoppa tvisvar á leiðinni til berja af okkur ísinn.
Við fórum 10 róðra frá 9 janúar til 4 feb og höfum við fiskað tæp 50 tonn eða nákvæmlega 48,639 tonn sem gerir 4,8 tonn í róðri Við höfum mest farið með 35 bala og minnst farið með 20 bala. Róðurinn sem við fórum með 35 bala var sá lakasti 5,3 tonn en besti var 7,6 tonn á 30 bala. Í byrjun var þorskur 60% en nú er hann komin niður í 30% og fer minnkadi ýsan að koma sterkari inn. Svo ég reikna með næst við komust á sjó verður ýsuhlutfallið orðið jafnvel 80%.
Að lokum kemur smá reynslusaga úr vélarrúminu á Jakobsson en fyrir svona hálfum mánuði var alveg svakalega kalt hérna þegar við tókum olíu hugsa nálægt -20 og við vorum svo óheppnir að taka olíu og það var bræla næsta dag en í stuttu máli er þetta flotaolía sem er selt hérna svo hún vaxaði um nóttina Olíutankurinn hjá okkur er nefnilega aftir i skut og nánast allur yfir sjávarmáli svo olían varð svo köld að hún vaxaði fór ekki gegnum racorsíurnar og þegar ég opnði síuhúsið voru síurnar eins og þessi fínu jólakerti. En fékk straks tips setja 10ltr av parafin (steinolíu ) í tankinn og svo var vélarrúmið hitað upp. Ég fór og kvartaði við Bunker oil og þar fékk ég þær upplýsingar að ef olian verður kaldari en -14 stig þá fer hún ekki í gegnum síur og ég er alveg handviss um að olían var yfir -14 þegar ég fékk hana um borð því tankurinn er bara á kajanum án nokkurs en þeir vildu nú ekki viðurkenna það. En allt fór þetta vel að lokum og nú er búið að koma fyrir 2kw ofni niður i vélarrúm svo nú verður olíunni aldrei kalt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2018 | 16:12
Nýárspistill
Jólafrí var tekið þann 13 desember i ágætisveiði við enduðum á rétt tæpum 6 tonnum á 30 bala 360 króka en hjá okkur er 360 krókar i balanum en hér i Noregi er bali ekki bara bali en hægt kaupa hinar mismunandi uppsetningu en 360 og 337 eru þær vinsælustu á þessari hefðbundu línu en þó hefur 410 og 490 krókar komið meira i seinni árum.
Í 2017 gerðum við mikið meira út upp í Finnmark heldur en fyrri ár því nú vorum við allt haustið í Båtsfjord eða Bátsfirði upp á Íslensku.
Og var það í fyrsta sinn síðan ég byrjaði gera út að meirihluti aflans var landað hjá Båtsfjordbruket yfir árið en þetta hefur verið svona þriðungur fram að þessu.
Og í fyrsta skipti er hugmyndin að byrja nýja árið i Finnmark og jafnvel ekkert taka Lofoten vertíðina heldur veiða þorskinn i Finnmark einnig, en ekkert fullráðið i því sambandi.
2017 var bæði gott ár og slæmt útgerðarlega séð flotlínuveiðin i sumar klikkaði alveg en á móti var ágæt gráluðuveiði ufsavertíðin klikkaði einnig en á móti var haustið þokkalegt varðandi þorsk og ýsu, svo ef ég hefði vitað að flotlínan og ufsinn hefðu klikkað hefði árið verið mjög gott bæði fyrir útgerð og mannskap. Samt heilt yfir var árið ágætt og betra en 2016 svo á stefnuskránni er að gera en betur í 2018.
Annar stór þáttur í sjómennsku okkar fjölskyldu eru innanfjarðarrækjuveiðar i Arnarfirði og því miður virðast þær veiðar vera fjara út en 2017 er langversta árið varðandi þær veiðar veiðibann á haustdögum og í vor þegar við veiddum rækjuna var verð mjög lágt og kvótinn lítil svo afkoman var mjög döpur og síðan kemur veiðibann núna nánst eins og rothöggið fyrir okkar útgerð. Það er kannski sárt að horfa upp á það fara úr flottir afkomu útgerðarlega og launalega niður í ekkert á aðeins þremur árum.
Verst er það horfa upp á atvinnutækið bundið við bryggju og vita þó maður vilji kannski ekki alveg viðurkenna það að ekkert bíður þess nema brotjárn.
Rækjustofninn í Arnarfirði er sá veiðistofn sem er mest rannsakaður og alltaf hefur verið farið eftir veiðiráðgjöf Hafrannsóknarstofnunnar en samt hrynur hann. Í stóra samhenginu eru rækjusjómenn orðnir afgangsstærð hjá hinu opinbera og alveg örgugglega afgangstærð í sjálfir náttúrunni.
Ég ætla kveðja þá þessari klasísku kveðju "Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár" og 2018 verður mikið betra en 2017 og best er er að lifa í núinu og hugsa til framtíðar og alls ekki til fortíðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2017 | 17:54
Banklinu drift i Finnmark
Veit eginlega ekki hvernig er besta thyda thetta en meiningin med thessu er ad å haustin er roid fra Finnmark ut å fiskibankana herna sem er langt til hafs veida thorsk og ysu å venjulegum banklinubåt er farid 50-80 milur til hafs og roid med 70-90 bala i ferdinni. Er thetta hefdbundid herna upp frå og lengi var roid med hefdbundum timburbåtum fra 50 til 70 fet ( nordmenn mæla alla båta i fetum) sem er 15 til 17 metrar. Thetta mynstur heldur lifinu i byggdunum herna og hefur gert lengi. Thetta er frekar erfid sjomennska allra vedra von og langt til hafnar eda i var. Og serstaklega em er sudlæg vidått getur thetta verid serstaklega erfitt.
Hefdbundinn banklinubåtur eins og their voru herna i kringum 1980 16 metra langur timburbåtur sem buid er ad loka alveg bakbordsmegin og aftur å.
Nutimabanklinubåtur 15 metra langur og 6,6 metra breidur tekur ca 28 tonn i lest i kørum.
Her i Båtsfjord hafa verid margir sem hafa roid å bankana i haust og komid mikill fiskur å land. Hafa verid kringum 15 storir banklinubåtar og svo 10-15 minni båtar sem hafa farid ut å banka thegar gefid hefur og erum vid stråkarnir å Jakobsson einn af thessum minni båtum sem hafa verid ad roa ut å banka.
Mikid lif er i kringum thessa utgerd eru yfir 100 manns ad beita herna nuna og unnid alla daga i bådum vinnslunum herna og oft langt fram å kvøld. Svo må segja ad haustin seu Lofoten theirra herna.
Jå Vid å Jakobsson høfum verid herna sidan um midjan okt med små fri i kringum månadarmotin erum vid bunir ad fara 12 rodra å thessu timabili og fiska um 50 tonn høfum vid verid ad roa med 30 bala i ferd og oft hefur varid langt til hafs og tekur thå rodurinn i kringum 30 klst lengsta sem vid høfum roid i haust er ca 40 milur ut å Sølebanka en einnig høfum vid fengid ågætis rodra å svokølludum 12 milna hrygg sem er eins og nafnid segir ca 12 milur fra Båtsfjord. Oft hefur verid puss å okkur og høfum vid fengid å okkur allt frå logni upp i storm og getur thad verid thungt ad vera 30 milur uti hafi og med 20 m fra Sv eda beint å moti og geta bara keyrt 2-4 milur å klukkutima svo oft høfum vid verid lengi i land held lengsta landstmid okkar hafi verid i kringum 9 timar.
Balarnir teknir einn daginn
En thar sem vid høfum ekki leyfi til ad fara lengra en 40 milur aftvi vid erum med thad sem kallast bankfiske 1 en helgast thetta af hvernig båtarnir eru utbunir og hvad their thola mikla isingu en herna er midnum deilt nidur i fjordfisk mått ekki fara lengra en 3 milur kystfisk sem er 12 milur bankfisk 1 sem er 40 milur bankfisk 2 sem er 100 milur og svo bankfisk 3 sem er otakmarkad. Jakobsson hefur bankfisk 1 allt årid og svo bankfisk2 å sumrin en må tho halda sig inn fyrir A1 i talstødvarsambandi thar sem vid erum bara med Vhf talstød ekki svo kallada millibylgju eda langdrægnastød vid erum reyndar med iridum tæki til senda tølvupost og sms en thad er ekki vidurkennt i GMDSS pakkanum.
Eini logndagurinn hjå okkur kom um midjan okt i fyrsta rodrinum og theim lakaasta og thå vorum vid med 40 bala.
Å haustin er einnig gulrot sem heitir ferskfiskordning eda ferskfiskbonus og er hann yfirleitt aukin å haustin og i haust hefur hann verid 50% med thessu er 50% af thorskafla kvotalaus thad er ad segja fer ekki af kvotabåtsins reikand å vikugrundvelli. Eins og i dag løndudum vid 4,3 tonnum af fiski og var torskur 3,3 af aflanum en utaf thessum bonus før adeins 1,1 tonn i kvota, thvi af thessum 4,3 tonnum måttum vid vera med 2,2 tonn af torski til vera innan marka. Thetta byrja i mai og må thå vera med 30% af thorski sem medafla og svo er aukid å haustin.
Kongakrabbinn hefur adeins verid ad strida okkur etid mikid af bædi fiski og beita en thessir fengu ad kenna å thvi voru teknir med land og slitnir og svo voru greyjin etin med bestu lyst.
Vid å Jakobsson høfum fiskad yfir 100 tonn i år en samt erum vid bara 54 tonn af torski svo vid høfum svo sannanlega notid gods af thessari reglu.
En nu nålagst jolin svo nu førum vid ad fara i jolafri og svo var planid ad byrja herna strax eftir nytt år og reyna fiska ysu og kannski torsk med. Er ætlunin ad vera fram i midjan månud og svo taka fri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2017 | 08:18
Sumarfri i Båtsfjord og stefnir i haustfri thar lika.
Jå eins og undanfarin år høfum vi fjølskyldan eytt sumrinu upp i Finnmark nånar tiltekid i Båtsfjord i Austur Finnmark ad fiska ysu å flotlinu.
Eftir gråluduna var haldid nordur og komid til Båtsfjord i endann juni og tøk hann å møti okkur i hålfgerdum vetrarklædum snjor og snjokoma fyrstu vikuna og kuldi. En sidan voradi og nu thegar vid erum ad sigla heim er komid sumar.
Flotlinuvertidin var leleg hjå okkur thetta årid og reyndar var thetta lelegasta vertid i austur Finnmark i 7 år vid fengum tho nokkra goda rodra inn å milli og må segja ad vid høfum fengid eina goda viku annars var thetta barningur. I ar høfdum vid einnig voremlinu med okkur sem vid drogum 2-3 i viku og fengum thar sem vid vorum ad eltast vid thorsk en vid meigum vera med 30 % torsk sem medafla og er så afli reiknadur å viku grundvelli svo ef thu fiskar tildæmis 20 tonn af ysu måttu hafa 6 tonn af thorski og svo måttu hafa 30% å thessi 6 tonn sem thu fiskar svo svo getur fiskad 8 tonn af torski i thessu dæmi ån thess ad hafa kvota.
Vid fedgar å godum degi i sumar en hann Svanur Thor Jonsson var håseti hjå mer i sumar halvlott.
Reyndar tokum vid einn gråludutur ut å banana ca 60 milur uti hafi en vid åttu små eftir frå fyrra timabilinu.
Vid tøkum stefnuna sudur eftir i august og sigldum vid fedgar båtum og vorum vid 2 1/2 solarhring å leidinni. Var thå tekid sein sumarfri og slappad af medal annars i Kaupmannahøfn.
I friinu tokum vid båtinn upp og botnmåludum og gerdum hann flottari
15. September var ræs å nyjan leik og gert klårt fyrir ufsann veida ufsa å flotlinu og erum vid bunir ad prufa marga firdi herna i någrenninu en ekki fengid nog bara svona rett 100 kg å balann og thvi midur er thad ekki nøg thegar verdid å ufsanum er svona lågt svo vid høfum åkvedid ad hætta og halda upp i Finnmark og fara fiska i ferskfiskordningen. En nu må thorskur vera 50% af aflanum reiknad å vikubasis.
Høfum vid reiknad thad ætti ad koma betur ut en thetta fiskeri herna. Svo haustinu mun eg eyda i Finnmark sem og sumrinu vonandi bara vedurgudinir verdi okkur jåkvædir svo eg thurfi ekki ad fara i kuldagallann allt of fljøt.
Og svona ad lokum vona eg ad eg gefi mer meiri tima til blogga.
Flott stund i Helligvær
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.6.2017 | 13:47
Rækjan buinn og Gråluda i Lofoten
Rækjuvertidin klåradist eftir påska en var undirritadur mikid lengur ad fiska pødduna en hann hafdi reiknad med 26.04 sigldum vid i til Thingeyrar i sidasta sinn med afla ur Arnarfirdi thetta fiskveidiårid. Vertidin var frekar leidinlega ad øllu leiti lelegt verd og afkoman eftir thvi svo vard mikil tekjuskerding bædi hjå åhøfn og utgerd. Held eg ad thetta hafi verid versta vertid sem eg hef verid med i og er eg rett og slett uggandi med framhaldid en rækjan hagadi ser allt ødru visi heldur en hun hefur gert øll thessi år sem eg hef stundad thessar veidar. Fiskgengt er mikil i firdinum og sækjir hann mjøg mikid i laxeldiskviar i firdinum thvi thar virdist vera nog æti fyrir hann. Thetta virdist hafa mjøg neikvæd åhrif å rækjuna.
En eftir rækju var haldid til Noregs og Jakobsson utbuinn til gråluduveida og 11 mai var haldid af stad upp i Lofoten nånar tiltekid i Kleppstad til gera klårt og vera klårir thann 22 mai thegar veiditimabilid opnadi. Og thad stødst vid vorum standby å midinum um midnættid thann 22 mai og tøkum thått i slagnum. Undirritadur var ekki med fyrstu vikuna fekk Albert Jonsson til leysa mig af thvi dottur okkar Solrunar var utskrifast sem stutent akkrutt å sama tima og gråludan byrjadi.
Veidin hefur gengid thokkalega verstu rodur ca 80 kg å balann og besti 220 kg vid erum bunir ad få 12 tonn i 4 ferdum af ca 20 tonna kvota. En sidan å midvikudag hefur verid bræla NA kaldi ut i kanti svo vid høfum bara verid i landi nuna i 5 daga en thad synist sem nordanåttin ætli ad gefa sig å morgun svo vonandi komust vid å stad i fyrramålid til ad leggja. Vid egum eftir tvær ferdir med ca 36 bølum.
Vid høfum verid ad roa uti kant å svædi sem heitir Hesteskoen thar er plåss fyrir svona ca 5 til 6 båta i einu en ekki allstadar er gråluda thvi fengum vid kynnast i fyrra thegar litid sem ekkert gekk hjå okkur.
Gråludan er veidd her i Lofoten frå 320 til 420 fm svo thetta er djupt og er mikil straumur å svødinu og reynum vid ad draga undan straumi. Allir båtarnir byrja leggja samtimis og er haft svona ca 300 fm å milli båta.
Jakobsson fulllestadur af linu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2017 | 08:48
Lofoten löngu búinn
Og undirritaður bara með tærnar upp í loft á Íslandi.
Já við kláruðum þorskkvótann þarna í mars og fórum svo með bátinn í heimahöfn og svo var skrepputúrt til Íslands að veiða Arnarfjarðarrækju en planið gekk ekki alveg upp reyndist erfitt að fá kaupanda af rækjunni svo fyrsta vikan fór bara í það sem og að fá haffæri á bátinn. Var haldið í fyrsta róður föstudaginn 31 mars og er búið að fara í fimm róðra og fá um 12 tonn af rækju. Núna í dag er komið vika síðan við lönduðum síðast en vegna tunglstöðu komu páskar akkúrat inn í þegar ég ætlaði að veiða rækjuna og svo þetta var frekar erfitt púsluspil.
Annað sem er öðruvísi nú er að nú verðum við á Andra að sigla með aflann til Þingeyrar já við löndum rækjunni á Þingeyri og er það heljarferðalag á Andra því hann er ekki viljugur til að fara of hratt yfir svo sigling með löndun og aftur á veiðislóðir tekur svona ca 10 tíma.
Sigling með aflann til Þingeyrar þarna er við með 8,5 tonn 5,5 tonn í lestinni og 3 tonn á dekki.
Annað sem ég reiknaði ekki með var að fá vetrar veður í apríl að maður myndi þurfa að standa og hreinsa þessar rækjupöddur í blindbyl og austan kalda.
Mjög kuldalegt i apríl mánuði.
Það er alveg greinilegt að það er búið að vera mikill fiskur í Arnarfirði í vetur og stendur rækjan mjög innarlega og hefur hún ekki verið svona innarlega á þessum tíma síðan ég byrjaði að stunda þessar veiðar. Svo það er ekkert gaman að eiga við þetta einnig hefur verð á rækju lækkað mjög mikið er það nú þessari blessaðri krónu að kenna og honum Boris Johnson fyrir að koma þessari Brexit i gegn sem varð til þess að pundið féll og verð á rækju lækkaði því nánast öll rækja fer til Bretlandseyja allavega er verð til okkar miðað við sterlingspund þó við fáum rækjuna borgaða í íslenskum króna svona hefur þetta verið í mörg ár. Svo nú er þetta allt á sömu bókina lagt: léleg rækja, lítil kvóti og lélegt verð. Við köllum þetta L inn þrjú og þegar þau koma öll á sömu vertíð er það versta martröð rækjusjómannsins.
Eins og sagt er í auglýsingunni er er 1944 fyrir sjálfstæða íslendinga kokkurinn tekur þetta mjög alvarlega og er þetta í öll mál hjá okkur á vertíðinni hér er réttur mánaðarins.
Já þetta átti að vera skreppitúr ætlaði að fara út strax eftir páska að reyna veiða lúðu áður en grálúðan hefst í lok maí. En núna sýnist mér að ég eigi eftir allavega eina viku eftir páska á veiðum hér heima áður en hægt verður að halda út til Noregs. Nú verður bara sumarið að vera gott hjá okkur bæði á grálúðu og ýsunni seinna í sumar en við reiknum með sama útgerðarmynstur eins og undanfarin ár hjá okkur grálúða í maí og júni og svo flotlína í júlí og ágúst. Svo reynt við ufsa á línu í september, okt, nóvember.
Framleiðslan hjá mér í Norge svona er þetta þegar maður er kominn með sitt eigið útgerðarhús eða sjohus eins nojarinn segir. En í vetur keypti ég mér bryggju og Sjóhus fyrir útgerðina og má segja að allt sé orðið fullt og verð ég að fara að huga að stækkun.
Bryggjuhúsið okkar í Norge.
Jakobsson við bryggjuna í Våg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.3.2017 | 07:18
Lofoten vertid 2017 nånast buinn.
Jå vid stråkarnir å Jakobsson eru nånast bunir med kvotann beitingargengid er byrjad ad stokka upp linuna eda klava eins og er sagt her i Norge.
Thessi vertid hefur verid frekar erfid fyrir okkur byjradir med mikilli otid og svo vard eitthvad ostud å okkur fengum litid vorum sennilega ad fleyta linunni vitlaust og tok thad okkur dålitla stund ad nå ad koma thessu i almennilega i gang en eftir thad hefur gegnid vel eda verid brukbart. Svo getur thetta verid tho hafid kokkar af fiski verdur ad få hann i båtinn svo eitthvad komi inn.
Vid liggjum nuna i landi thegar thetta er skrifad Fiskmottakan er lokud i dag svo vid førum ekki fyrr en å morgun eigum 16 bala i sjo nuna og 11 beita svo vonandi thurfum vid ekki ad fara nema 3 ferdir i vidbot og thå erum vid bunir og fløggum islnorska fånanum en thad er til sids herna thegar kvotinn er buinn her i Lofoten er flagga.
Løndunarbid i Kleppstad jå thegar vel vidrar eins og i sidustu viku og allir båtar fara å sjo verdur løndunarbid og høfum vid lent i thvi ad bida i 5 tima eftir ad få løndun
Eins og fyrr segir hefur gengid brøsuglega hjå okkur thessa vertid alltof margir bumm turar en eg held nu samt vid nåum ad halda 250 kg å balann midad vid slægdann og hausad fisk sem gerir ca 375 kg å balann upp ur sjo og vid erum med 250 kroka i balanum thå er vid ad tala um 1,5 kg af fiski å krok sem er nu alls ekki slæmt.
Vid beitum rækju eins og i fyrra rækjan er dyr i innkaupum en hun nytist mjøg vel og 90-120 rækja thå er ekki nema ca 2,5 kg af rækju å balann.
Jå ad beita rækju er gert svona eina beita svo papir yfir alveg thangad til balinn er tilbuinn.
Thetta er 7 Lofotenvertidin min og er thetta alltaf jafn spennandi margir båtar mikil felagskapur og god stemming ønnur vertidin min herna i Kleppstad annars hef eg verid Røst og Henningsvær verd nu segja Røst er einhvern veginn toppurinn thad er eitthvad vid Røst sem heillar holmar uti hafi thar sem folk byr og hafid i kringum eyjuna kraumar af fiski.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Jón Páll Jakobsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar